Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Blaðsíða 16
Helgarblað 7.–10. október 201616 Fréttir Erlent Tekur ruslið með sér hvert sem er n Rob Greenfield er ruslið sem hann hendir n Gerir athyglisverða tilraun U ndanfarnar tvær vikur hefur einn maður vakið meiri athygli en aðrir í banda­ rísku stórborginni New York. Sá heitir Rob Green­ field og er annálaður umhverfis­ verndarsinni. Hann ákvað á dögun­ um að gera athyglisverða tilraun en í henni felst að hann tekur ruslið, sem hann annars henti, með sér hvert sem er. Hugsa ekki um ruslið Nú, þegar um hálfur mánuður er liðinn frá því að tilraunin hófst, er ruslið orðið nokkuð mikið, eins og meðfylgjandi myndir bera með sér. Hann var spurður hvers vegna hann hafi ákveðið að gera þessa athyglis­ verðu tilraun. „Rusl er eitthvað sem við sjáum ekki – flest okkar henda því í ruslatunnuna og hugsa ekki um hvað verður um það,“ segir hann við vefútgáfu breska blaðsins Daily Mail, Mail Online. Gengur um götur í sjö klukkustundir Tilraunin á að standa yfir í mánuð og mun henni ljúka þann 19. október. Greenfield hagar neyslu sinni eins og meðalmaður í Bandaríkjunum sem skilur eftir sig tvö kíló af rusli á hverjum einasta degi að jafnaði. Hann borðar skyndibita; pítsur, hamborgara og kaupir sér kaffibolla. Í stað þess að henda umbúðun­ um í ruslið setur hann þær í gegn­ sæja poka sem hengdir eru á hann. Til að verða ekki úrvinda af þreytu lætur hann nægja að ganga um götur New York í sjö klukkustundir á dag. Í samtali við bandaríska fjöl­ miðla segir Rob að í fyrstu hafi hann ætlað að bera með sér allan úrgang, líka lífrænan, en þegar óþefurinn varð óbærilegur hafi hann hætt við þær áætlanir sínar. Rob áætlar að í heildina muni hann þurfa að bera með sér milli 50 og 60 kíló af rusli. 12 þúsund tonn af rusli á dag Talið er að íbúar New York, sem er fjölmennasta borg Bandaríkjanna, skilji eftir sig tólf þúsund tonn af rusli á hverjum degi. Þá benda rannsókn­ ir til þess að 80 prósent allra fram­ leiðsluvara í Bandaríkjunum séu not­ uð einu sinni áður en þeim er hent. Og samkvæmt GrowNYC, samtök­ um um sjálfbærni í New York, bera Bandaríkjamenn ábyrgð á 33 pró­ sentum alls þess rusls sem til fellur á jörðinni þótt íbúafjöldinn sé ekki nema 4,6 prósent af jarðarbúum. Þarf að synda gegn straumnum Greenfield segir að neysluhyggja, síaukin tilhneiging fólks til að kaupa meira af vörum og þjónustu, sé að leika jörðina grátt. „Ef maður vill lifa umhverfismeðvituðu lífi í Banda­ ríkjunum þá þarf maður að synda á móti straumnum,“ segir Green­ field sem hefur stýrt eigin sjónvarps­ þætti á Discovery Channel, Free Ride. Í honum fór Greenfield í rúm­ lega tveggja mánaða heimsreisu þar sem hann reyndi að komast af á að­ eins 40 Bandaríkjadölum, rúmum fjögur þúsund krónum, alla ferðina. Í annarri heimildaþáttaröð var fylgst með honum í eitt ár þar sem hann bjó í litlu húsi í San Diego í Kaliforníu þar sem hann hafði ekki aðgang að raf­ magni eða rennandi vatni. Mynda­ tökulið hefur fylgst með ævin týrum Greenfields í New York og verður gerð heimildamynd um það hvernig honum gekk. Greenfield er því ekki alls óþekkt­ ur í Bandaríkjunum og segir hann að margir hafi stöðvað hann úti á götu til að taka mynd af honum með ruslið. Greenfield segir að hægt og bít­ andi séu Bandaríkjamenn að vakna til vitundar um mikilvægi þess að ganga vel um náttúruna. „Fólk hefur ekkert á móti því að endurvinna rusl og kaupa vörur sem eru betri fyrir náttúruna. En þegar kemur að því að minnka neysluna eru ekki jafn margir hrifnir af því,“ segir hann. n Tólf þúsund tonn New York er fjölmennasta borg Bandaríkjanna, en talið er að íbúar hennar skilji eftir um tólf þúsund tonn af rusli á hverjum degi. Þung byrði Rob áætlar að í lok tilraunarinnar þurfi hann að bera með sér milli 50 og 60 kíló af rusli. Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Fullyrðir að Hitler hafi verið fíkill Adolf Hitler var langt leiddur eiturlyfjafíkill skömmu áður en hann svipti sig lífi. Þetta fullyrð­ ir þýski verðlaunarithöfundurinn Norman Ohler í nýrri bók sinni, Blitzed: Drugs In Nazi Germany, sem kom út í vikunni. Í bókinni er meðal annars stuðst við dag­ bókarfærslur frá lækni Hitlers, Theo Morell. Eins og nafnið gefur til kynna fjallar bókin um fíkniefnaneyslu í Þýskalandi á þessum tíma. Fíkni­ efni voru útbreidd á þessum tíma og voru efni eins kókaín, morfín, heróín og metamfetamín notuð af fólki í öllum stéttum, allt frá farandverkamönnum til æðstu valdamanna. Í bók sinni segir Ohler að Hitler hafi ánetjast efni sem kall­ ast Eukodol, en áhrif þess eru sögð líkjast áhrifum heróíns. Hitler er sagður hafa ánetjast efn­ inu eftir að honum var sýnt bana­ tilræði árið 1944 þegar sprengju var komið fyrir í skjalatösku undir skrifborði hans. Þetta hafði mik­ il áhrif á Hitler sem varð mjög taugaveiklaður og óöruggur í kjölfarið og til að róa taugarnar fór hann að nota fíkniefni. Þessi fíkn Hitlers er sögð hafa orðið þess valdanandi að hernað­ arlegar ákvarðanir hans urðu sí­ fellt furðulegri. Ohler segir svo að vöntun á Eukodol í apríl 1945 hafi orðið til þess að Hitler svipti sig lífi. „Misnotkunin á metam­ fetamíni af þýska hernum sýnir að helstu óvinir hans voru ekki Bretar, Frakkar eða Rússar heldur þreyta. Þýski herinn var að reyna að vinna stríð gegn svefninum. Þess vegna notuðu þeir þessi efni,“ sagði Ohler í sjónvarps­ þættinum Today í vikunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.