Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Page 25
Helgarblað 7.–10. október 2016 Kynningarblað - Skemmtanalífið 3 Einn öflugasti tónleikastaður landsins Græni hatturinn snýst um lifandi tónlist G ræni hatturinn á Akureyri er fyrir löngu orðinn einn þekktasti tónleikastaður landsins en þar halda lands- þekktir tónlistarmenn tón- leika fyrir fullu húsi þrjú kvöld í viku. Frábær hljómburður og framúrskar- andi aðstaða gera það meðal annars að verkum að það eru tónlistar- mennirnir sjálfir sem hafa samband við staðarhaldarann, Hauk Tryggva- son, og panta tónleika, en ekki öfugt. Oftast er húsið bókað marga mánuði fram í tímann. „Hér er bara opið þegar tón- leikar eru í gangi og þá er hús- ið opnað klukkutíma áður en tón- leikarnir hefjast, eða klukkan 20 á fimmtudagskvöldum og 21 á föstu- dags- og laugardagskvöldum. Síð- an er lokað um klukkustund eftir að tónleikunum lýkur,“ segir Haukur en hann hefur rekið Græna hattinn frá árinu 2003. Orðspor staðarins sem tónleikastaðar hefur vaxið jafnt og þétt og er mjög algengt að erlendir tónlistarmenn hafi sambandi og falist eftir því að troða upp á staðn- um. „Hér spilaði til dæmis hljóm- sveitin The Sex Pistols Experience um síðustu helgi en hún flytur tónlist hinnar frægu ensku pönkhljómsveit- ar The Sex Pistols. Hin heimsfræga hollenska rokkhljómsveit Focus spil- aði síðan hér í fyrra. Ég hélt reynd- ar að þetta væri eitthvert grín þegar umboðsmaður þeirra hafði sam- band enda hélt ég mikið upp á þessa hljómsveit á unglingsárum,“ segir Haukur. Græni hatturinn er staðsettur að Hafnarstræti 96 á Akureyri og að sögn Hauks er hljómburður í húsinu afskaplega góður: „Það er afar góður viður í hús- inu og timburloft. Sviðið er síðan al- veg pakkað í ein- angrun. Auk þess höfum við allt til alls hér fyrir tón- listarmennina, alla magnara, hljóð- kerfi, trommusett, Hammond-orgel og píanó.“ Aðgöngumiðar á tónleika eru seldir á vefsíðunni graenihatturinn.is og í Eymundsson en síðan eru seldir einhverjir afgangs- miðar á staðnum. Stundum selst þó allt upp á netinu. Nær alltaf er kom- in löng biðröð áður en tónleikarnir hefjast og húsið orðið fullt um korter eftir opnun. Áhugavert er að skoða dagskrána framundan á graenihatturinn.is en óhætt er að segja að hún sé metnað- arfull. Meðal listamanna sem koma fram á næstunni eru Bara flokkurinn, Ljótu hálfvitarnir, Skálmöld, Margrét Eir og Todmobile, Moses Hightower, Hjálmar og Jónas Sigurðsson og Rit- vélar framtíðarinnar. Enn fremur verður á næstunni haldin söng- skemmtunin Örlítið meiri diskant sem er dagskrá til heiðurs tónlistar- manninum Ingimar Eydal. Staðurinn tekur 180 manns í sæti en aðrir gestir njóta tónlistarinn- ar standandi. Bar er á staðnum þar sem hægt er að fá flesta hugsanlega drykki, áfenga sem óáfenga. n Jónas Sig og Ritvélar fram- tíðarinnar Mynd daníel StarraSon Focus John Grant Mynd daníel StarraSon Skálmöld Hjálmar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.