Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Qupperneq 14
Helgarblað 7.–10. október 201614 Fréttir
Smálánafyrirtæki keyrt
í þrot af kröfuhöfum
n Óljóst hvort eitthvað fáist upp í stjórnvaldssekt Smálána ehf.
A
ðeins fimm dögum eftir
að úrskurðarnefnd neyt-
endamála staðfesti lög-
brot og stjórnvaldssekt sem
Neytendastofa hafði lagt
á smálánafyrirtækið Smálán ehf.
var félagið úrskurðað gjaldþrota í
Héraðs dómi Reykjavíkur. Félagið
er í eigu Mario Megela, fjárfestis frá
Slóvakíu, sem keypti það í desember
2013. Félagið hefur ekki skilað árs-
reikningi síðan þá.
Samkvæmt tilkynningu um gjald-
þrotið í Lögbirtingablaðinu á föstudag
skorar skiptastjóri á alla þá sem telja
sig eiga kröfu í búið að lýsa þeim inn-
an tveggja mánaða. Samkvæmt upp-
lýsingum DV átti gjaldþrotaúrskurður-
inn sér nokkurn aðdraganda, þar sem
erlent eignarhald félagsins mun með-
al annars hafa flækt málin. Skiptastjór-
inn telur líklegt að mikil vinna sé
framundan við að gera upp búið.
Keyrt í þrot
Megela á einnig smálánafyrirtækið
Kredia sem, líkt og Smálán, var
sektað með úrskurði Neytendastofu
sem úrskurðarnefnd neytendamála
staðfesti þann 16. desember síðast-
liðinn. Þar var fyrirtækjunum, hvoru
um sig, gert að greiða 750 þúsund í
stjórnvaldssekt. Þann 21. september
hafði héraðsdómur úrskurðað Smá-
lán ehf. gjaldþrota.
Í fyrra varð breyting á fyrirtækjun-
um sem vakti nokkra athygli þegar því
var lýst yfir að þau væru orðin rafbóka-
búðir á netinu sem jafnframt veittu
lán. Algengt fyrirkomulag var þannig
að viðskiptavinir keyptu tvær bækur á
5.500 krónur sem veitti þeim heimild
til að fá 20 þúsund króna smálán.
Í úrskurði sínum staðfesti áfrýj-
unarnefndin meðal annars þá
ákvörðun Neytendastofu að reikna
skyldi kaupverð þessara rafbóka
sem hluta af kostnaði við lán og þar
sem það væri ekki gert væri brotið
gegn ákvæði laga um hámark árlegr-
ar hlutfallstölu kostnaðar. Einnig að
brotið hafi verið gegn upplýsinga-
skylduákvæðum um upplýsingar
sem veita skal áður en lánssamning-
ur er gerður og hvaða upplýsingar
skulu koma fram í lánssamningi.
Athygli vekur að þrátt fyrir gjald-
þrotið er vefsíða Smálána enn virk
og enn hægt að nýskrá notendur inn
í kerfið á vefsvæðinu. Ekki liggur fyr-
ir hvort enn sé hægt að sækja um lán
í gegnum vefinn.
Óvíst með endurheimtur
En þegar ljóst varð að Smálán-
um yrði gert að greiða þessa 750
þúsund króna stjórnvaldssekt,
sem að auki hefði sett umdeildan
rekstur félagsins í óbreyttri mynd
í uppnám, var þegar hafin vinna
við að keyra það í þrot. Björgvin
Þórðarson, lögmaður og skipað-
ur skiptastjóri þrotabúsins, segir
að krafan um gjaldþrotaskipti hafi
ekki verið frá eigendum komin. Það
er því ljóst að kröfuhafar félagsins
hafa sótt að því og farið fram á að
það yrði keyrt í þrot. Það hafi hins
vegar tekið sinn tíma.
„Það má segja eins og er að það
spilar inn í að þarna er forsvars-
maður skráður erlendis þannig
að það er búið að taka langan
tíma að klára það,“ segir Björgvin.
Hann segir vinnu sína við að gera
upp búið á frumstigi en telur lík-
legt að mikil vinna sé framundan
við að greina það sem greina þurfi
í tengslum við slitin. Enn er óljóst
hverjir helstu kröfuhafar félagsins
eru en upplýst verður við skiptalok
hversu háar lýstar kröfur verða.
En þegar stjórnvaldssekt hefur
verið lögð á fyrirtæki er hún send
fjársýslu ríkisins til innheimtu. Í
tilfelli Smálána, sem nú hefur ver-
ið lýst gjaldþrota, er líklegt að 750
þúsund króna sekt ríkisins endi
sem ein af þeim kröfum sem lýst
verður í þrotabúið. Hvort eitthvað
fáist upp í hana þegar upp er stað-
ið, er svo aftur annað mál.
Hætti að skila ársreikningum
Það var í desember 2013 sem Mario
Megela kom inn í stjórn Smálána ehf.,
auk viðskiptafélaga síns Ján Lucan-
ský. En úr stjórn fóru Leifur Alexand-
er Haraldsson, stofnandi Smálána
ehf. og Haraldur Leifsson. Megela
tók einnig við framkvæmdastjórn
og prókúru af Leifi og virðist því sem
eigendaskipti hafi átt sér stað. En
þar sem einu upplýsingarnar um
eignarhald félagsins eru úr ársreikn-
ingi fyrir árið 2013 er DCG ehf., félag
sem skráð er í eigu Leifs Alexanders,
enn sagt fara með 100% eignarhlut í
Smálánum. Megela virðist hins vegar
samkvæmt gögnum félagsins og til-
kynningum síðan þá sannarlega hafa
tekið við stjórn félagsins.
Þar sem félagið skilaði ekki árs-
reikningum fyrir árin 2014 og 2015
er óljóst hversu hallað hafi und-
an fæti í rekstri þess frá árslokum
2013. Það ár nam hagnaður Smá-
lána nefnilega rúmum 54 milljónum
króna og greiddu eigendur þess sér
19 milljónir króna í arð. Hagnaður-
inn hafði þá nærri þrefaldast frá ár-
inu 2012 þegar hann nam tæpum 22
milljónum. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Mario Megela
Maðurinn sem
eignaðist Smá-
lán og Kredia í
desember 2013,
er með starfsemi
í bæði Tékklandi
og heimalandi
sínu Slóvakíu.
Sprungið
dekk og þýfi
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu hafði afskipti af ungri konu
aðfaranótt fimmtudags eftir
að tilkynning barst um bifreið
við Skarðshólabraut á Vestur-
landsvegi. Tilkynnandi sagði að
eitt dekk væri sprungið á bif-
reiðinni sem auk þess væri bens-
ínlaus. Taldi sá sem hafði sam-
band við lögreglu að ökumaður
væri undir einhverjum áhrifum.
Þegar lögreglumenn komu á
vettvang sat konan undir stýri og
reyndist hún vera í mjög annar-
legu ástandi. Að sögn lögreglu
var talsvert að dóti í bifreiðinni og
telur lögregla að eitthvað af því
sé þýfi. Eftir að búið var að taka
blóð úr konunni var hún vistuð
í fangageymslu lögreglu vegna
rannsóknar málsins.
Tvö þúsund
manns í Hörpu
Talið er að um tvö þúsund þátt-
takendur frá yfir 40 löndum muni
taka þátt í þingi Arctic Circle -
Hringborðs Norðurslóða, sem
verður sett í Hörpu í dag, föstu-
dag. Alls verða rúmlega 90 mál-
stofur á þingi Arctic Circle þar
sem um 400 ræðumenn og fyrir-
lesarar halda erindi.
Í tilkynningu segir að heims-
þekktir vísindamenn og forystu-
menn alþjóðlegra umhverfis-
samtaka verði á þinginu auk
stjórnenda alþjóðlegra stórfyrir-
tækja, ráðherra og fulltrúa al-
þjóðastofnana. Helstu stefnuræð-
ur þingsins flytja Ban Ki-moon,
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, og Nicola Sturgeon,
forsætisráðherra skosku
heimastjórnarinnar.
Á laugardag verða Arctic Circle-
verðlaunin veitt í fyrsta sinn við
hátíðlega athöfn í Hörpu.
Valdimar ákærður
Eyðilagði friðað hús í Bolungarvík
H
éraðssaksóknari hefur ákært
Valdimar Lúðvík Gíslason
fyrir skemmdarverk á frið-
uðu húsi í Bolungarvík sum-
arið 2014. DV greindi frá málinu á
sínum tíma og í viðtali sagðist Valdi-
mar hafa skemmt húsið á þeim
forsendum að það væri ónýtt og auk
þess slysagildra.
Í frétt Vísis á fimmtudag kom
fram að Valdimar sé ákærður fyrir
stórfelld eignaspjöll, brot gegn
hagsmunum almennings og brot á
lögum um menningarminjar. Bol-
ungarvíkurkaupstaður gerir þá
kröfu að hann verði dæmdur til að
greiða skaðabætur að fjárhæð 5,5
milljónir króna.
Atvikið átti sér stað aðfaranótt
mánudagsins 7. júlí 2014 og notaði
Valdimar vinnuvél til að brjóta nið-
ur þak og veggi hússins að hluta.
Húsið var byggt árið 1909 og var
friðað árið 2010.
„Þetta er ónýtt hús, sem stend-
ur einn metra út á götuna. Hús-
ið stendur í leið að ráðhúsi bæjar-
ins, þar sem alla þjónustu fyrir eldra
fólk í Hvíta Húsinu í Bolungarvík er
að finna. Það eru hér stór íbúðar-
hús sem eldri borgarar búa í og þeir
verða að fara alltaf út á götuna til að
komast á þessa stofnun. Krækja fyr-
ir þetta hús sem búið er að standa
autt núna í nokkur ár. Og það hef-
ur aldrei verið hægt að ganga í
þetta mál,“ sagði Valdimar í viðtali
við DV skömmu eftir atvikið 2014.
Í viðtali við DV.is á fimmtudag
sagðist Valdimar hvergi banginn
þrátt fyrir ákæruna og sagði gott að
málið færi sína leið í kerfinu. n
Dalvegur 6-8 • 201 Kópavogur • Sími 535 3500
Draupnisgata 6 • 603 Akureyri • Sími 535 3526
www.kraftvelar.is • kraftvelar@kraftvelar.is
BT rafma
gnstjakk
ar
- auðveld
a verkin
!
• 1300 kg. lyftigeta
• 24V viðhaldsfrír rafgeymir
• Innbyggt hleðslutæki (beint í 220V)
• Aðeins 250 kg. að þyngd