Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Blaðsíða 27
Helgarblað 7.–10. október 2016 Fólk Viðtal 23 búa enn hérlendis en ólíkt Syl­ vönu þá stefna þau á að flytja aftur til Þýskalands í nánustu framtíð. Drepa tímann í verslunarmiðstöðvum Við sitjum yfir rjúkandi kaffi­ bolla á veitingahúsi í Kringlunni. Anastasía Rós brosir stríðnis­ lega til blaðamanns og reynir að klófesta allt sem hönd á festir á borðinu. Hún hefur mikinn áhuga á síma blaðamanns sem gegn­ ir hlutverki upptökutækis í spjall­ inu. Hún setur í brýnnar þegar símanum er kippt í burtu en tek­ ur gleði sína á ný þegar hún fær að handleika borðbúnaðinn „Hún er algjör grallari. Hún er búin að hafa eyrnabólgu í nokkra vik­ ur og ég var með henni hjá lækni áðan. Samt er hún alltaf svo kát,“ segir Sylvana og brosir blíðlega til dóttur sinnar. Sú stutta brosir til baka en gefur síðan ákveðið til kynna að hún vilji fá pelann sinn. Henni verður fljótt að ósk sinni. Þær mæðgur eru ekki ókunnar verslunarmiðstöðinni. Þegar veður er vont þá leitar Sylvana í Kringluna eða Smáralindina til að drepa tímann þar til að þær fara og finna sér næturstað. Í tösk­ um á barnavagninum eru allar nauðsynjar sem barnið þarf, föt og matur. „Ef Anastasía Rós er veik þá er ég alltaf hjá mömmu en þar er afar lítið pláss og við sofum því í eldhúsinu. Mamma er líka í leigu­ íbúð og aðstæðurnar hjá henni eru erfiðar. Vinkonur mínar hafa síðan reynst mér ómetanlegar en plássið er af skornum skammti þar líka og ég vil ekki misnota velvild þeirra. Það er meira en að segja það að fá móður með ungbarn inn á heimilið. Anastasía Rós vaknar á nóttunni og er farin að brölta eldsnemma á morgnana,“ segir Sylvana. Sagt upp leigu í febrúar Í byrjun árs var staða mæðgn­ anna allt önnur. Vandræði þeirra hófust þegar að leigusamningi þeirra var sagt upp 1. febrúar síð­ astliðinn. „Við vorum í þægilegri íbúð í Grafar vogi sem hentaði okk­ ur vel. Eigandinn þurfti hins vegar að flytja sjálfur inn í hana og því þurftum við að víkja. Það var mik­ ið áfall að vera með fimm mánaða barn og fá þær fréttir að ég þyrfti að flytja eftir nokkra mánuði. Ég fór strax að leita en hef alls staðar gripið í tómt,“ segir Sylvana. Hún hefur ekki tölu á þeim fjölda íbúða sem hún hefur leitast við að fá að skoða en yfirleitt grípur hún í tómt. „Ég hendist á milli bæjar hluta ef ég fæ að koma og skoða. Þetta er mikið stress því maður þarf að taka ákvörðun strax. Þegar ég hef gert það þá hefur annar hreppt íbúð­ ina. Oftar en ekki velur leigusalinn frekar pör,“ segir Sylvana. Í iðnaðarhúsnæði með tíu karlmönnum Frá febrúar fram í maí gekk hvorki né rak í íbúðarleit mæðgnanna og áður en varði þurftu þær að flytja út úr íbúðinni. „Ég var orðin ör­ væntingarfull og þess vegna leigði ég herbergi í iðnaðarhúsnæði í Grafarvogi. Aðstæður þar voru ekki góðar en þessi lausn átti að vera tímabundin. Þetta var skárra en að vera á götunni. Við deildum eldhúsi og baðherbergi með tíu öðrum leigjendum, allt karl­ mönnum. Okkur leið ekki vel þar en ég átti ekki í nein önnur hús að venda,“ segir Sylvana. Aðstæður mæðgnanna bárust til eyrna félagsmálayfirvalda og í kjölfarið hafði barnavernd af­ skipti af þeim. „Starfsmenn stofn­ unarinnar óttuðust um velferð dóttur minnar og ég skil það mjög vel. Þetta voru ekki aðstæður sem börn eiga að vera í en ég átti engra kosta völ. Í kjölfarið var ég sett á biðlista fyrir félagslega íbúð og hef síðan verið í reglulegu sam­ bandi við barnavernd og Félags­ málastofnun. Það var vægast sagt óþægilegt og það var pressa á mér að útvega mér aðra íbúð,“ segir Sylvana og kveðst hafa átt ágæt samskipti við stofnanirnar. Fékk flogakast í Nettó Álagið var gríðarlegt á Sylvönu á þessum tíma. Dóttir hennar var tíu mánaða gömul og húsnæðisvandi þeirra olli henni miklum áhyggj­ um. Að lokum gafst líkaminn upp. „Ég var að versla í Nettó og sem betur fer var mamma með mér. Ég man ekki eftir neinu en hún segir að ég hafi byrjað að kvarta undan ógleði og svima,“ segir Sylvana. Andartökum síðar féll hún í gólf­ ið í krampakasti. Froða kom út um munnvik hennar og varði kastið í fjórar mínútur. „Ég var flutt upp á spítala þar sem ég var rannsökuð í bak og fyrir. Niðurstaðan var sú að um flogakast hefði verið að ræða, en ég er ekki flogaveik. Kastið mátti rekja til streitu og álags. Ég gat einfaldlega ekki meira,“ segir Sylvana. Hún missi minnið gjörsamlega í aðdraganda kastsins og í nokkrar klukkustundir eftir áfallið. „Ég man ekkert eftir ferðinni upp á spítala né fyrstu stundunum þar. Mamma sagði mér síðar að ég hefði gleymt íslenskunni og bara talað þýsku við hana. Þegar læknarnir töluðu við mig á ís­ lensku þá skildi ég ekki orð,“ segir Sylvana og brosir. Þrátt fyrir erfið­ leikana þá sér hún húmorinn í þessum aðstæðum. Á að passa sig á álagi og streitu Á þessari stundu minnir Anastasía Rós á sig og heimtar athygli. Syl­ vana tekur hana í fangið og réttir henni hvíta pappírsörk sem stúlkan hefur mikinn áhuga á. „Ég þekkti ekki einu sinni dóttur mína strax eftir kastið. Það var mikið lán að ég var með móður minni og var innandyra á nokk­ uð öruggum stað. Þetta kast hefði getað átt sér stað á mun óheppi­ legri tíma og haft alvarlegar af­ leiðingar,“ segir Sylvana. Móðir­ in unga braggaðist fljótt en hefur þó stöðugt áhyggjur af því að fá annað kast. „Ég á að passa mig á álagi og streitu en húsnæðisleys­ ið gerir að verkum að það er erfitt. Ég er því stundum smeyk að vera ein því þetta gerðist svo skyndi­ lega síðast að ég gæti ekkert gert ef þetta gerðist aftur,“ segir hún. Þá má Sylvana ekki keyra bíl næstu sex mánuði og ekki koma sér í aðstæður sem gætu ýtt und­ ir annað kast, til dæmis að fara í kvikmyndahús. „Það flækir að­ stæðurnar enn meira að geta ekki keyrt því stundum gat ég fengið afnot af bíl hjá vinum til þess að skjótast. Núna fer ég allra minna ferða í strætó,“ segir Sylvana. Óíbúðarhæf stúdíóbúð Hin unga móðir dvaldist á spítal­ anum yfir nótt og safnaði kröftum. Hún var fljót að braggast. Þegar Sylvana hafði jafnað sig eftir flog­ kastið hófst íbúðarleit hennar á fullu. Hún varð að yfirgefa herberg­ ið í iðnaðarhúsnæðinu hið fyrsta. „Eftir mikla leit fann ég loks litla stúdíóíbúð í Fossvogi og skrifaði undir leigusamning. Við fluttum inn í byrjun ágúst. Það var var mik­ ill léttir og ég hlakkaði til þess að byggja upp líf okkar í örygginu „Mín upplifun er sú að íbúðareigendur eru ekki spenntir fyrir því að leigja ungri, einstæðri móður og svo hjálpar ekki til að bera pólskt nafn. Það er vesen á Íslandi „Eigandi íbúðar- innar fór fram á að mamma borgaði 50 þúsund krónur aukalega því fleiri deildu íbúðinni M y N D S ig tr y g g u r A r i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.