Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Side 33
Helgarblað 7.–10. október 2016 Sport 29
Hin eilífa
leit að
nýja
Messi
Takefusa Kubo
„Japanski Messi“
Þú hefur líklega aldrei
heyrt á hann minnst
en hann hefur þó
sett svip sinn á
knattspyrnu-
heiminn. Kubo
var nefnilega
eitt þeirra
ungmenna sem
Barcelona fékk
til liðs við sig árið
2011 sem varð til að
félagið var sett í félags-
skiptabann. Kubo og fleirum var í kjölfarið
bannað að spila með Barca og færði hann
sig um set til Japan á ný. Kubo er enn aðeins
14 ára og framtíðin því enn óskrifað blað.
Messi einkunn: C Kominn aftur heim en
augljóslega nógu hæfileikaríkur fyrir La
Masia.
Sardar Azmoun
„Íranski Messi“
Samdi 17 ára gamall við Rubin Kazan
í Rússlandi en félagið ákvað á síðasta
tímabili að lána hann til Rostov í Rússlandi
þar sem hann verður áfram á þessu tímabili.
Hann er aðeins 21 árs og því gæti enn ræst
úr ferlinum þrátt fyrir að hann sé ekki enn
kominn upp á stjörnuhimininn.
Messi einkunn: E Rostov, þarf ekki að segja
meira.
Lorenzo Insigne
„Ítalski Messi“
Ítalski framherjinn hakar
í flest boxin til að
verðskulda Messi-
samlíkinguna.
Hann hefur það
fram yfir flesta
aðra á listanum
að hann leikur
með Napoli, sem
er í Meistaradeild
Evrópu, og hefur
verið viðloðandi ítalska
landsliðið. Hann er þó 25
ára og nokkuð ljóst að hann verður ekki
næsti Messi.
Messi einkunn: B+ Ef hann forðast meiðsli.
Li Ming
„Kínverski Messi“
Ming sló í gegn á YouTube þar sem hann
sást leika listir sínar og fékk Messi-
stimpilinn í kjölfarið. Hann leikur
samt bara með grunnskólaliði sínu í
heimalandinu og fátt bendir til að
hann sé að fara að sigra heiminn
í bráð.
Messi einkunn: E Virðist bara
enn einn YouTube-krakkinn.
Christian Atsu
„Afríski
Messi“
Gott og vel,
Lionel Messi
þurfti aldrei
að leika með
Bournemouth
og Newcastle
sem lánsmaður
en Atsu til varnar
þá á Chelsea hátt
í 40 leikmenn á láni
um allar trissur. Hinn 24 ára gamli Atsu
var keyptur til Chelsea 2013 og hefur verið
lánaður til fimm félaga síðan þá. Kannski
ekki beinlínis slegið í gegn en þó afrekað að
leika á HM fyrir Gana.
Messi einkunn: C Verður líklega leikmaður
í efstu deild en ekki meðal þeirra bestu.
Alan Dzagoev
„Rússneski Messi“
Stórstjarna í Moskvu þar sem hann leikur
með CSKA. Þrátt fyrir að vera án nokkurs
vafa góður leikmaður þá er hann 26 ára og
sigrar vart heiminn úr þessu.
Messi einkunn: C+ Óreyndur utan Rúss-
lands – lék þó vel á EM 2012.
Jose Angel Pozo
„Mini Messi“
Manchester City lagði út nokkrar millj-
ónir punda til að tryggja sér Pozo úr
unglingastarfi Real Madrid árið 2014.
Hinn tvítugi Pozo var álitinn efnilegur
fyrir framtíðina hjá City. Náði þó
aðeins að koma við sögu í nokkrum
leikjum. Ári síðar var hann farinn
aftur til Spánar eftir að hann samdi við
Almería til fimm ára.
Messi einkunn: B Erfitt að vera líkt við
Messi þegar þú kemur frá Real Madrid, en
hann er efnilegur og lofar góðu.
Mario Götze
„Þýski
Messi“
Líklega einn farsælasti
leikmaðurinn á þessum
lista og sá eini sem
getur státað
af því að hafa
unnið eitthvað
sem Messi
hefur sjálfum
ekki tekist.
Götze vann
heimsmeist-
aratitil
með þýska
landsliðinu
og afrekaði
að skora
sigurmarkið í úr-
slitaleiknum. Þrátt
fyrir að hafa átt
erfitt uppdráttar
hjá Bayern er hann
kominn aftur heim
til Dortmund og
enn í heimsklassa.
Messi einkunn: A
Hefur unnið titilinn
sem Messi dreymir
um.
*Sölustaðir:
Hagkaup, Bónus, Heilsuhúsið, Fjarðarkaup, Melabúðin,
10-11 Austurstræti og Lágmúla, Blómaval, Hlíðarkaup,
Vöruval
Einnig fæst minni útgáfa af drykkjunum
með enskum miða í:
Nettó – Mjódd, Reykjanesbæ, Borgarnesi, Akureyri,
Egilsstöðum, Höfn, Selfossi
Strax – Laugarvatni, Flúðum, Mývatni
Krambúðinni – Reykjavík og Húsavík
Icewear – Laugavegi og Hafnarstræti
Svarti Haukur ehf
s. 517 0110
www.lupinuseydi.is
svartihaukur@svartihaukur.is
2–3 flöskur á viku
Mælt er með að drekka um 2-3 flöskur af Lúpínuseyðinu á viku – fínt á fastandi maga
eða fyrir svefninn. Seyðið styrkir ónæmiskerfið og fólk á því að vera betur
í stakk búið til að verjast umgangspestum. Auk þess hefur Lúpínuseyðið hjálpað fólki
með ýmsa kvilla eins og exem, ofnæmi o.m.fl.
Lúpínuseyðið kostar 495 kr. í Bónus eða álíka og ein bjórdós.
Reynsla fólks
mælir með
Lúpínuseyðinu
Þetta þjóðþekkta íslenska seyði
fæst í Bónus verslunum um allt land,
Hagkaupi og víðar*
Í Lúpínuseyðinu eru 5 íslenskar jurtir; lúpínurætur, njóli,
geithvönn, ætihvönn og litunarskóf. Auk þess er engifer,
sítróna og stevia í seyðinu.
Reynsla fólks af Lúpínuseyðinu
„Ég veiktist mjög alvarlega síðasta vetur á svipuðum tíma og flensur og kvef herjuðu á
landsmenn. Hefði því átt að vera auðvelt skotmark fyrir þessum veirum. Ég drakk hins vegar
Lúpínuseyðið mjög reglulega og tel að það eigi stærstan þátt í að ég slapp alveg við þessar
pestir.“
Svavar Guðmundsson, sjávarútvegsfræðingur
„Í gegnum tíðina hef ég fengið þessar kvefpestir og flensur eins og gengur og gerist hjá öðru
fólki. Mjög slæmt fyrir mig sem hef söng að atvinnu. Eftir að ég kynntist Lúpínuseyðinu og íslensku
hvannardrykkjunum, hef ég verið alveg laus við þessa umgangspestir. Ég mæli með þessum flottu
íslensku vörum.“
Elsa Waage, óperusöngkona
„Ég finn fyrir aukinni matarlyst og almennt bara betri líðan. Hef tröllatrú á Lúpínuseyðinu.“
Stefán Þórðarson, fyrrv. bóndi og sveitarstjóri
Ég hafði heyrt margt jákvætt um lúpínuseyðið, en ákvað síðan að prufa drykkinn sjálfur fyrir
tveimur árum þegar ég las um aðila, sem hafði glímt við þurrk og ónot í húð og orðið betri. Á
mínum vinnustað er loftið oft þurrt og sjálfur hef ég glímt við hið sama. Fljótlega eftir inntöku þá
varð ég betri í húðinni, hún varð mýkri og þurrkurinn nánast hvarf. Sem gamall keppnismaður
þá er skrokkurinn víða lemstraður og ég er ekki frá því, að á þeim tímabilum sem ég er að drekka
lúpínuseyðið, þá er ég mun skárri á þeim stöðum sem ég er veikur fyrir. Hef ekkert nema gott um
drykkinn að segja, hjálpar til við að halda mér frískum.
Gunnar Oddsson, forstöðumaður hjá TM
Hvönn með engifer,
sítrónu, spínati, myntu
og stevíu
Hvönn með engifer,
sítrónu, túrmerik, peru
og stevíu
Hvönn með engifer,
sítrónu, bláberjum og
stevíu
Einnig 3 ljúffengir drykkir úr hvönn, hinni þekktu lækningajurt