Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2016, Side 4
Vikublað 11.–13. október 20164 Fréttir
LUDVIKSSON EHF - LEDLJÓS
www.ledljos.com * www.ledljós.is * ludviksson@ludviksson.com
S; 565 8911 - 867 8911
V I Ð E R U M Ó D Ý R A R I
E N Þ I G G R U N A R
INNFELLD LEDLJÓS
UTANÁLIGGJANDI LEDLJÓS
FLURLAMPAR - GÖTULÝSING - KASTARAR - TURNAR - SKIPAKASTARAR
LED ljós - spara 80-92% orku
LED ljós spara 80-92% orku
LUDVIKSSON EHF - LEDLJÓS
www.ledljos.com * www.ledljós.is * ludviksson@ludviksson.com
S; 565 8911 - 867 8911
V I Ð E R U M Ó D Ý R A R I
E N Þ I G G R U N A R
INNFELLD LEDLJÓS
UTANÁLIGGJANDI LEDLJÓS
FLURLAMPAR - GÖTULÝSING - KASTARAR - TURNAR - SKIPAKASTARAR
LED ljós - spara 80-92% orku
Réðust á mann
í verslun Olís
Skömmu eftir miðnætti aðfara-
nótt mánudags réðust þrír menn
vopnaðir bareflum á viðskiptavin
Olís við Gullinbrú í Grafarvogi.
Mennirnir hurfu síðan á brott en
voru handteknir skömmu síðar.
Í dagbók lögreglu kemur fram að
fórnarlambið hafi lítið viljað tjá
sig um málið og taldi sig ekki hafa
orðið fyrir miklum skakkaföllum.
Starfsfólki á staðnum var mjög
brugðið, að sögn lögreglu.
Maðurinn sem
féll í hver enn
á gjörgæslu
Brenndist alvarlega á höndum,
fótum og bringu.
Erlendur ferðamaður sem
slasaðist alvarlega þegar hann
féll í hver á Flúðum um helgina
var á mánudag enn á gjörgæslu-
deild Landspítalans.
Maðurinn sem er á sjötugs-
aldri brenndist alvarlega á hönd-
um, fótum og bringu.
Þyrla Landhelgisgæslunn-
ar sótti manninn á slysstað lenti
við Landspítalann klukkan 22.15
síðastliðið laugardagskvöld.
Slysið varð með þeim hætti
að maðurinn fór inn á svæði við
Gömlu laugina þar sem hverir eru.
Varað er við vatninu á skiltum
sem þar eru en virðist sem þær
viðvaranir hafi farið fram hjá
manninum. Svæðið sem mað-
urinn fór inn á var ekki afgirt að
öðru leyti.
Íslenskir fjárfestar með
þriðjungshlut í Nova
n Einkafjárfestar og lífeyrissjóðir með Pt Capital n Leggi til um 2,5 milljarða í hlutafé
Í
slenskir einkafjárfestar og
lífeyris sjóðir munu eign-
ast um þriðjungshlut í Nova
þegar ríflega fimmtán milljarða
króna sala fjárfestingafélags-
ins Novator á fjarskiptafyrirtækinu
Nova gengur að fullu í gegn á allra
næsta mánuðum. Fjármálafyrir-
tækið Íslensk verðbréf (ÍV), ráðgjafi
kaupanda í viðskiptunum, vinn-
ur nú að því að ljúka samningum
við innlenda fjárfesta sem ætla að
leggja til, samkvæmt heimildum
DV, samtals um 2,5 milljarða króna
í hlutafé en stór hluti þeirrar fjár-
mögnunar verður í gegnum fram-
takssjóð á vegum ÍV. Gert er ráð
fyrir að þeirri fjármögnun verði lok-
ið fyrir áramót. Íslenskir fjárfestar,
meðal annars lífeyrissjóðir, munu
þá eiga fjarskiptafyrirtækið ásamt
bandaríska eignastýringarfyrirtæk-
inu Pt Capital Advisors sem verður
með stóran meirihluta í Nova.
Tilkynnt var um kaup Pt Capital
Advisors, dótturfélagi Pt Capital,
á Nova síðastliðinn föstudag og
sagt að samningar hefðu náðst við
Novator, fjárfestingafélag Björgólfs
Thors Björgólfssonar, um kaup á
öllu hlutafé í fjarskipta fyrirtækinu.
Samningarnir væru hins vegar háð-
ir hefðbundnum fyrirvörum en að
kaupendur og seljendur væru bjart-
sýnir á að eigendaskiptin myndu
klárast endanlega á næstu mánuð-
um. Þeir fyrirvarar lúta meðal
annars að því, samkvæmt heim-
ildum DV, að Íslensk verðbréf eiga
eftir að safna því hlutafé sem ýms-
ir íslenskir fjárfestar ætla að koma
með við kaupin og mun að óbreyttu
tryggja þeim um þriðjungshlut í
Nova. Ekki liggur fyrir á þessari
stundu hvernig sá hluthafahópur
mun líta út en áætlað er að einka-
fjárfestar verði þar að líkindum
umsvifameiri en lífeyrissjóðir. Ekki
er útilokað að sú fjárfesting muni
í einhverjum tilfellum vera gerð í
gegnum Pt Capital Advisors.
Guggenheim fjárfestir
Gísli Valur Guðjónsson, forstöðu-
maður sérhæfðra fjárfestinga hjá
ÍV, vildi í samtali við DV ekki tjá sig
mikið um málið umfram það sem
fram hefði komið í fréttatilkynn-
ingu. Verið væri að ganga frá ýms-
um lausum endum, sem fylgir jafn-
an slíkum kaupum, og sú vinna
ætti að klárast á næstu mánuðum.
„Nova er gríðarsterkt fyrirtæki og
Pt Capital er spennt að starfa með
stjórnendum fyrirtækisins og styðja
við vöxt þess,“ segir Gísli Valur.
Pt Capital, sem er með aðsetur í
Anchorage, Alaska, leggur áherslu
á fjárfestingar á norðurslóðum og
er Nova fyrsta fjárfesting félags-
ins hér á landi. Á meðal þeirra sem
hafa sett fjármagn í framtakssjóði
á vegum Pt Capital er bandaríski
fjárfestingarsjóðurinn Guggen-
heim Partners en Scott Minerd, for-
stjóri sjóðsins, var á meðal þeirra
sem sóttu alþjóðaþing Arctic Circle
sem var haldið í Reykjavík í fyrra.
Þá voru stjórnendur frá Pt Capital
þátttakendur á þingi Arctic Circle
sem lauk núna um síðastliðna
helgi.
Átta milljarða eiginfjárframlag
Gert er ráð fyrir því að kaupendur
að Nova muni leggja til samtals
um átta milljarða króna í eigið fé
en afgangurinn – um sjö millj-
arðar króna – verði fjármagnaður
með lánsfé sem er búið að tryggja
að stærstum hluta frá erlendum
banka. Nova hefur alla tíð verið
fjármagnað frá grunni með eigin fé
og eru kaupin á öllu hlutafé félags-
ins núna því að hluta til fjármögn-
uð með skuldsettri yfirtöku. Áætl-
að er að EBITDA-hagnaður NOVA
á þessu ári – afkoma fyrir fjár-
magnsliði og afskriftir – verði um
2,4 milljarðar króna, samkvæmt
upplýsingum DV, sem er um 20%
aukning frá fyrra ári. Heildarkaup-
verðið er sem fyrr segir ríflega
15 milljarðar króna sem þýðir að
hlutafé Nova er verðmetið miðað
við tæplega sjöfalda-EBITDU í við-
skiptunum.
Í tilkynningu var haft eftir
Björgólfi Thor að hann sé „afar
stoltur“ af uppbyggingu og þeim
störfum sem Nova hefur skapað frá
því að það tók til starfa í árslok 2007
en félagið er með mestu markaðs-
hlutdeild fyrirtækja á íslenskum
farsímamarkaði. „Sú samkeppni,
sem fyrirtækið veitti þeim sem fyrir
voru á markaði, hefur leitt til lægri
farsímakostnaðar og betri þjón-
ustu hér á landi. Það er sérstaklega
ánægjulegt að erlendir fjárfestar
með reynslu af farsímamarkaði telji
góðan kost að taka þátt í íslensku
viðskiptalífi. Slík innspýting í ís-
lenskan efnahag er afar mikilvæg.“
Skoða fleiri fjárfestingar
Söluferli Nova hófst síðastliðið
vor en fyrirtækjaráðgjöf Kviku
fjárfestingabanka var ráðgjafi
seljenda í viðskiptunum. Áhugi
fjárfesta á félaginu var afar mikill
og á síðari stigum söluferlisins
voru, samkvæmt heimildum
DV, á bilinu þrír til fimm hópar
að bítast um fyrirtækið, að
stærstum hluta erlendir fjárfestar.
Kaupin marka talsverð tímamót
í íslensku viðskiptalífi þar sem
erlendur fjárfestir leiðir kaup á
stóru óskráðu íslensku fyrirtæki,
sem er með tekjur í krónum, í
stað þess að kaupendahópurinn
samanstandi að mestu af íslenskum
lífeyrissjóðum, eins og venjan hefur
verið á undanförnum árum. Ekki
er ólíklegt að fjárfesting Pt Capital
í Nova sé aðeins fyrsta fjárfesting
félagsins af mörgum hér á landi,
að sögn þeirra sem þekkja vel til.
Forsvarsmenn fyrirtækisins hafa
á undanförnum mánuðum og
misserum meðal annars fundað
með öllum helstu lífeyrissjóðum
landsins og lýst yfir áhuga sínum
á að koma að fjárfestingum með
þeim í íslensku viðskiptalífi.
Fjárfestingafélagið Novator er
stærsti hluthafinn í Nova með tæplega
94% hlut en aðrir hluthafar eru
stjórnendur hjá félaginu. Þar munar
mestu um Líf Bergþórsdóttur, forstjóra
félagsins, og Jóakim Hlyn Reynisson,
framkvæmdastjóra tæknisviðs, en
þau fara með samtals um 4,6% hlut
sem þau eignuðust á sínum tíma á
grundvelli kaupréttarsamkomulags.
Þau selja hluta af sínum bréfum í
viðskiptunum, og innleysa þar með
talsverðan hagnað, en munu eftir sem
áður vera áfram í hluthafahópnum. n
Hörður Ægisson
hordur@dv.is
Björgólfur Thor Björgólfsson Fjárfestingafélagið Novator á tæplega 94% hlut í Nova.
Und ir rit un samn ings ins Björgólf ur
Thor Björgólfs son, stofn andi Nova, Liv
Bergþórs dótt ir, for stjóri Nova, og Hugh S.
Short, stofn andi og stjórn ar formaður Pt
Capital.