Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2016, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2016, Blaðsíða 32
Vikublað 11.–13. október 201624 Lífsstíll Retor Fræðsla - Hlíðasmára 8, Kópavogi - Sími: 519 4800 - www.retor.is „Gerum íslensku að leiðandi tungumáli á vinnustöðum! Aneta M. Matuszewska skólastjóri og eigandi Retor Fræðslu Mekka íssins Erum í miðbæ Hveragerðis Ís í vél, 4 tegundir | Kúluís Pinnaís | Krap | Bragðarefur Ísfrappó | Sælgæti | Franskar Samlokur | Gos | Snakk Bland í poka | Pylsur | Kaffi Opnunartími mán-fim 10 - 21 / fös 10 - 22 lau 12 - 22 og sun 12 - 21 Breiðamörk 10, Hveragerði Fimm ástæður stöðugrar þreytu Þú þjáist af kæfisvefni Dagsyfja, þreyta og ein- beitingarskortur í vöku geta bent til kæfisvefns sem er algengur kvilli, einkum hjá fullorðnum körlum í ofþyngd. Talið er að sex af hverjum hundrað körlum fái sjúkdóminn en tvær af hverjum hundrað konum. Ein- kenni kæfisvefns eru öndunartruflanir í svefni og er algengast að truflanirnar komi fram sem öndunarhlé sem varir í nokkrar sekúndur í senn. Til að fá úr því skorið hvort þú þjáist af kæfisvefni er nauðsynlegt að fara í rannsókn þar sem fylgst er með öndun og súrefnismettun. Þú þjáist af blóðleysi Þreyta á daginn, jafnvel þótt þú sofir og hvílist ágætlega, gæti bent til blóðleysis. Á vef doktor.is kemur fram að blóðleysi feli í sér skort á rauðum blóðkornum, en þau vinna til dæmis súrefni í lungunum og skila því til frumna líkamans. Blóðleysi getur haft í för með sér að blóðið á erfiðara með að flytja súrefni um líkamann sem aftur gerir það að verkum að frumurnar sem færa okkur orkuna til daglegra athafna fá ekki nóg súrefni. Kæfisvefn eða blóðleysi gæti verið að plaga þig Ö ll þekkjum við það að finna fyrir þreytu í byrjun vinnuvik- unnar og stundum tekur það ótal klukkutíma að koma sér af stað, jafnvel þó að maður hafi sofið sína átta tíma. Það er fleira en lítill svefn sem getur haft áhrif á það hvort fólk er þreytt. Vefritið Medical Daily tók saman lista yfir fimm algeng atriði sem gætu verið að plaga fólk ef það finnur stöðugt fyrir þreytu. n Skjaldkirtillinn starfar ekki eðlilega Skjaldkirtillinn gefur frá sér hormónið þýroxín sem stjórnar efnaskiptum líkamans. Ef röskun verður á framleiðslu þessa mikilvæga hormóns minnkar það grunnefnaskipti líkamans. Líkami okkar er þannig úr garði gerður að hann bregst við með því að spara orku sem aftur veldur þreytu. Steinefni og snefilefni eins og magnesíum, mangan, selen og joð geta haft áhrif á framleiðslu skjaldkirtilsins á þýroxíni. Ef við fáum of lítið af þessum efnum á skjaldkirtilinn erfiðara með að framleiða þýroxín. Þú ert með hjartabilun Hjartað sér um að blóð flæði óhindrað um blóðrásarkerfi líkamans. Eitt af einkennum hjartabilunar er þreyta og skerðing á þreki því ef röskun verður á þessu mikilvæga starfi hjartans dælir það ekki blóðinu um líkamann á eins skilvirkan hátt og það á að gera. Hjartabilun getur komið fram í kjölfar kransæðastíflu eða hjartaáfalls. Nánar má lesa um einkenni hjartabilunar á vefnum hjartalif.is. Þú ert komin á breytingaskeið Þreyta er eitt af einkennum kvenna á breytingaskeiði en það skal þó tekið fram að einkennin geta verið mjög einstaklingsbundin. Á breytingaskeiði geta orðið breytingar á grunnefnaskiptum líkamans og er vanvirkum skjaldkirtli þá um að kenna. Eins og fjallað er um hér að framan framleiðir vanvirkur skjaldkirtill of lítið af þýroxíni sem aftur leiðir til þreytu. Í umfjöllun Medical Daily kemur fram að breytingar á hormónum geti einnig spilað inn í, til dæmis breytingar á estrógeni og progesteróni í líkamanum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.