Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2016, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2016, Blaðsíða 24
Vikublað 11.–13. október 20168 Allt fyrir bílinn - Kynningarblað Einstakt verkstæði og einstök varahlutaverslun Bíla-Doktorinn Í Skútuvogi 13 er bílavarahluta- verslunin og bílaverkstæðið Bíla-Doktorinn til húsa. Þar er sinnt almennum bílaviðgerð- um og á sama tíma einnig rek- in smurstöð. Rúnar Sigurjónsson, vélvirki og eigandi Bíla-Dokt- orsins, segir fyrirtækið sinni mest Mercedes-Benz, Volkswagen, Audi og Skoda með viðgerðum og varahlutasölu, en þeir smyrji og geri við fjölda annarra bíla- tegunda. Áhersla lögð á gæðavörur „Varahlutaverslun okkar hefur upp á að bjóða marga af algeng- ustu varahlutum fyrir fyrrnefndar tegundir. Við leggjum áherslu á að bjóða upp á gæðavörur sem upp- fylla ströngustu kröfur bifreiðar- eigenda og eftirlitsaðila í Þýska- landi, þaðan sem megin uppistaða af okkar vörum kemur,“ segir Rúnar. „Varhlutaverslunin leggur áherslu á að nota öflug upplýsingakerfi til að gera afgreiðslu varahluta eins ná- kvæma og rétta og mögulegt er,“ bætir hann við. Þekktir fyrir vönduð vinnubrögð Bíla-Doktorinn er ört vaxandi fyrir- tæki sem á stóran hóp tryggra við- skiptavina sem margir hverjir hafa átt farsæl viðskipti við verslun- ina frá upphafi. „Það er markmið okkar að veita viðskiptavinum okk- ar góða þjónustu byggða á þekk- ingu og langri reynslu á viðhaldi og umhirðu hvers kyns bifreiða,“ segir Rúnar. „Okkar aðalsmerki er vönd- uð vinnubrögð sem skila sér í betra umferðaröryggi og áreiðanleika þeirra ökutækja sem við sinnum viðgerðum á og seljum varahluti í,“ segir hann í framhaldinu. Saga á bak við nafn fyrirtækisins Nafn fyrirtækisins var dregið af viðurnefni Rúnars á meðal bíla- áhugamanna. „„Herr doktor“, kalla þeir mig,“ segir Rúnar. Hann hefur unnið nærri alla sína starfsævi við bíla og vinnuvélar og er einn þekkt- asti áhugamaður um Mercedes- Benz á Íslandi en hann hefur haft það að áhugamáli að gera upp og varðveita fornbifreiðar af þeirri gerð. En einnig á hann einn bíl í hópi þeirra elstu hér á landi, Chevrolet árgerð 1931. Bjóða upp á almennar bílaviðgerðir „Við bjóðum upp á flestallar al- mennar bílaviðgerðir,“ segir Rúnar. „Öll umskipti á slithlutum og lag- færingar á biluðu gangverki er eitt- hvað sem er okkar daglega starf. Þó svo að við bjóðum flestar gerðir bíla velkomnar í viðgerð þá höf- um við að mestu leyti sérhæft okk- ur í Mercedes-Benz, Volkswagen, Skoda og Audi eins og áður sagði og búum við því yfir nokkurri sér- þekkingu á þeim,“ segir Rúnar. Hjá Bíla-Doktornum eru fimm starfs- menn; tveir bifvélavirkjar, tveir vél- virkjar og einn starfsmaður sinnir móttöku og varahlutaverslun. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.