Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2016, Blaðsíða 24
Vikublað 11.–13. október 20168 Allt fyrir bílinn - Kynningarblað
Einstakt verkstæði og
einstök varahlutaverslun
Bíla-Doktorinn
Í
Skútuvogi 13 er bílavarahluta-
verslunin og bílaverkstæðið
Bíla-Doktorinn til húsa. Þar er
sinnt almennum bílaviðgerð-
um og á sama tíma einnig rek-
in smurstöð. Rúnar Sigurjónsson,
vélvirki og eigandi Bíla-Dokt-
orsins, segir fyrirtækið sinni mest
Mercedes-Benz, Volkswagen,
Audi og Skoda með viðgerðum
og varahlutasölu, en þeir smyrji
og geri við fjölda annarra bíla-
tegunda.
Áhersla lögð á gæðavörur
„Varahlutaverslun okkar hefur
upp á að bjóða marga af algeng-
ustu varahlutum fyrir fyrrnefndar
tegundir. Við leggjum áherslu á að
bjóða upp á gæðavörur sem upp-
fylla ströngustu kröfur bifreiðar-
eigenda og eftirlitsaðila í Þýska-
landi, þaðan sem megin uppistaða
af okkar vörum kemur,“ segir Rúnar.
„Varhlutaverslunin leggur áherslu á
að nota öflug upplýsingakerfi til að
gera afgreiðslu varahluta eins ná-
kvæma og rétta og mögulegt er,“
bætir hann við.
Þekktir fyrir vönduð
vinnubrögð
Bíla-Doktorinn er ört vaxandi fyrir-
tæki sem á stóran hóp tryggra við-
skiptavina sem margir hverjir hafa
átt farsæl viðskipti við verslun-
ina frá upphafi. „Það er markmið
okkar að veita viðskiptavinum okk-
ar góða þjónustu byggða á þekk-
ingu og langri reynslu á viðhaldi og
umhirðu hvers kyns bifreiða,“ segir
Rúnar. „Okkar aðalsmerki er vönd-
uð vinnubrögð sem skila sér í betra
umferðaröryggi og áreiðanleika
þeirra ökutækja sem við sinnum
viðgerðum á og seljum varahluti í,“
segir hann í framhaldinu.
Saga á bak við nafn
fyrirtækisins
Nafn fyrirtækisins var dregið af
viðurnefni Rúnars á meðal bíla-
áhugamanna. „„Herr doktor“, kalla
þeir mig,“ segir Rúnar. Hann hefur
unnið nærri alla sína starfsævi við
bíla og vinnuvélar og er einn þekkt-
asti áhugamaður um Mercedes-
Benz á Íslandi en hann hefur haft
það að áhugamáli að gera upp og
varðveita fornbifreiðar af þeirri
gerð. En einnig á hann einn bíl
í hópi þeirra elstu hér á landi,
Chevrolet árgerð 1931.
Bjóða upp á almennar
bílaviðgerðir
„Við bjóðum upp á flestallar al-
mennar bílaviðgerðir,“ segir Rúnar.
„Öll umskipti á slithlutum og lag-
færingar á biluðu gangverki er eitt-
hvað sem er okkar daglega starf.
Þó svo að við bjóðum flestar gerðir
bíla velkomnar í viðgerð þá höf-
um við að mestu leyti sérhæft okk-
ur í Mercedes-Benz, Volkswagen,
Skoda og Audi eins og áður sagði
og búum við því yfir nokkurri sér-
þekkingu á þeim,“ segir Rúnar. Hjá
Bíla-Doktornum eru fimm starfs-
menn; tveir bifvélavirkjar, tveir vél-
virkjar og einn starfsmaður sinnir
móttöku og varahlutaverslun. n