Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2016, Side 32
Vikublað 11.–13. október 201624 Lífsstíll
Retor Fræðsla - Hlíðasmára 8, Kópavogi - Sími: 519 4800 - www.retor.is
„Gerum
íslensku
að leiðandi
tungumáli á
vinnustöðum!
Aneta M. Matuszewska
skólastjóri og eigandi
Retor Fræðslu
Mekka íssins
Erum í miðbæ
Hveragerðis
Ís í vél, 4 tegundir | Kúluís
Pinnaís | Krap | Bragðarefur
Ísfrappó | Sælgæti | Franskar
Samlokur | Gos | Snakk
Bland í poka | Pylsur | Kaffi
Opnunartími
mán-fim 10 - 21 / fös 10 - 22
lau 12 - 22 og sun 12 - 21 Breiðamörk 10, Hveragerði
Fimm ástæður stöðugrar þreytu
Þú þjáist af
kæfisvefni
Dagsyfja, þreyta og ein-
beitingarskortur í vöku geta bent til
kæfisvefns sem er algengur kvilli,
einkum hjá fullorðnum körlum í
ofþyngd. Talið er að sex af hverjum
hundrað körlum fái sjúkdóminn en
tvær af hverjum hundrað konum. Ein-
kenni kæfisvefns eru öndunartruflanir
í svefni og er algengast að truflanirnar
komi fram sem öndunarhlé sem varir
í nokkrar sekúndur í senn. Til að fá úr
því skorið hvort þú þjáist af kæfisvefni
er nauðsynlegt að fara í rannsókn
þar sem fylgst er með öndun og
súrefnismettun.
Þú þjáist
af blóðleysi
Þreyta á daginn, jafnvel þótt þú
sofir og hvílist ágætlega, gæti bent
til blóðleysis. Á vef doktor.is kemur
fram að blóðleysi feli í sér skort á
rauðum blóðkornum, en þau vinna
til dæmis súrefni í lungunum og skila
því til frumna líkamans. Blóðleysi
getur haft í för með sér að blóðið á
erfiðara með að flytja súrefni um
líkamann sem aftur gerir það að
verkum að frumurnar sem færa
okkur orkuna til daglegra athafna fá
ekki nóg súrefni.
Kæfisvefn eða blóðleysi gæti verið að plaga þig
Ö
ll þekkjum við það að finna
fyrir þreytu í byrjun vinnuvik-
unnar og stundum tekur það
ótal klukkutíma að koma sér
af stað, jafnvel þó að maður hafi
sofið sína átta tíma. Það er fleira
en lítill svefn sem getur haft áhrif
á það hvort fólk er þreytt. Vefritið
Medical Daily tók saman lista yfir
fimm algeng atriði sem gætu verið
að plaga fólk ef það finnur stöðugt
fyrir þreytu. n
Skjaldkirtillinn
starfar ekki eðlilega
Skjaldkirtillinn gefur frá sér hormónið þýroxín sem stjórnar efnaskiptum
líkamans. Ef röskun verður á framleiðslu þessa mikilvæga hormóns
minnkar það grunnefnaskipti líkamans. Líkami okkar er þannig úr garði
gerður að hann bregst við með því að spara orku sem aftur veldur þreytu.
Steinefni og snefilefni eins og magnesíum, mangan, selen og joð geta
haft áhrif á framleiðslu skjaldkirtilsins á þýroxíni. Ef við fáum of
lítið af þessum efnum á skjaldkirtilinn erfiðara með að
framleiða þýroxín.
Þú ert með
hjartabilun
Hjartað sér um að blóð flæði
óhindrað um blóðrásarkerfi líkamans.
Eitt af einkennum hjartabilunar er þreyta
og skerðing á þreki því ef röskun verður á þessu
mikilvæga starfi hjartans dælir það ekki blóðinu
um líkamann á eins skilvirkan hátt og það á að
gera. Hjartabilun getur komið fram í kjölfar
kransæðastíflu eða hjartaáfalls. Nánar má lesa
um einkenni hjartabilunar á vefnum hjartalif.is.
Þú ert komin á
breytingaskeið
Þreyta er eitt af einkennum kvenna á breytingaskeiði
en það skal þó tekið fram að einkennin geta verið
mjög einstaklingsbundin. Á breytingaskeiði geta
orðið breytingar á grunnefnaskiptum líkamans og er
vanvirkum skjaldkirtli þá um að kenna. Eins og fjallað
er um hér að framan framleiðir vanvirkur skjaldkirtill
of lítið af þýroxíni sem aftur leiðir til þreytu. Í umfjöllun
Medical Daily kemur fram að breytingar á hormónum
geti einnig spilað inn í, til dæmis breytingar á estrógeni
og progesteróni í líkamanum.