Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2016, Side 10
Vikublað 11.–13. október 201610 Fréttir
Þ
etta var tilraun sem náði
ekki alla leið en olli því að
fólk lítur jákvætt á rafbíla í
dag,“ segir athafnamaðurinn
Gísli Gíslason, eigandi raf-
bílasölunnar Even hf., sem úrskurðuð
var gjaldþrota þann 21. september
síðastliðinn. Gísli og Even voru frum-
kvöðlar á sviði innflutnings og sölu
á rafbílum hér á landi og höfðu frá
upphafi það háleita markmið að raf-
bílavæða Ísland.
Gjaldþrot Even má að sögn Gísla
rekja til 50 bíla sem pantaðir höfðu
verið, en aldrei skiluðu sér til Evrópu
og Íslands til afhendingar á réttum
tíma. Fyrirtækið hafi ekki haft bol-
magn til að lifa af slíkar tafir. Hann
segir margt hafa breyst síðan Even
hóf rafbílabyltinguna fyrir alvöru á
Íslandi, sem nú er komin á fulla ferð,
og kveðst líta svo á að hann eigi smá
þátt í þeim árangri sem náðst hefur á
undanförnum árum.
Tafir reyndust banabitinn
Það var í lok árs í fyrra sem Even
hætti starfsemi að sögn Gísla vegna
erfið leikanna, en fyrirtækið hafði þá
meðal annars verið með sýningarsal
í Smáralind í Kópavogi og Gísli um
árabil barist fyrir því að vekja athygli
á kostum rafbíla hér á landi.
„Þá höfðum við átt von á bílum
sem komu ekki, það var m.a. mikil
töf á Model X hjá Teslu þannig að við
lifðum það ekki af. Við erum auðvit-
að bara að gera þetta sjálfir fyrir eig-
in pening þannig að við höfðum ekki
þol í bið. Við áttum 50 bíla í pöntun
sem komu ekki. Þetta voru bílar sem
áttu að koma fyrir ári þannig að vænt-
anlegir kaupendur bara afpöntuðu,
skiljanlega, því fólk getur ekki beðið
endalaust eftir bílunum sínum. Menn
keyptu sér bara aðra bíla. Það fór mik-
ið púður í að selja þessa bíla, það er
dýrt að selja bíl en þegar þú færð þá
ekki og getur ekki afhent þá, þá er það
vesen. En þetta er eins og gengur og
það þýðir ekkert að væla.“
Selt fyrir hálfan milljarð
Even hafði meðal annars flutt inn og
selt Tesla Model S-lúxusrafbílana sem
gátu kostað á bilinu 12–18 milljónir
króna stykkið. Gísli segir að Even hafi
náð að selja 50 Tesla-rafbíla á fyrstu
árunum sem þeir voru til sölu hér á
landi þar til fyrirtækið hætti starfsemi.
Áætla má því að hér á landi hafi Ís-
lendingar keypt Tesla-rafbíla fyrir að
minnsta kosti hálfan milljarð og ljóst
að markaður og eftirspurn var fyrir
öðru eins til viðbótar.
Gjörbreytt viðhorf
Þrátt fyrir að Even- rafbílaævintýrið
hafi endað með þessum hætti þá er
ljóst að sem frumkvöðlar á mark-
aði hafi Gísli og félagar átt sinn þátt
í þeirri vitundarvakningu sem orðið
hefur meðal Íslendinga um ágæti raf-
bíla.
„Þetta eru fyrstu mánuðirnir sem
ég sé að allir eru orðnir mjög jákvæð-
ir í garð rafbíla. Þegar við byrjuðum
þá var litið á okkur sem skrýtna að
vera að standa í þessu. Ég er allavega
mjög ánægður með að þetta hafi skil-
að því að Ísland verður rafbílavætt.
Nú tók ég eftir því að Orkusalan er að
gefa öllum sveitarfélögum landsins
hleðslustöð fyrir rafbíla, sem er frá-
bært. Fyrir tveimur árum vildu menn
ekki einu sinni setja upp staura. Það
hefur margt breyst og ég er ánægður
með það. Þegar við byrjuðum fluttum
við inn rafbíl númer 10 til Íslands, og
ætli þeir séu ekki orðnir um þúsund í
dag. Það þarf ekki lengur að segja að
rafbílar séu umhverfisvænni. Rafbílar
eru einfaldlega betri en bensínbílar,“
segir Gísli og bendir á að Þjóðverj-
ar hafi á dögunum stigið mikilvægt
skref með pólitískri ákvörðun um
að samþykkja að banna bensín- og
dísilbílaframleiðslu frá og með árinu
2030. Ákvörðun sem gæti haft víðtæk
áhrif um allt Evrópusambandið, sem
og víðar.
„Þannig að ef einhver er að hugsa
um framtíðina þá er hann ekki að
fara að setja peninga í að þróa bens-
ínbílinn betur. Allt svona tekur tíma
og er erfitt og ég hefði svo sannar-
lega viljað að öll plönin hefðu geng-
ið upp, en það eru aðrir sem taka við
keflinu. Það er orðið ljóst að nær öll
bílaumboðin leggja áherslu á þetta í
dag, sem var ekki þegar við byrjuðum,
þannig að það er mjög jákvætt,“ segir
Gísli og bendir á að Even hafi komið
því af stað að umboðin fóru að flytja
inn rafbíla líka, enda hafi Even flutt
inn fjölmargar tegundir rafbíla aðrar
en Tesla.
Mun áfram berjast fyrir rafbílnum
Rafbílum hefur fjölgað talsvert í um-
ferð hér á landi á umliðnum árum.
Aðspurður hvort hann eigni sér ein-
hvern þann árangur sem náðst hef-
ur segir Gísli að hann geti ekki neitað
því. „Ég held ég eigi smá þátt í þessu.
Þó að við höfum ekki náð að lifa af til
að sjá þetta fara á fulla ferð þá áttum
við allavega þátt í því.“
En hefur hann, sem einn helsti
talsmaður rafbíla á Íslandi, þá lokið
leik á þessum vettvangi í ljósi gjald-
þrots Even?
„Nei, ég ætla áfram að fylgjast með
að þetta haldi áfram hér á Íslandi og
reyna að stuðla að því með öllum
hætti.“
Rafbílaæði með Model 3
Nýverið kynnti Tesla fyrir umheim-
inum áform sín um Model 3, raf-
bílinn sem beðið er með mikilli eft-
irvæntingu og hundruð þúsunda
pantana voru gerðar fyrir þennan
Sími: 562 5900
www.fotomax.is
Yfirfærum
yfir 30 gerðir
myndbanda,
slides og
fleira
Björgum
minningum
Persónulegar
gjafir við öll
tækifæri
Allt til að
merkja
vinnustaðinn
„Þó að
við höf-
um ekki náð
að lifa af til að
sjá þetta fara
á fulla ferð þá
áttum við alla-
vega þátt í því
Draumur um rafbílavæðingu Gísli
Gíslason átti sér þann draum að rafbílavæða
Ísland með rafbílasölunni Even hf. Fyrir tækið
hefur nú verið úrskurðað gjaldþrota en rafbíll-
inn en kominn til að vera. MynD SiGTRyGGuR ARi
Tesla-bílar sem
aldrei komu bundu
enda á rafbílaævintýrið
n Dreymdi um að rafbílavæða Ísland n Even hf. í þrotn Breyttu hugarfari Íslendinga til rafbíla
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is