Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2016, Qupperneq 18
Vikublað 11.–13. október 20162 Allt fyrir bílinn - Kynningarblað
Frí umfelgun fyrir
þá sem kaupa dekk
Bílastofan opnar nýtt og glæsilegt verkstæði í Funahöfða 6
B
Bílastofan hefur opnað nýtt
og glæsilegt bifreiða- og
dekkjaverkstæði að Funa-
höfða 6, Reykjavík, en áður
hefur Bílastofan starfað
með glæsibrag í Reykjanesbæ. Þar
er hægt að fá dekk á hagstæðara
verði en gengur og gerist án þess að
slakað sé á gæðakröfum.
„Nagladekk undir bílinn kosta
núna frá 44.000 krónum. Þetta er
sama verð og þú borgaðir fyrir tíu
árum. Við erum í þeirri aðstöðu að
geta boðið dekk sem eru mun ódýr-
ari en flest önnur dekk á markaðn-
um en um leið mjög vönduð. Hjá
þeim aðilum sem hafa verið að
skipta við mig hefur dekkjakostn-
aður fallið um meira en helming,“
segir Sigurður Friðriksson, eigandi
Bílastofunnar, sem hefur verið starf-
andi í Reykjanesbæ í eitt ár, en fyrir
nokkrum dögum opnaði Bílastofan
nýtt og glæsilegt verkstæði að Funa-
höfða 6 í Reykjavík, beint á móti AB
varahlutum.
Dekkin sem Bílastofan býður eru
frá Infinity og eru framleidd í einni
af elstu dekkjaverksmiðjum í Kína.
Verðið er frábært og gæðin rómuð
en nákvæmar upplýsingar um verð
er að finna á heimasíðunni bilastof-
an.is.
Í tilefni af opnum verkstæðisins
að Funahöfða 6 býður Bílastofan nú
fría umfelgun fyrir þá sem kaupa
fjögur dekk undir bílinn. Það er líka
hægt að koma með eigin dekk og
láta umfelga fyrir um 5.000 krónur.
Enn fremur býður Bílastofan
upp á það að bíllinn sé sóttur heim
til eigandans og honum skilað aft-
ur á nýjum dekkjum - gegn vægu
gjaldi.
Bílastofan er í senn dekkja-
verkstæði og almennt bílaverk-
stæði. Fyrirtækið hefur notið mik-
illar velgengni á Suðurnesjum og
meirihluti af bílaleigum á svæðinu
skiptir við Bílastofuna enda er mjög
hagstætt að hafa dekkin frá Infinity
undir bílum. Sigurður Friðriksson
rekur sjálfur bílaleigur og þarf að
hafa verkstæði til að halda þeim bíl-
um við. Starfsmenn á Bílastofunni
að Funahöfða eru fjórir.
Bílastofan er með negld dekk,
ónegld dekk og heilsársdekk og
býður jafnframt upp á burðardekk á
hagstæðu verði en það færist í vöxt
að notendur þungra atvinnubíla
leiti til Bílastofunnar varðandi dekk
undir bílinn, til að lækka kostnað
um leið og gæði eru tryggð. n
Bílastofan í Reykjanesbæ er stað-
sett að Njarðarbraut 11 í Reykjanes-
bæ en í Reykjavík að Funahöfða
6 eins og áður segir. Opið er virka
daga frá kl. 8 til 17 og á laugardög-
um frá 10 til 14. Símanúmer eru
562-1351 og 861-2319.
Nánari upplýsingar á Facebook-
síðu Bílastofunnar.