Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2016, Page 20
Vikublað 11.–13. október 20164 Allt fyrir bílinn - Kynningarblað
Fallegri felgur, hagstæðara
dekkjaverð, persónuleg þjónusta
Bíleigendur koma aftur og aftur í Dekkjahúsið
D
ekkjahúsið leggur áherslu á
persónulega heildarþjón
ustu þar sem Eiður Örn
stýrir skútunni með sína 40
ára reynslu og þess vegna
leita viðskiptavinir til Dekkja
hússins aftur og aftur. Áherslan er
á dekk, felgur og þá þjónustu sem
fylgir en fyrirtækið gætir þess að
sérhæfa sig á sínu sviði fremur en
að víkka út starfsemina.
„Fólk kemur hingað til að kaupa
nýjar felgur, við erum með gott úr
val og hagstætt verð. Mikill sala
hefur verið í nýjum bílum síðast
liðna mánuði og margir hverjir vilja
eiga þann kost að kaupa nýjar ál
felgur fyrir vetrardekkin og eiga þá
sumardekkin á upprunalegu felg
unum. Þar komum við mjög sterkir
inn með mikið úrval. Það er gaman
að geta boði fólki þennan valkost
og þetta er vinsæl leið til að breyta
útliti bílsins milli árstíða,“ segir
Eiður Örn.
Dekkjahúsið er með mikið úr
val dekkja af öllum stærðum og
gerðum, fyrir fólksbíla, jeppl
inga og jeppa. Heilsársdekk, negld
og ónegld dekk frá öllum helstu
framleiðendum, til dæmis Han
kook, Cooper, Nokian, Sailun og
mörgum fleirum. Dekkjahúsið er
í samstarfi við öll stærstu vöruhús
Evrópu sem tryggir gæðavöru á frá
bæru verði. „Góð þjónusta er lykil
atriði hjá okkur og þannig tryggj
um við orðspor okkar. Eldra fólkið
kemur til okkar aftur og aftur og svo
fylgja hinir yngri með því orðsporið
berst. Stórt er ekki alltaf það besta
því það er dýrt og ópersónulegt. Við
erum eingöngu í dekkjum og felg
um og meðfylgjandi þjónustu og
kappkostum að gera vel við okkar
viðskiptavini. Þess vegna koma við
skiptavinirnir aftur og aftur,“ segir
Eiður Örn. n
Dekkjahúsið er að Dalbrekku 17
Kópavogi. Síminn er 553-3100, net-
fangið er dekkjahusid@dekkjahusid.
is, heimasíða dekkjahusid.is.