Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2016, Síða 28
Vikublað 11.–13. október 201620 Menning
B
réf Jóns Thoroddsen er bók
sem Sögufélagið gefur út
í ritstjórn Más Jónssonar.
Jón Thoroddsen (1818–
1868) er þekktastur fyrir
skáldsögur sínar Pilt og stúlku frá
1850 og Mann og konu, sem kom
út að honum látnum árið 1876.
Mörg ljóða hans njóta einnig vin-
sælda. Hann var lengi sýslumaður í
Barðastrandarsýslu og Borgarfirði.
Í bókinni eru einkabréf til Jóns og
frá honum ásamt úrvali embættis-
bréfa hans.
Ritstjóri verksins, Már Jónsson
sagnfræðingur, segist lengi haft
áhuga á Jóni Thoroddsen, sem var
langalangafi hans. „Afkomendur
Elínar, dóttur Jóns, höfðu sam-
band við mig rétt fyrir jólin 2013 eft-
ir að hafa fundið nokkur bréfa hans
í skókassa og báðu mig að líta á
þau. Þarna leyndust meðal annars
bréf sem Jón skrifaði Elínu dóttur
sinni. Hann hafði ungur maður
eignast Elínu með Ólöfu Hallgríms-
dóttur Thorlacius, sem hann ætlaði
að kvænast. Hún giftist seinna öðr-
um manni. Þarna var líka eitt bréf
sem Jón hafði skrifað Ólöfu. Þetta
eru hjartnæm og áhugaverð bréf og
mér fannst að þau yrðu að komast á
prent. Ég fór líka að skoða hvað væri
til af bréfum Jóns, fór á handrita- og
skjalasöfn og leitaði og fann að ég
held allt sem til er frá honum, þótt
auðvitað sé ekki útilokað að eitthvað
eigi eftir að finnast.
Jón hafði ekki haldið til haga
bréfasafni sínu, eins og algengt var
að menn gerðu á hans tíma, það eru
bara til slitrur af hans gögnum. Til að
bæta þetta upp fór ég í embættisbæk-
ur hans sem eru á Þjóðskjalasafni
og fann bréf sem hann skrifaði sem
sýslumaður í sextán ár. Flest fjalla
um tekjur og skatta en það tíndist til
slatti bréfa sem sýna karakter hans,
eins og reiðilestur um hundahald og
skammir hans til hreppstjóra sem
ekki sýndu honum nægilega auð-
mýkt. Ég fann líka pappíra frá móð-
ur hans og á héraðsskjalasafninu í
Borgarnesi voru áhugaverð bréf frá
Elínu dóttur hans sem ég birti í bók-
inni. Á endanum urðu þetta tæp 150
bréf og úr varð 300 síðna bók.“
Hvað er merkilegast í þessum bréf-
um?
„Þetta eru alls konar bréf. Bréfin
til Elínar eru sérlega áhugaverð
og mjög hjartnæm. Hún fæddist
9. ágúst 1841 og Jón er kominn til
Kaupmannahafnar í október sama ár
og fer að lesa lög við háskólann þar,
þannig að alls óvíst er að hann hafi
séð dóttur sína. Hann hefur síðan
samband við Elínu þegar hún er 19
ára og skrifar mjög fallega til hennar.
Honum er annt um velferð hennar,
afsakar vanrækslu sína og reynir að
bæta hana upp. Það fór reyndar svo
að Elín bjó hjá honum á Leirá síð-
ustu árin sem hann lifði.
Jón kvæntist Kristínu Ólínu Þor-
valdsdóttur Sívertsen frá Hrappsey
árið 1854 og þau hjón eignuðust átta
börn á tíu árum og fjögur þeirra dóu.
Hann skrifar stundum um börnin
og hefur áhyggjur af konu sinni sem
glímdi við erfið veikindi.“
Hvernig maður var Jón Thoroddsen?
„Honum er lýst sem skemmti-
legum, fyndnum og hrifnæmum
manni. Hann var hins vegar frekur
og gat verið harður í horn að taka,
leit stórt á sig og samtímamenn töl-
uðu um embættishroka. Hann var
fyrirferðarmikill í embætti en ekki
atkvæðamikill í landsmálum, reyndi
þó að komast á þing en tókst ekki.
Það er talað um það að hann hafi
verið drykkfelldur og líklega verður
að viðurkennast að svo var. Á Þjóð-
skjalasafni eru til dæmis reikningar
sem sýna að hann var daglegur
gestur á öldurhúsi einu þegar hann
kom til Reykjavíkur og fékk sér þar
toddí, snafs og púrtvín. Fjárhagurinn
var erfiður og hann dó gjaldþrota, 49
ára gamall, slitinn og þreyttur.“
Skrifaði hann mikið um skáld-
skap sinn í bréfum til fólks?
„Nei, sáralítið. Hann hélt dagbæk-
ur í ein tíu ár og skrifar bara einu sinni
um ritstörf. Það var 1. mars 1854 og
var hann þá í Kaupmannahöfn til að
ljúka laganámi: „Byrja ég að skrifa
Roman“. Strax daginn eftir skrifar
hann: „Hætti við aftur“. Þegar önn-
ur útgáfa á Pilti og stúlku kom út árið
1867 skrifar hann nokkuð um það í
bréfum. Haustið 1867 nefnir hann
líka í bréfum að hann sé að vinna í
Manni og konu, sem hann ýmist kall-
aði Hlíðarfólkið eða Karl og kerlingu,
en sú saga var tilbúin að tveimur
þriðju hlutum þegar hann dó.“
Af hverju skrifar hann svona lítið
um skáldskapinn?
„Hann var aðallega í bréfaskrift-
um við karla sem höfðu engan áhuga
á skáldskap. Hann sinnti ritstörfum
í hjáverkum, en var þá alltaf að, eins
og varðveitt handrit að ljóðum hans
bera vitni. Í einu bréfinu til Elínar
kemur fram að hann sé á kafi í emb-
ættisönnum og búskap á daginn, auk
þess sem hann þurfti að sinna gest-
um, „en á nóttinni verð ég að hugsa,“
segir hann. n
„Á nóttinni
verð ég að
hugsa“
n Bréf Jóns Thoroddsen eru komin út á bók n Már Jónsson er ritstjóri verksins
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is „Þetta eru hjart-
næm og áhugaverð
bréf og mér fannst að þau
yrðu að komast á prent.
Jón Thoroddsen Honum er lýst sem skemmti-
legum, fyndnum og hrifnæmum manni.
Már Jónsson
„Á endanum
urðu þetta
tæp 150 bréf
og úr varð 300
síðna bók.“
Mynd SigTryggur Ari
( 893 5888
Persónuleg
og skjót
þjónusta
þú finnur
okkur á
facebook