Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2016, Page 30
Vikublað 11.–13. október 201622 Menning
BB | |
BB BB
BB | BLEMISH BAL
M
THE ORIGINAL
Light
Classic
Honey|
www.schrammek.com
The power of medical beauty.
Útsölustaðir
Verði þinn vilji snyrti og nuddstofa Borgartún 3 Reykjavík / Heilsa og útlit Hlíðasmára 17 Kópavogi / Deluxe snyrti og dekurstofa Glæsibæ
Nánari upplýsingar: www.vilja.is
Dregur úr bólgum í
húð og róar húðina
Örvar endurnýjun húðar
Hylur háræðaslit,
stórar húðholur,
roða og litabreytingar
Sótthreinsandi
Gott á sólbruna,
brunasár og
önnur sár
Gott á bólur
Góður hyljari
Hentar öllum
húðgerðum
www.schrammekshop.com
erði þinn vilji snyrti- li lí rs ára i - og dekurstofa Glæsib
Snyrtistofan Tulip Hæðasmára 6 Kópavogi / Pandora snyrti- og fót ðgerðastofa Þangbakka 8-10 Reykjavík
Nánari upplýsingar: www.vilja.is
BB | |
BB BB
BB | BLEMISH BAL
M
THE ORIGINAL
Light
Classic
Honey|
www.schrammek.com
The power of medical beauty.
Útsölustaðir
Verði þinn vilji snyrti og nuddstofa Borgartún 3 Reykjavík / Heilsa og útlit Hlíðasmára 17 Kópavogi / Deluxe snyrti og dekurstofa Glæsibæ
Nánari upplýsingar: www.vilja.is
Dregur úr bólgum í
húð og róar húðina
Örvar endurnýjun húðar
Hylur háræðaslit,
stórar húðholur,
roða og litabreytingar
Sótthreinsandi
Gott á sólbruna,
brunasár og
önnur sár
Gott á bólur
Góður hyljari
Hentar öllum
húðgerðum
www.schrammekshop.com
erði þinn vilji snyrti- li lí rs ára i - og dekurstofa Glæsib
Snyrtistofan Tulip Hæðasmára 6 Kópavogi / Pandora snyrti- og fót ðgerðastofa Þangbakka 8-10 Reykjavík
Nánari upplýsingar: www.vilja.is
B |B |
BB BB
BB | BLEMISH BAL
M
THE ORIGINAL
Light
Classic
Honey|
www.schrammek.com
The power of medical beauty.
Útsölustaðir
Verði þinn vilji snyrti og nuddstofa Borgartún 3 Reykjavík / Heilsa og útlit Hlíðasmára 17 Kópavogi / Deluxe snyrti og dekurstofa Glæsibæ
Nánari upplýsingar: www.vilja.is
Dregur úr bólgum í
húð og róar húðina
Örvar endurnýjun húðar
Hylur háræðaslit,
stórar húðholur,
roða og litabreytingar
Sótthreinsandi
Gott á sólbrun ,
brunasár og
önnur sár
Gott á bólur
Góður hyljari
Hentar öllum
húðgerðum
www.schrammekshop.com
erði þinn vilji snyrti- li lí rs ára i - og dekurstofa Glæsib
Snyrtistofan Tulip Hæðasmára 6 Kópavogi / Pandora snyrti- og fót ðgerðastofa Þangbakka 8-10 Reykjavík
Nánari upplýsingar: www.vilja.is
Útsölustaðir
Verði þinn vilji
Snyrti- og nuddstofa.
Borgartún 3, Reykjavík
Heilsa og útlit
Hlíðarsmára 17, Kópavogi
Deluxe snyrti-
og dekurstofa
Glæsibæ
Snyrtistofan Tulip
Hæðasmára 6, Kópavogi
Pandora snyrti- og
fótaðgerðastofa
Þangbakka 8-10 Reykjavík
Nánari upplýsingar:
www.vilja.is
Í
þessari viku hefjast tökur á stutt-
myndinni Human Love, loka-
verkefni Jimmy Salinas af tækni-
deild Kvikmyndaskóla Íslands.
Myndin sem fjallar um sam-
skipti indjána og víkinga í fornleg-
um fantasíuheimi byggir að nokkru
leyti á upplifun leikstjórans sem
innflytjandi, en Jimmy flutti til Ís-
lands frá Kólumbíu fyrir 11 árum.
„Myndin fjallar mikið um hvern-
ig við, mannkynið, ættum að meta
hvert annnað, hvernig við getum
lært að meta sérhverja manneskju.
Hvernig ég næ að elska manneskju,
hvernig við eigum eitthvað sameig-
inlegt, þú og ég, þó að við þekkju-
mst ekkert og hvernig við getum
þróað með okkur vináttu, en ekki
bara farið í einhvern misskilning og
orðið hrædd – eins og fólk verður
stundum,” segir Jimmy.
Um 30 manns koma að gerð
myndarinnar, bæði samnemend-
ur úr skólanum og reynsluboltar úr
kvikmyndabransanum, en það er
Aldís Amah Hamilton með fer með
aðalhlutverkið.
„Sagan segir frá þremur stelpum
sem ferðast til að leita nýrra landa
og athuga hvort hægt sé að búa í allt
öðru landi. Þær uppgötva nýtt land
sem er svolítið eins og Ísland, það er
kalt og það er mikill vindur. Þarna
eru hlutir sem þær hafa ekki upplif-
að áður. Þetta norræna land er ein-
hvers konar álfaheimur, þar eru álf-
ar í víkingastíl. Þessi ferð gerist því í
einhvers konar fantasíuheimi.“
Í myndinni blandar Jimmy
saman tveimur ólíkum fornum
menningarheimum, hinum suður-
amerísku indjánum og norrænum
víkingum, og má segja að þessir
tveir hópar séu tákn fyrir hin ólíku
heimalönd hans.
„Myndin er unnin út frá minni
eigin upplifun af Íslandi. Ég fer
alltaf að vinna út frá því hvaðan ég
kem, hver ég er og hvert ég hef fært
mig í heiminum. Ég var fimmtán
ára þegar ég kom hingað. Myndin
fjallar að hluta til um það hversu
erfitt það er að koma til nýs lands
og tengjast umhverfi sínu. Það er
þó líka gaman, ákveðin spenna í
því, maður er forvitinn að upplifa
eitthvað nýtt. En svo er það mjög
mismunandi eftir einstaklingum
hvernig þeir takast á við það, sum-
ir missa jafnvel vitið. Ég fæst svolítið
við þetta í myndinni, þar eru sum-
ir alveg að gefast upp á landinu á
meðan aðrir vilja berjast áfram: „jú,
ég get þetta!““
Í fyrri verkum sínum hefur
Jimmy einnig unnið með reynslu
sína sem innflytjandi á Ísland. „Ég
var að klára stutta heimildamynd
sem nefnist „Ég tala íslensku … með
hreim.“ Hún fjallar um þolinmæð-
ina sem Íslendingar þurfa að sýna
til að hlusta á fólk tala íslensku með
hreim,“ útskýrir hann.
„Ég held að Íslendingar séu al-
mennt frekar þolinmóðir, en þetta
tekur allt tíma. Undanfarin hundrað
ár hefur lítið af útlendingum kom-
ið til íslands, en á undanförnum
árum hefur þeim fjölgað mikið.
Fyrstu árin hér á landi fann ég fyrir
því að ekki allir áttuðu sig á því að
fólk gæti ekki komið hingað og talað
tungumálið reiprennandi. En eftir
hrunið fannst mér þetta breytast. Ég
veit ekki af hverju, kannski af því að
Fantasía byggð á reynslu
leikstjórans sem innflytjandi
Jimmy Salinas etur saman indjánum og víkingum í stuttmyndinni Human Love
B
lái hnötturinn var ný-
lega frumsýndur á
stóra sviði Borgar-
leikhússins. Þetta er
í annað skipti sem leikgerð
Sögunnar af bláa hnettinum
eftir Andra Snæ Magnason
er sviðsett hér á fjölum at-
vinnuleikhúss en þessi frá-
bæra saga fagnar líklega 17
ára útgáfuafmæli sínu um
þessar mundir.
Verkið fjallar um börn sem búa í
friði frá fullorðnum á bláa hnettin-
um. Þau ráða lífi sínu algjörlega sjálf
og allt gengur að óskum þar til Gleði-
glaumur lendir á plánetunni. Hann
minnir um margt á Loka Laufeyj-
arson, þetta er slægur kaupmaður
og mikill bragðarefur. Hann galdr-
ar fram tilbúnar þarfir fyrir börnin
og ginnir þau til að láta æsku sína af
hendi í skiptum fyrir kitlandi flugferð-
ir, teflonhúðun og annað prjál. Hon-
um tekst meira að segja að selja þeim
hugmyndina um að negla sólina fasta
uppi á himni svo dagsbirtan yfirgefi
þau aldrei.
Fyrir slysni lenda tvö þessara
barna hinum megin á hnettinum. Þar
ríkir eilíft myrkur síðan sólin hætti að
geta svifið í kringum plánetuna. En í
myrkrinu búa líka börn og aðrar líf-
verur sem höfðu dafnað ágætlega
þangað til sólin hætti að birtast. Eftir
að strandaglóparnir, Brimir og Hulda,
ljúga því að þeim að
sólin sé líka horfin
á þeirra heimaslóð-
um, hjálpa börn-
in í myrkrinu þeim
að komast til baka.
Þar hefst hins vegar
barátta Brimis og
Huldu við sölu-
mennsku Gleði-
glaums og neyslu-
æðið sem runnið er
á hin börnin.
Þetta er tveggja og hálfs tíma sýn-
ing sem borin er uppi af um 20 börn-
um auk Björns Stefánssonar í hlut-
verki Gleði-glaums og tveggja annarra
leikara. Sviðsmyndin er óvenjuleg,
líkust brotlentum regnboga, búninga-
skipti Gleði-glaums minna á tísku-
Umbúðirnar sigra innihaldið
Bryndís Loftsdóttir
ritstjorn@dv.is
Leikhús
Blái hnötturinn
Höfundur: Andri Snær Magnason
Leikstjórn og leikgerð: Bergur Þór Ingólfsson
Tónlist: Kristjana Stefánsdóttir
Danshöfundur: Chantelle Carey
Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir
Búningar: María Th. Ólafsdóttir
Lýsing: Þórður Orri Pétursson
Leikarar: Björn Stefánsson, Hjörtur Jóhann
Jónsson, Guðmundur Elías Knudsen, Gunnar
Hrafn Kristjánsson, Guðríður Jóhannsdóttir,
Erlen Isabella Einarsdóttir og fleiri.
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Indjánar og víkingar Það er ekki á hverjum degi sem fantasíukvikmyndir eru framleiddar
á Íslandi. „Ég var fimmtán
ára þegar ég kom
hingað. Myndin fjallar að
hluta til um það hversu
erfitt það er að koma til
nýs lands og tengjast
umhverfi sínu.
RAGNAR?
Í lok síðasta
mánaðar var til-
kynnt að lista-
verkið This must
be the place eft-
ir Ragnar Kjartans-
son hefði sigrað í samkeppni um
listaverk fyrir flugvöllinn í Bergen
í Noregi. Verkið sem verður sett
upp í hlíðina fyrir ofan flugvöll-
inn næsta vor samanstendur af
sex skærgulum bókstöfum með
nafni borgarinnar og svo spurn-
ingarmerki fyrir aftan: BERGEN?
Stafirnir eru fimm og hálfur metri
og vegur hver þeirra 2,5 tonn.
Dómnefndin segir verkið fela í
sér allt í senn „húmor, spennu,
undrun, væntingar og drauma.“
Þrefaldur Þorvaldur
Þrjár sýningar á verkum fjöllista-
mannsins Þorvalds Þorsteins-
sonar verða opnaðar í Antwerpen
í Belgíu í október, en þar bjó Þor-
valdur frá 2011 og þar til hann
lést árið 2013. Á sýningunum eru
hvort tveggja eldri verk sem hann
vann á dögum sínum í Hollandi
kringum 1987 til 1992 í bland við
nýrri verk sem hann vann á árun-
um 2010 til 2013. Fyrsta opnunin
fór fram í Trampoline galleríinu
þann 8. október, þá verður opnuð
sýning í M HKA nútímalistasafni
borgarinnar þann 13. október og
þriðja opnunin fer fram í listarým-
inu PARISTEXASantwerp þann
14. október.
Guðleysið sigrar
Kvikmyndin Guðleysi
eftir búlgarska
leikstjórann
Ralitza Petrova
hlaut um helgina
Gullna lundann,
aðalverðlaun RIFF,
alþjóðlegrar kvik-
myndahátíðar í Reykjavík.
Kvikmyndin Risinn eftir Johannes
Nyholm úr flokknum Vitranir hlaut
sérstaka viðurkenningu dóm-
nefndar. Myndin Eyjarnar og
hvalirnir í leikstjórn Mike Day var
sigurmynd heimildamyndaflokks-
ins Önnur framtíð. Besta íslenska
stuttmyndin að mati dómnefndar
var Ungar í leikstjórn Nönnu
Kristínar Magnúsdóttur.
Úr listheiminum