Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2016, Blaðsíða 12
Vikublað 18.–20. október 201612 Fréttir
Vilja að sjómenn niðurgreiði
veiðigjöld með launum sínum
n Sjómenn vekja athygli á kröfu SFS um kostnaðarþátttöku n Samþykktu verkfall með meirihluta atkvæða
S
jómenn eru á leið í
ótímabundið verkfall frá og
með 10. nóvember næst-
komandi eftir að það var
samþykkt með miklum
meirihluta atkvæða á mánudag.
Sjómenn hafa verið að stála hnífa
sína í kjarasamningsbaráttunni
undanfarna daga í ljósi yfirstandandi
kosningar um ótímabundið verkfall í
kjölfar þess að þeir felldu kjarasamn-
ing sem undirritaður var 24. júní síð-
astliðinn. Líkt og áður hefur komið
fram hafa samningar sjómanna ver-
ið lausir í sex ár og hafa margir sjó-
menn notað tækifærið til að vekja
athygli á stöðu sinni á samfélags-
miðlum.
Einn liður í því var að vekja
athygli á kröfugerð Samtaka fyrir-
tækja í sjávarútvegi (SFS), áður LÍÚ,
í samningaviðræðunum. Þar vekur
sérstaka athygli krafa SFS um nýjar
og auknar álögur frá stjórnvöldum
til dæmis vegna veiðigjalds verði
dregnar frá aflaverðmæti fyrir skipti.
Þessi kostnaðarþátttaka sjómanna
hefði í för með sér umtalsverða
launalækkun fyrir sjómenn, þar sem
minna yrði eftir til skiptanna af afla-
verðmætum fyrir þá. Krafan er líka
að það sama eigi við um trygginga-,
raforku- og kolefnisgjald. Þessi
krafa SFS hefur auk margra annarra
verið eitt helsta bitbeinið í viðræð-
um og eitthvað sem sjómenn hafa
ekki viljað sætta sig við. Formaður
Sjómannasambands Íslands segir
kröfuna um kostnaðarþátttöku sjó-
manna í veiðigjöldum arfavitlausa.
Þessar kröfur SFS höfðu þó auk
annarra stórra mála verið sett til
hliðar í samningaviðræðunum
sem lauk með undirritun í sumar. Í
samningnum sem felldur var urðu
aðilar sammála og bókað að kostn-
aðarþátttaka sjómanna í veiðigjöld-
um, nýsmíði skipa og sambærileg
ákvæði yrðu rædd, fyrir lok samn-
ingstíma. Eftir stendur þó að þetta
atriði var eitt þeirra aðalmála sem
útgerðarmenn lögðu áherslu á og er
að finna í kröfugerð þeirra.
Hefði lækkað laun um tugi
prósenta
„Þegar veiðigjöldin voru há hefði
það þýtt að laun sjómanna hefðu
lækkað um 30 prósent á einum
degi,“ segir Valmundur Valmunds-
son, formaður Sjómannasambands
Íslands, aðspurður um málið. „Þetta
yrði kannski 15 prósent í dag en það
gerir enginn svona. Fyrir utan að
við sækjum ekki í auðlindina, nema
sem starfskraftur. Við nýtum hana
ekki okkur til hagsældar, að öðru
leyti en því að við vinnum við þetta.
Við fáum ekki hagnað af fyrirtækj-
unum, við fáum ekki hagnað af út-
gerðinni. Ef við fengjum það yrð-
um við kannski reiðubúnir að ræða
að taka þátt í þessu, en það er ekki í
boði,“ segir formaðurinn.
DV fjallaði um það fyrr á þessu
ári hvernig útgerðir fá 10 prósenta
afslátt af launum sjómanna í sjö ár
þegar þær kaupa ný skip. Hið svo-
kallaða nýsmíðaákvæði kjarasamn-
inga þeirra er afar umdeilt með-
al sjómanna enda eru þeir í raun
að greiða fyrir ný skip útgerðanna
úr eigin vasa. Í umfjöllun DV kom
fram að dæmi eru um að áhafnir
skipa hafi skilað 10–12 prósentum af
smíðaverði skipa til útgerðar í formi
launa. Kröfur SFS eru af sama toga
og finnst sjómönnum sem enn eigi
að seilast dýpra í vasa þeirra til að
mæta útgjöldum.
„Þeir geta átt sín auðlindagjöld
sjálfir. Við erum alveg tilbúnir að
standa með þeim í að lækka þau en
að við förum að greiða það fyrir þá
er bara fáránlegt,“ segir Valmundur
sem sagði þegar DV ræddi við hann
fyrir helgi að mikil samstaða væri
meðal sjómanna.
Grjótharðir sjómenn
„Hvert sem maður fer þá eru menn
bara grjótharðir. Þetta gengur ekki
svona lengur. Menn eru búnir að
vera samningslausir í sex ár og við-
kvæðið er alltaf að það sé ekki hægt
að semja við okkur því óvissan í
sjávarútvegi sé svo mikil. Ég sé ekki
annað en að hún verði það næstu
20 árin, eigum við þá bara að vera
samningslausir?“
Sjómenn telja sig hafa á þessum
tíma orðið eftir á mörgum sviðum.
Vissulega hoppi þeir upp og nið-
ur í launum eftir aflaverðmæti en
það séu fleiri sjálfsögð atriði sem
nauðsynlegt sé að breyta.
„Fólkið í landi fær desember- og
orlofsuppbót. Sjómenn fá það ekki.
Fólkið í fiskvinnslunni og tengd-
um störfum þar sem þarf að vera í
slorgalla allan daginn fær borgað
nánast allan vinnufatnað. Sjómenn
fá andvirði þriggja vettlingapara
á mánuði, svo dæmi sé tekið. Það
er því heilmikið eftir á hjá okkur.
Menn verða að fara að hysja upp
um sig brækurnar og fara að semja
við okkur.“
DV leitaði skýringa á forsendum
þessara krafna um kostnaðar-
þátttöku sjómanna í veiðigjöld-
um hjá Heiðrúnu Lind Marteins-
dóttur, framkvæmdastjóra SFS. Þau
svör fengust að sjómenn greiði eða
taki þátt í hluta veiðigjalda, með-
al annars í Færeyjum og á Græn-
landi, og þessi þátttaka hafi því verið
til skoðunar og umræðu á þeim
forsendum. SFS vildi að öðru leyti
ekki tjá sig um samningaviðræður
og einstaka mál að svo stöddu. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Seilst í vasa sjómanna Sjómenn hafa undanfarna daga vakið athygli á kröfugerð SFS þar sem farið er fram á kostnaðarþátttöku sjó-
manna m.a. í veiðigjöldum. Það myndi fela í sér að minna yrði til skiptanna af aflaverðmæti fyrir þá. Mynd úr Safni Eyþór árnaSon
Valmundur Valmundsson Formaður
Sjómannasambands Íslands segir að
sjómenn sæki ekki í auðlindina nema sem
starfskraftur og fái ekki hagnað af út-
gerðinni. Það sé fáránleg krafa að þeir niður-
greiði veiðigjöld sem lögð eru á fyrirtækin.
16. febrúar 2016
„Þeir geta átt sín auðlindagjöld
sjálfir. Við erum alveg tilbúnir að standa
með þeim í að lækka þau en að við förum að
greiða það fyrir þá er bara fáránlegt.
Klif ehf • Grandagarði 13, Reykjavík • Sími 552-3300 • www.klif.is
Til á lager á
góðu verði
vottaður rútil
flúxfylltur
MIG suðuvír
frá Böhler
Þýskalandi