Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2016, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2016, Blaðsíða 22
Vikublað 18.–20. október 20166 Ökunám - Kynningarblað Akstur og kennsla fylgir þér alla leið Það kemur ekkert Guðjóni á óvart lengur G uðjón Ólafur er sannkall- aður reynslubolti í öku- kennslu enda hefur hann kennt í átján ár. „Kennslan er persónuleg og maður verður að laga sig að einstaklingnum því að engir tveir nemendur eru eins. Kennarinn þarf að geta kennt á mis- munandi hátt. Það kemur mér ekkert á óvart lengur,“ segir Guðjón Ólafur Magnússon ökukennari. Guðjón kennir einnig á sjálfskiptan bíl fyrir þá sem þurfa á því að halda. „Land Cruiser-inn er sjálfskiptur og það er alls ekki svo algengt að ökukennar- ar séu með þannig bíl í kennslu. En þeir sem vilja kennslu á sjálfskiptan bíl þurfa þó læknisvottorð.“ Ökuskóli fyrir bóklegt nám Ökuskólinn er samtals 22 kennslu- stundir í bóklega hlutanum og skylda fyrir alla ökunema. Það er einnig orðið mun algengara að nemendur falli á bóklega prófinu en á verklega hlutanum. „Internetið hefur verið að taka svolítið við bóklegri kennslu í skólastofu og eru nú bara tveir öku- skólar eftir á höfuðborgarsvæðinu sem hafa kennslu inni í stofu með kennara,“ segir Guðjón. Guðjón er meðeigandi í Ökuskóla Kópavogs sem býður upp á bóklegt nám. Það sem er sérstakt við kennslu Guðjóns er að hann kennir bæði verklegan og bóklegan hluta námsins og þá í kennslustofu með viðstöddum nem- endum. Þá eru kennd öll þau fög sem þarf að læra fyrir bóklegan þátt öku- prófsins, auk þess sem nemendur fá að spreyta sig á æfingarprófum, sem kemur sér óneitanlega vel. Í þessu umhverfi fæst mun persónulegri tenging við nemandann sem getur beint öllum sínum spurningum að kennara sem er á staðnum. Skólinn leggur ríka áherslu á að undirbúa nemendur undir bæði prófin og er þeim fylgt eftir í öllu náminu. Þannig er tryggt að nemandi sé tilbúinn í bæði prófin og því minni líkur á falli. Hvenær má byrja að læra? Hefja má ökunám við 16 ára aldur og sækja síðan í kjölfarið um æfingarakstur með foreldri eða öðrum aðstandanda á námstímanum með vottun frá ökukennara. Ökunám er einstaklingsnám sem miðast fyrst og fremst við getu og tíma nemandans. Námið hefst í bílnum hjá ökukennara og um leið er sótt um námsheimild hjá sýslumanni. Næstu ökutímar eru bókaðir í hverjum ökutíma hjá öku- kennara og svo koll af kolli, eftir þörf- um nemandans. Bóklegt nám í öku- skóla hefst svo eftir nokkra ökutíma. Fyrsti hluti bóknámsins, Ökuskóli 1, er skylda fyrir alla og er nauðsyn- legt að sækja alla þá tíma áður en far- ið er í æfingarakstur með leiðbein- anda. Þó svo að æfingarakstur sé ekki skylda reynist hann töluvert hjálp- legur við að öðlast reynslu og færni. Að sjálfsögðu er mikilvægt að nem- andi hafi náð tökum á bílnum, gatna- mótum og umferðinni áður en far- ið er í æfingarakstur. Ökuskóli 2 og 3 koma svo í framhaldi af Ökuskóla 1. Bóklega prófið má fyrst taka tveimur mánuðum fyrir 17 ára aldur og verk- lega hlutann má taka tveimur vikum fyrir afmælisdaginn. „Ég myndi segja að það sé æskilegra að byrja ökunám og æfingarakstur að hausti þannig að nemandi læri smám saman að aka í myrkri og við erfiðari aðstæður eins og snjó eða hálku. En í raun skiptir mestu máli að ökukennsla fari fram að degi til, á þeim tíma sem umferð er á götunum,“ segir Guðjón. Hann bætir við að það skipti miklu máli að ökukennsla sé aðalstarf kennara og að nemandi sé ekki eingöngu að læra á bifreiðina utan háannatíma. „Það getur jafnvel verið mikilvægara að læra að keyra að degi til en að vetr- arlagi,“ bætir Guðjón við. En auðvitað þarf námið að henta nemandanum sem hefur lokavaldið yfir því hvenær kennsla fer fram. Vanalegur lágmarkstími sem tek- ur að læra á bíl er um tveir mánuð- ir en flestir taka námið á lengri tíma. Flestir þættir ökunámsins eru með fast verð, eins og á við um bóklega námið, próftökugjald, prentun öku- skírteinis og annað. Í raun veltur verðið á ökunámi mest á því hversu marga tíma nemandi þarf að taka hjá ökukennara. Þá er lágmarksfjöldi tíma sextán tímar og þurfa sumir fleiri. Því hjálpar það oft mjög mik- ið að stunda æfingarakstur hjá völd- um aðstandanda samhliða náminu til þess að öðlast reynslu og halda þannig ökutímum í lágmarki. Guðjón kennir annars vegar á beinskiptan Ford Mondeo og á sér- stöku tilboði kostar tíminn nú að- eins 8.900 krónur. Hins vegar kennir Guðjón á sjálfskiptan Land Cruiser- jeppa og er tíminn þar á 9.900 kr. Með lágmarksfjölda ökutíma, sem eru 16 skipti, kostar verkleg kennsla þá minnst 142.000 krónur. Með öllu má gera ráð fyrir að ökunám kosti alls 200.000–240.000 krónur. n Hægt er að hafa samband við Guðjón í síma 897-3660 eða 615-1115 eða með því að senda póst á netfangið gudjonolafur@outlook.com Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Guðjóns, aksturogkennsla.is. Guðjón og Ford Mondeo Sjálfskiptur Land Cruiser

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.