Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2016, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2016, Blaðsíða 20
Vikublað 18.–20. október 20164 Ökunám - Kynningarblað Megináherslan er á frábæra þjónustu og vandað fjarnám 17.is ökukennsla er kjörinn staður fyrir alla til að byrja ökunámið V ið höfum lagt ofuráherslu á gæði þjónustunnar og höf- um fengið þau viðbrögð frá viðskiptavinum að þeir séu afar ánægðir með frábæra og hraða þjónustu. Þeir sem leita til okkar geta fengið allt á einum stað og við útvegum ökukennara um allt land sé eftir því óskað. Við erum eini öku- skólinn sem býður upp á að hægt sé að fá allan pakkann á einum stað. Þú færð Ökuskóla 1, 2 og 3, 15 ökutíma, próftökugjöld, kennslubókina og æf- ingarakstursmerkið – allt hjá okkur – og getur fengið að skipta kostnaðin- um niður í allt að 12 greiðslur. Það er þægilegur kostur því þetta er nokkuð stór pakki fyrir fólk og mörgum finnst afar þægilegt að geta keypt allan pakkann á einum stað og greitt hann með raðgreiðslum.“ Þetta segir Sigurður Jónasson, eig- andi ökuskólans 17.is. Sigurður er ökukennari og lögreglumaður. Hann hefur margra ára reynslu af kennslu í ökuskólum og gerð kennsluefnis. Sig- urður hefur einnig annast kennslu í umferðarfræði, t.d. við Lögregluskóla ríkisins og í ökukennaranámi á veg- um Háskóla Íslands. Hann hefur um árabil verið einn af vinsælustu öku- kennurum á höfuðborgarsvæðinu þar sem hann hefur kennt á bifreið, bifhjól og létt bifhjól. Bjarnþóra M. Pálsdóttir starfar við skólann sem kennslufræðilegur ráð- gjafi og styrkir faglega umgjörð hans enda hefur hún mikla reynslu af ráð- gjöf og kennslu. 17.is veitir nám í fólksbílaakstri og bifhjólaakstri. Bóklega námið er allt á netinu en síðan eru öll próf tekin hjá Frumherja sem er framkvæmdaað- ili ökuprófa á Íslandi. Ökunámið hjá 17.is er öllum opið óháð búsetu og 17.is útvegar síðan ökukennara í hér- aði hvers nemanda sé óskað eftir því. „Við leggjum ekki áherslu á að vera stærst heldur að vera best í því sem við gerum. Okkar aðalsmerki er að veita frábæra þjónustu. Við rekum skól- ann á einu besta fjarkennslukerfi sem völ er á í dag og sem dæmi tekur það mig bara tvær mínútur að uppfæra og breyta kennsluefni ef breytingar verða á viðkomandi lögum og reglum. Innbyggt er síðan samskiptakerfi fyr- ir nemendur til að eiga samskipti sín á milli. Ökuskóli 1 og 2 er enn frem- ur talsettur og geta nemendur okkar opnað hljóðskrá fyrir hverja síðu. Það hefur gefist vel og hentar t.d. nem- endum með lesblindu sérstaklega vel. Nemendum okkar hefur líkað einkar vel úrval myndbanda og mynda sem glæða námið á skjánum lífi.“ Sigurður segir að rafrænt nám af þessu tagi henti ungu fólki afar vel: „Netið er þeirra umhverfi. Þau leysa öll verkefnin aftur og aftur, fá endur- gjöf frá mér og geta lært af henni.“ Fyrir utan gæði námsins veitir 17.is ökunám á mjög hagstæðu verði: „Skólinn okkar býður langbesta verðið hér á landi vegna þess að við greiðum ökukennurum ekki fyr- ir að senda okkur nemendur eins og flestir aðrir skólar gera. Við bjóðum hins vegar alla nemendur velkomna, sama hvar þeir eru og sama hjá hvaða kennara þeir eru. Allir eru velkomnir og fá betra verð.“ n Ítarlegar upplýsingar um skólann og námið er að finna á heimasíðunni 17.is sem og á Facebook-síðu skólans. Skjáskot úr kennslumynd- bandi um bifjólaakstur Hefst á Selfossi föstudaginn 4. nóvember ef næg þáttaka fæst. Þetta er helgarnámskeið. Meiraprófsnámskeið Skráning og upplýsingar eru hjá Þráni í síma 892 9594 eða í tölvupósti thrainn@okuskoli.is. Skráðu þig sem fyrst!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.