Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2016, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2016, Blaðsíða 14
Vikublað 18.–20. október 201614 Fréttir Erlent n Hús hrynja í iðnaðarborginni Norilsk í Rússlandi n Ein af afleiðingum hlýnunar jarðar Í búar í iðnaðarborginni Norilsk í norðurhluta Rússlands glíma í vaxandi mæli við vanda sem rekja má til hlýnunar jarðar. Mörg hús í borginni eru að hruni kom- in vegna þess að jarðvegurinn undir þeim er ekki lengur frosinn. Norilsk hefur gjarnan verið kölluð kaldasta borg Rússlands enda er hún nyrsta borg heims þar sem íbúafjöldi er yfir hundrað þúsund. Sprungnir veggir Jarðarbúar þurfa á komandi árum að bregðast við mörgum áskorunum vegna hlýnunar jarðar og þiðnandi sífreri undir Norilsk hefur valdið mönnum þar í borg áhyggjum. Breska blaðið Guardian fjallaði á dögunum um stöðu mála í borginni og ræddi við nokkra íbúa sem hafa orðið fyrir skaða vegna sprunginna veggja og hrynjandi húsa. Einn þeirra er Yuri Scherbakov sem fór að taka eftir sprungum í veggjum á heimili sínu ekki alls fyrir löngu. Yuri taldi að sprungurnar væru vegna slælegra vinnubragða verk- takanna sem byggðu húsið. Hann áttaði sig þó á alvarleika málsins þegar fleiri veggir fóru að springa og gólfið í húsinu að síga. Í mars 2015 úrskurðuðu borgar yfirvöld að ekki væri óhætt að búa lengur í húsinu og þurftu Yuri og eiginkona hans, Nadezhda, að hafa sig á brott. 60 prósent húsa orðið fyrir skemmdum Yuri og Nadezhda eru langt því frá þau einu sem glíma við þennan vanda. Valery Tereshkov, næstráð- andi í ráðuneyti umhverfismála í Krasnoyarsk-héraði, segir að 60 pró- sent allra bygginga í Norilsk hafi orðið fyrir skemmdum vegna þiðn- andi sífrera. Rýma hefur þurft yfir hundrað byggingar í borginni og hafa þúsundir íbúa þurft að leita annað. Í umfjöllun Guardian er bent á að aðrir þættir en hlýnun jarð- ar eigi hlut að máli. Nefna verk- og jarðfræðingar að hita í húsunum sé að hluta til um að kenna en hlýnun jarðar auki á vandann. „Þetta hefur verið vandamál í gegnum tíðina en samhliða hlýnun jarðar hefur þetta gerst hraðar,“ segir Ali Kerimov, verkfræðingur hjá borgaryfirvöldum í Norilsk. Flóð og skógareldar Hlýnun jarðar á undanförnum árum hefur valdið illviðráðanlegum skógareldum og flóðum í Rússlandi en þiðnandi sífreri er það sem veldur mönnum hvað mestum áhyggjum. Sífreri þekur um tvo þriðju hluta Rússlands og nú þegar má rekja dauðsföll beinlínis til þessarar þróunar. Hið minnsta sjö stórir gígar hafa myndast í Síberíu vegna þiðn- andi sífrera. Metangas hefur streymt upp úr þessum gígum og í ágúst síð- astliðnum lést tólf ára drengur af völdum miltisbrands sem komst upp á yfirborðið. Þá hefur hlýnun jarðar orðið til þess að margar eyjur við norðurströnd Rússlands eru að sökkva í sæ, hafís hefur bráðnað og öldugangur aukist með tilheyrandi landbroti. Hiti hvergi hækkað jafn mikið Aðstæður í Norilsk eru ekki fyrir hvern sem er enda er borgin talin ein sú mengaðasta í heimi auk þess að vera ein sú kaldasta. Frostið þar getur auðveldlega farið niður í 40 gráður en helsti atvinnuvegur íbúa er vinnsla á nikkel. Þó að frostið sé mikið á veturna getur hitinn orðið sæmilegur yfir sumar tímann. Í um- fjöllun Guardian kemur fram að frá árinu 1900 hafi meðalhitinn á norð- urheimskautasvæðinu hækkað um tvær gráður. Hvergi annars staðar á jörðinni hefur hitastigið hækkað jafn mikið. Og frá árinu 1999 til 2013 hækkaði hitinn í jarðveginum um eina gráðu að meðal tali. Vantar fjárfestingu Það er ljóst að mikil vinna bíður rússneskra yfirvalda til að leysa úr þessum aðsteðjandi vanda sem nú þegar er farinn að hafa áhrif. En til þess þarf fjármagn og miðað við nú- verandi stöðu efnahagsmála í Rúss- landi vaxa peningar ekki á hverju tré. „Það er hægt að leysa úr ýmsum vandamálum sem tengjast loftslags- málum með fjárfestingu. En hvaðan á þessi fjárfesting að koma?“ spyr Oleg Anisimov, sem fer með umsjón loftslagsmála hjá Jarðvísindastofnun Sankti Pétursborgar. „Svo lengi sem mannfólk er ekki í bráðri hættu mun enginn gera neitt,“ bætir hann við. n Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Sprungur og gólfsig Nadezhda og eiginmaður hennar, Yuri, töldu í fyrstu að sprungnir veggir væru slælegum vinnubrögðum verktaka að kenna. Þau áttuðu sig á alvarleikanum þegar vandinn fór að ágerast. Mynd AlEc luHn ÞiðNaNdi sÍfRERi skEmmiR boRgiNa lagfæringar Eins og sést á þessari mynd hefur verið reynt að laga þau hús sem á annað borð er hægt að laga. Mynd AlEc luHn Slæmt ástand Talið er að 60 prósent allra húsa í Norilsk hafi orðið fyrir skemmdum vegna þiðnandi sífrera. Mynd AlEc luHn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.