Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2016, Side 30
Vikublað 18.–20. október 201622 Menning
HVAR ER SÓSAN?
Það er ekkert betra en steiktur fiskur í raspi og nýjar kartöflur.
Nema kannski steiktur fiskur í raspi, nýjar kartöflur og nóg af remolaði.
Þú gleymir ekki sósunum frá E. Finnsson.
Úr listheiminum
Í síðasta mánuði kom út fyrsta myndasagan eftir Margaret Atwood, en þessi virti kanadíski
rithöfundur verður 77 ára í næsta
mánuði. Myndasagan, sem nefn-
ist Angel Catbird, er sú fyrsta í þrí-
leik um ungan erfðafræðing sem
stökkbreytist þegar erfðaefni katt-
ar og uglu blandast fyrir mistök
inn í hans eigið DNA.
Inga Mekkin Beck hlýtur Íslensku
barnabóka-
verðlaun-
in 2016 sem
voru veitt í lok
síðustu viku,
fyrir bókina
Skóladraug-
urinn. For-
lagið gefur
bókina út en þetta er fyrsta verk
höfundarins.
Disney- afþreyingarsamsteypan vinnur að gerð kvikmyndar byggðri á sögu Miguels de
Cervantes um Don Kíkóta. Billy
Ray, sem hefur tekið þátt í hand-
ritaskrifum fyrir Hunger Games og
Captain Phillips, mun skrifa hand-
ritið. Samkvæmt heimildum mun
myndin vera í svipuðum stíl og
kvikmyndir fyrirtækisins um Sjó-
ræningja Karabíska hafsins.
Benedikt tekur þátt
í jólabókaflóðinu
Ný bókaútgáfa gefur út fjórar bækur fyrir jólin
V
on er á fyrstu bókunum frá
hinni nýstofnuðu bókaút-
gáfu Benedikt í lok mánað-
arins, en forlagið mun gefa
út að minnsta kosti fjórar
bækur nú fyrir jólin. Benedikt er ný
bókaútgáfa stofnuð af Guðrúnu Vil-
mundardóttur, fyrrverandi útgáfu-
stjóra Bjarts, en hún sagði starfi sínu
lausu í sumar eftir tíu ára starf hjá
fyrirtækinu.
Guðrún segir það ganga alveg
ljómandi vel að koma nýju útgáf-
unni á fót. „Það eru mörg handtök
sem fylgja því að opna svona nýtt
apparat, en ég vinn þau bara eitt af
öðru og þetta gengur alveg ljómandi
vel,“ segir Guðrún í samtali við DV.
Í draumahlutverkinu
n Elmar Gilbertsson fer með stórt hlutverk í óperunni Évgení Onegin
E
lmar Gilbertsson fer með
hlutverk Vladimirs Lenskí í
óperunni Évgení Onegin eftir
Pjotr Tchaikovsky sem frum-
sýnd verður í Hörpu laugar-
daginn 22. október. Fyrr á þessu ári
söng Elmar í Hörpu hlutverk Don
Ottavio í Don Giovanni.
Elmar er spurður um hlutverk
Lenskí og segir: „Oft eru andstæður
í óperum. Í Don Giovanni var teflt
saman sem andstæðum hinum
hjartahreina og heiðarlega Don Otta-
vio og flagaranum Don Giovanni.
Hér er svipað á ferð, aðalsmaðurinn
Onegin er skúrkurinn og hinn lægra
setti Lenskí er andstæða hans. Lenskí
er ungur rómantískur maður og skáld
sem þekkir ekki þann heim sem
Onegin lifir í. Lenskí er trú lofaður
Olgu, en hún er systir Tatjönu sem
elskar Onegin. Eftir að Onegin daðr-
ar við Olgu verður einvígi milli þeirra
tveggja.“
Alls konar túlkun
Elmar segir hlutverk Lenskí vera
draumhlutverk fyrir sig. „Ég hef
beðið lengi eftir að syngja þetta hlut-
verk sem hefur allt til að bera. Í söng-
námi mínu byrjaði ég mjög snemma
að syngja aríu Lenskí, Kuda, kuda, og
þá vissi ég að ég ætti eftir að syngja
þetta hlutverk, það væri bara spurn-
ing hvenær.
Þetta er gott, lýrískt tenórhlutverk
sem allir vilja syngja. Ég finn mig vel í
því og það er hægt að gera svo mikið
við það. Ég veit ekki hvort það er til-
viljun eða viljandi gert að Lenski fær
að syngja allar fallegustu línurnar í
þessari óperu.
Þetta er líka draumahlutverk
að því leyti að karakterinn er mjög
áhugaverður. Lenskí er ástfanginn
upp fyrir haus og síðan daðrar
Onegin við unnustu hans og hann
verður afbrýðisamur og reiður og
skorar þennan andstæðing sinn á
hólm. Það er hægt að gera svo margt
við þetta hlutverk og það býður upp
á ýmiss konar túlkun. Afbrýðisemi
Lenskí má til dæmis þróa þannig að
hún stigmagnist en gjósi ekki bara
upp allt í einu.“
Sungið á rússnesku
Það vekur athygli að óperan er flutt á
rússnesku, en íslenskum og enskum
þýðingum er varpað á skjá. „Það hef-
ur verið ögrandi að vinna þetta hlut-
verk, sérstaklega vegna rússnesk-
unnar sem er ekki auðveld,“ segir
Elmar. „Maður þarf alltaf að vita upp
á hár um hvað maður er að syngja.
Auðvitað síast það smám saman inn
en maður stendur sig að því að þurfa
að fletta upp orðum. Svo hef ég setið
sveittur við að ná framburðinum með
aðstoð þjálfara. Sem dæmi má nefna
að það eru átta mismunandi s-hljóð
í rússnesku þannig að þetta er glíma.
Maður er búinn að syngja í gegn-
um hlutverkið oft og mörgum sinn-
um og gerir alltaf sömu vitleysuna.
Það er ekki fyrr en maður er búinn
að gera vitleysuna sem maður áttar
sig á mistökum sínum. En maður er
á réttri leið þegar maður uppgötvar
það sjálfur.“
Tónlist Tchaikovsky hefur glatt
kynslóðir, jafnt þessi ópera hans sem
önnur tónlist. Elmar er spurður um
„Þá vissi ég að
ég ætti eftir að
syngja þetta hlutverk,
það væri bara spurning
hvenær.
Elmar „Ég hef beðið lengi eftir að syngja
þetta hlutverk sem hefur allt til að bera.“
Mynd ÞorMAr Vignir gunnArSSon
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is