Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2016, Blaðsíða 18
Vikublað 18.–20. október 20162 Ökunám - Kynningarblað
E
itt af því sem gefur Ökuskól-
anum í Mjódd sérstöðu er
markviss notkun ökuherma í
náminu, bæði fyrir akstur bif-
reiða og bifhjóla. Blaðamað-
ur prófaði að setjast í ökuhermi skól-
ans og var það áhugaverð upplifun.
Hann lenti meðal annars í þeim að-
stæðum að bíll virti ekki stöðvunar-
skyldu og ók fyrir hann og hreindýr
hljóp í veg fyrir bílinn. Einnig var
prófaður akstur í myrkri þar sem
skipta þarf á milli hárra og lágra
ljósa þegar bílum er mætt, og akstur
í hálku. Ökuhermirinn sýnir svart á
hvítu hvað gerist við svona erfiðar
aðstæður og uppákomur. Stöðv-
unarvegalengdin er mun lengri en
margir gera sér grein fyrir, sem og
höggþunginn við árekstur, sem sýn-
ir að viðbragðið verður að vera gott
og því afar nauðsynlegt að ökumenn
séu með athyglina í lagi en henni sé
ekki spillt með vímuefnum, þreytu
og litlum svefni, eða símanotkun.
Þá er afar algengt að fólk
vanmeti vegalengdina að
næsta bíl fyrir framan,
nokkuð sem ökuhermir-
inn leiðir greinilega í ljós.
Starfsmenn Ökuskól-
ans í Mjódd segja það
miklu áhrifaríkara að
láta nemendur upplifa
hættuleg atvik í öku-
hermi en greina frá
þeim í kennslustund og
engin hætta á að athygl-
in sé ekki í lagi þegar
nemandinn fær hinar
erfiðu akstursaðstæður beint í æð, ef
svo má segja.
Ökuskólinn í Mjódd rekur upp-
runa sinn til Ökuskóla Ökukennara-
félags Íslands sem stofnað var árið
1967 í aðdraganda að upptöku hægri
umferðar hér á landi árið 1968.
Skólinn hefur verið til í núverandi
mynd frá árinu 1999 og er sá stað-
ur þar sem einna mest reynsla og
þekking í ökukennslu hefur safnast
saman.
Ökuskólinn í Mjódd hefur verið
frumkvöðul lí mörgum þáttum öku-
náms, segir Guðbrandur Bogason,
ökukennari hjá skólanum: „Grunn-
starfsemin byggist á ökukennslu
til unglinga sem eru að taka bíl-
próf en síðan höfum við verið með
bifhjólanámskeið fyrir stór bifhjól
og við erum með námskeið til auk-
inna ökuréttinda, þ.e. meiraprófs.
Þar vorum við frumkvöðlar þegar sú
starfsemi fluttist frá ríkinu, en meira-
prófið var einokað af ríkinu fram til
ársins 1992. Eftir það erum við sá
skóli sem helst byggir upp kennslu
til meiraprófs.“
Auk meiraprófs býður Öku-
skólinn í Mjódd upp á námskeið
fyrir leigubílstjóra í afleysingum sem
tryggja þeim nauðsynleg réttindi og
einnig eru í boði leyfishafanámskeið
fyrir þá sem vilja gera út leigubíla.
Enn fremur býður skólinn upp á bif-
hjólanámskeið og ökunám fyrir þá
sem hafa misst ökuréttindi og vilja
endurheimta þau.
Einn af áhugaverðustu þáttum
í starfsemi Ökuskólans í Mjódd er
ökunám fyrir seinfæra nemend-
ur sem skólinn sinnir í samstarfi
við félagið Fjölmennt. Er þess gætt
að hafa námið á þeim hraða sem
hentar hverjum nemanda en margir
þessara nemenda þurfa mjög langan
tíma.
Þrír fastir starfsmenn eru hjá
Ökuskólanum í Mjódd en fjölmargir
starfa fyrir skólann sem verktakar og
eru um 20 ársverk hjá fyrirtækinu.
Nemendur eru afar margir á hinum
ólíku sviðum, alls um 2.000 á ári. Sem
dæmi þá eru nú sem stendur um 50
Pólverjar í meiraprófsnámi í skólan-
um en flestir þeirra eru væntanlegir
strætisvagna- og rútubílstjórar.
Ökuskólinn í Mjódd stendur afar
vel að vígi hvað varðar tækjabúnað
og aðstöðu en áður eru nefndir full-
komnir ökuhermar fyrir bifreiða- og
bifhjólaakstur. Auk þess eru fjórar vel
búnar kennslustofur í húsakynnum
skólans. Enn fremur býður skólinn
upp á netnám á Ökuneti sínu. Guð-
brandur segir að netnámið hafi ýmsa
kosti en geldur varhug við því að á
það sé treyst eingöngu hvað varðar
bóklega námið:
„Það er svo mikið sem tapast
þegar engin mannleg nærvera er
til staðar. Til dæmis eru nemendur
tregari til að spyrja þegar þeir þurfa
að skrifa fyrirspurnina og bíða svars.
Enn fremur eru samræður miklu
meira lifandi í hópi en á netinu. Þetta
er gott allt hvert með öðru en staðar-
kennsla er nauðsynleg samhliða net-
náminu.“
Hann bendir einnig á að
viðhorfsmótun sé afar mikilvæg í
ökunámi og ábyrgðarfullan akstur
sé aðeins hægt að innræta nemend-
um í návígi, ekki með verkefnum á
netinu. n
Nánari upplýsingar um Ökuskól-
ann í Mjódd eru á vefsíðunni bilprof.
is. Upplýsingar eru einnig veittar í
síma 567-0300.
Frumkvöðull í ökukennslu
Ökuskólinn í Mjódd