Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2016, Blaðsíða 28
Vikublað 18.–20. október 201620 Lífsstíll
Dalvegur 6-8 • 201 Kópavogur • Sími 535 3500
Draupnisgata 6 • 603 Akureyri • Sími 535 3526
www.kraftvelar.is • kraftvelar@kraftvelar.is
BT rafma
gnstjakk
ar
- auðveld
a verkin
!
• 1300 kg. lyftigeta
• 24V viðhaldsfrír rafgeymir
• Innbyggt hleðslutæki (beint í 220V)
• Aðeins 250 kg. að þyngd
Þess vegna
áttu að borða
hafragraut
alla morgna
n Hafragrautur er allra meina bót n Ódýr og stuðlar að hraustari líkama
Þ
að er líklega engum ofsögum
sagt að morgunmaturinn sé
mikilvægasta máltíð dagsins.
Það hvað við borðum á
morgnana hefur áhrif á líðan okk-
ar þann daginn og því er mikilvægt
að borða rétt áður en haldið er út í
amstur dagsins.
En hvað eigum við að borða
til að tryggja líkamanum góða og
heilbrigða næringu? Næringar-
fræðingurinn Cassandra Barns
segir að hafragrauturinn sé besti
morgunmatur sem völ er á. Hún
deildi með lesendum Daily Mail
á dögunum fimm ástæðum þess
að við ættum að venja okkur á að
borða þennan sígilda graut alla
morgna. n
Enginn
viðbættur sykur
Hafrar eru góðir að því leytinu að þeir hækka
ekki blóðsykurinn hratt eins og einföld
kolvetni gera. Þeir hafa lágan sykurstuðul
og veita líkamanum stöðuga orku. „Og, ólíkt
til dæmis ýmsum tegundum morgunkorns,
innihalda þeir ekki viðbættan sykur,“ segir
Cassandra við Daily Mail. „Þetta þýðir að
orkustig líkamans helst stöðugt þar til kem-
ur að næstu máltíð, hádegismatnum.“
Náttúruleg uppspretta vítamína
og steinefna
„Hafrar eru trefjarík fæða og innihalda mikilvæg vítamín og steinefni, þar á meðal
vítamínið B1, magnesíum, járn, mangan og sink,“ segir Cassandra. Hún segir að þessi
vítamín og steinefni gegni mikilvægum hlutverkum í líkamanum. Þau stuðla meðal
annars að því að við höfum næga orku og ekki síður að því að ónæmiskerfi okkar sé í stakk
búið til að berjast gegn ýmsum pestum og þá ýta þau undir ónæmisvarnir líkamans.
Frábært fyrir þá sem stunda ræktina
Eins og áður segir teljast hafrar til flókinna kolvetna sem þýðir að orkan sem þeir gefa
okkur frásogast hægt út í blóðrásina. Þetta er sérstaklega gagnlegt þeim sem stunda
líkamsrækt af kappi. „Það er sniðugt að borða eina skál af hafragraut, annaðhvort áður
en haldið er í ræktina eða eftir hana. Magnesíum-innihaldið er einnig nauðsynlegt fyrir
góða vöðvastarfsemi,“ segir Cassandra.
Hægt að prófa ýmsa útfærslu
Hafragrautur í höfrunum geta hjálpað okkur að lækka kólesteról í blóði,“ segir
Cassandra og bætir við að hafrarnir innihaldi beta-glúkan sem stuðlar að því að
kólesteról komist ekki í blóðrásina. Þá bendir Cassandra á að trefjaefni hjálpi okkur að
viðhalda okkar eðlilegu þyngd sem aftur lækkar líkur á að sykursýki af tegund 2.
Frábær
trefjauppspretta
„Trefjarnar í höfrunum geta hjálpað
okkur að lækka kólesteról í blóði,“ segir
Cassandra og bætir við að hafrarnir inni-
haldi beta-glúkan sem stuðlar að því að
kólesteról komist ekki í blóðrásina. Þá
bendir Cassandra á að trefjaefni hjálpa
okkur að viðhalda okkar eðlilegu þyngd
sem aftur lækkar líkur á að sykursýki af
tegund 2.
Hafragrautur
Er líklega besti
morgunmaturinn.