Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2016, Qupperneq 20
Vikublað 18.–20. október 20164 Ökunám - Kynningarblað
Megináherslan er á frábæra
þjónustu og vandað fjarnám
17.is ökukennsla er kjörinn staður fyrir alla til að byrja ökunámið
V
ið höfum lagt ofuráherslu á
gæði þjónustunnar og höf-
um fengið þau viðbrögð frá
viðskiptavinum að þeir séu
afar ánægðir með frábæra
og hraða þjónustu. Þeir sem leita til
okkar geta fengið allt á einum stað og
við útvegum ökukennara um allt land
sé eftir því óskað. Við erum eini öku-
skólinn sem býður upp á að hægt sé
að fá allan pakkann á einum stað. Þú
færð Ökuskóla 1, 2 og 3, 15 ökutíma,
próftökugjöld, kennslubókina og æf-
ingarakstursmerkið – allt hjá okkur –
og getur fengið að skipta kostnaðin-
um niður í allt að 12 greiðslur. Það er
þægilegur kostur því þetta er nokkuð
stór pakki fyrir fólk og mörgum finnst
afar þægilegt að geta keypt allan
pakkann á einum stað og greitt hann
með raðgreiðslum.“
Þetta segir Sigurður Jónasson, eig-
andi ökuskólans 17.is. Sigurður er
ökukennari og lögreglumaður. Hann
hefur margra ára reynslu af kennslu í
ökuskólum og gerð kennsluefnis. Sig-
urður hefur einnig annast kennslu í
umferðarfræði, t.d. við Lögregluskóla
ríkisins og í ökukennaranámi á veg-
um Háskóla Íslands. Hann hefur um
árabil verið einn af vinsælustu öku-
kennurum á höfuðborgarsvæðinu
þar sem hann hefur kennt á bifreið,
bifhjól og létt bifhjól.
Bjarnþóra M. Pálsdóttir starfar við
skólann sem kennslufræðilegur ráð-
gjafi og styrkir faglega umgjörð hans
enda hefur hún mikla reynslu af ráð-
gjöf og kennslu.
17.is veitir nám í fólksbílaakstri og
bifhjólaakstri. Bóklega námið er allt á
netinu en síðan eru öll próf tekin hjá
Frumherja sem er framkvæmdaað-
ili ökuprófa á Íslandi. Ökunámið hjá
17.is er öllum opið óháð búsetu og
17.is útvegar síðan ökukennara í hér-
aði hvers nemanda sé óskað eftir því.
„Við leggjum ekki áherslu á að vera
stærst heldur að vera best í því sem við
gerum. Okkar aðalsmerki er að veita
frábæra þjónustu. Við rekum skól-
ann á einu besta fjarkennslukerfi sem
völ er á í dag og sem dæmi tekur það
mig bara tvær mínútur að uppfæra
og breyta kennsluefni ef breytingar
verða á viðkomandi lögum og reglum.
Innbyggt er síðan samskiptakerfi fyr-
ir nemendur til að eiga samskipti sín
á milli. Ökuskóli 1 og 2 er enn frem-
ur talsettur og geta nemendur okkar
opnað hljóðskrá fyrir hverja síðu. Það
hefur gefist vel og hentar t.d. nem-
endum með lesblindu sérstaklega vel.
Nemendum okkar hefur líkað einkar
vel úrval myndbanda og mynda sem
glæða námið á skjánum lífi.“
Sigurður segir að rafrænt nám af
þessu tagi henti ungu fólki afar vel:
„Netið er þeirra umhverfi. Þau leysa
öll verkefnin aftur og aftur, fá endur-
gjöf frá mér og geta lært af henni.“
Fyrir utan gæði námsins veitir
17.is ökunám á mjög hagstæðu verði:
„Skólinn okkar býður langbesta
verðið hér á landi vegna þess að við
greiðum ökukennurum ekki fyr-
ir að senda okkur nemendur eins og
flestir aðrir skólar gera. Við bjóðum
hins vegar alla nemendur velkomna,
sama hvar þeir eru og sama hjá hvaða
kennara þeir eru. Allir eru velkomnir
og fá betra verð.“ n
Ítarlegar upplýsingar um skólann
og námið er að finna á heimasíðunni
17.is sem og á Facebook-síðu skólans.
Skjáskot úr
kennslumynd-
bandi um
bifjólaakstur
Hefst á Selfossi föstudaginn
4. nóvember ef næg þáttaka fæst.
Þetta er helgarnámskeið.
Meiraprófsnámskeið
Skráning og upplýsingar eru hjá Þráni í síma
892 9594 eða í tölvupósti thrainn@okuskoli.is.
Skráðu þig
sem fyrst!