Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2016, Blaðsíða 8
Vikublað 1.–3. nóvember 20168 Fréttir
Guðrúnartúni 4,
105 reykjavík
Sími: 533 3999
www.betraGrip.iS
Opið
virka
daga frá
kl. 8–17
gæða
dekk á
góðu
verði
B
iðlaunaréttur þeirra þing
manna og ráðherra sem
hætta á þingi að afloknum
þessum kosningum nemur
tæpri 131 milljón króna. Alls
víkja 32 þingmenn af Alþingi nú að
loknum kosningum. 23 þingmenn
gáfu ekki kost á sér til endurkjörs og
9 þingmenn náðu ekki endurkjöri.
Meðal þessara 32 þingmanna eru
þrír ráðherrar og forseti Alþingis en
biðlaunaréttur þeirra er hærri en al
mennra þingmanna.
Samkvæmt lögum um þingfarar
kaup alþingismanna og þingfarar
kostnað eiga þingmenn sem setið
hafa í eitt kjörtímabil á Alþingi rétt á
biðlaunum í þrjá mánuði. Hafi þing
maður setið í meira en eitt kjörtímabil
á hann rétt á biðlaunum í sex mánuði.
Ráðherrar sem láta af embætti eiga
rétt á þriggja mánaða biðlaunum en
hafi þeir setið í ráðherrastól í sam
fellt eitt ár eða lengur eiga þeir rétt á
biðlaunum í sex mánuði. Forseti Al
þingis nýtur sömu kjara og ráðherrar.
Þingfararkaup er nú 762.940 krónur
á mánuði og grunnlaun ráðherra eru
1.347.330 á mánuði.
Samkvæmt fyrrgreindum lög
um skulu biðlaunagreiðslur til þing
manna eða ráðherra falla niður taki
þeir við starfi þar sem launagreiðslur
eru jafn háar eða hærri en biðlauna
greiðslur sem þeir njóta. Séu launin
í nýja starfinu hins vegar lægri en
biðlaunaréttur skal greiða launa
mismuninn til loka tímabilsins.
Biðlaunaréttur þeirra þing
manna og ráðherra sem ekki gáfu
kost á sér til endurkjörs nemur
98.711.700 krónum. Biðlaunaréttur
þeirra þingmanna sem féllu í kosn
ingunum nemur 32.888.200 krón
um.
Það fer síðan eftir því hvernig
skipast í ráðherrastóla hvort upp
hæðin muni enn hækka. Víki sitj
andi ráðherrar, sem kjörnir voru á
þing síðastliðinn laugardag, úr ráð
herrastól eiga þeir rétt á biðlaunum
sem nema mismuni milli þingfarar
kaups og ráðherralauna. Ríkissjóð
ur greiðir öll umrædd biðlaun.
Eftir alþingiskosningarnar 2013
hurfu 27 þingmenn af þingi. Bið
launagreiðslur það ár námu ríflega
90 milljónum króna, um 10 prósent
um af launagreiðslum Alþingis. n
130 milljónir
í biðlaun til
þing anna
Freyr Rögnvaldsson
freyr@dv.is
8.083.980 kr.
Einar K. Guðfinnsson
8.083.980 kr.
Illugi Gunnarsson
8.083.980 kr.
Ragnheiður E. Árnadóttir
8.083.980 kr.
Sigrún Magnúsdóttir
4.577.640 kr.
Össur Skarphéðinsson
2.288.820 kr.
Haraldur Einarsson
2.288.820 kr.
Þorsteinn Sæmundsson
2.288.820 kr.
Brynhildur Pétursdóttir
4.577.640 kr.
Róbert Marshall
4.577.640 kr.
Katrín Júlíusdóttir
2.288.820 kr.
Páll Jóhann Pálsson
4.577.640 kr.
Valgerður Bjarnadóttir
2.288.820 kr.
Willum Þór Þórsson
2.288.820 kr.
Elín Hirst
2.288.820 kr.
Karl Garðarsson