Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2016, Qupperneq 14
Vikublað 1.–3. nóvember 201614 Fréttir
V
ið verðum að reyna eins
og við getum að ná fram
einhverju réttlæti. Það er
augljóst að ef Sandra yrði
dæmd á sínum forsendum
þá myndi þetta líta allt öðruvísi út,“
segir Margrét Fenton, Magga eins og
hún er yfirleitt kölluð, móðir Söndru
Sigrúnar Fenton, en Sandra afplánar
nú 37 ára fangelsisdóm í Bandaríkj-
unum vegna tveggja bankarána sem
hún framdi í Virginíufylki árið 2013.
Um er að ræða þyngsta dóm sem Ís-
lendingur hefur hlotið, svo vitað sé,
en sögu Söndru verður best lýst sem
miklum harmleik.
Í ítarlegu viðtali við DV í ágúst
síðastliðnum lýsti Magga þeim raun-
um sem Sandra og fjölskyldan hafa
gengið í gegnum undanfarin ár.
Meðferð máls Söndru fyrir banda-
rískum dómstólum þykir að mörgu
leyti afar furðuleg en Sandra var
meðal annars dæmd fyrir vopna-
burð án þess að nokkuð vopn hefði
verið til staðar. Þá telur fjölskyldan
að litið hafi verið fram hjá fjölmörg-
um veigamiklum atriðum þegar
dæmt var í málinu auk þess sem það
flækti málið umtalsvert að um var að
ræða tvö rán hvort í sinni sýslunni
í Virginíu, annars vegar Norfolk og
hins vegar Chesapeake.
Reynslulausn var afnumin í
Virginíuríki árið 1995 og eiga fangar
því ekki möguleika á að losna fyrr
út vegna góðrar hegðunar. Sandra
og fjölskylda hennar hyggjast nú
fara fram endurupptöku málsins og
knýja fram réttlæti. Ef allt fer að ósk-
um mun Sandra eiga möguleika á að
sjá Rylan, fimm ára gamlan son sinn,
vaxa úr grasi, og fá jafnframt tækifæri
til að nýta reynslu sína til góðs, en
hana dreymir um að hjálpa öðrum
sem villst hafa af beinu brautinni.
Fékk aldrei að tjá sig
Líkt og fram kom í viðtali DV við
Möggu í ágúst er Sandra fædd á Ís-
landi þar sem hún bjó fyrstu tvö ár
ævinnar, en hún hefur ætíð litið á sig
sem Íslending. Hún þótti efnilegur
námsmaður áður en hún varð háð
sterkum verkjalyfjum í kjölfar slyss
á unglingsárum, auk þess sem hún
varð fyrir alvarlegu kynferðisofbeldi.
Sökk hún í kjölfarið djúpt í neyslu
fíkniefna.
Bandarískir fréttamiðlar greindu
frá því þann 13. ágúst 2013 að ung
kona hefði gengið inn í útibú banka
í hafnarborginni Norfolk í Virginíu,
krafið gjaldkerann um peninga og
gefið í skyn að hún væri með vopn –
með því að hafa aðra höndina ofan í
tösku. Hún hafi flúið út með pening-
ana þar sem 33 ára karlmaður beið
á flóttabíl. Þau hefðu síðan keyrt
yfir til Chesapeake-borgar og rænt
þar annan banka á sama hátt. Um-
rædd kona var Sandra en bílstjórinn
var heróínsalinn hennar, maður
að nafni Duane P. Goodson, en sá
hafði miðað að henni byssu og hótað
henni og fjölskyldu hennar dauða ef
hún hlýddi ekki fyrirmælum hans.
Sandra var handtekin samdægurs og
var samvinnuþýð við lögreglu en það
var fyrir hennar tilstilli að Goodson
náðist tveimur sólarhringum seinna
– með tvær byssur og allan ráns-
fenginn. Sandra var ekki með neitt á
sér við handtökuna.
Mál Söndru og Goodson voru að-
skilin fyrir dómi og voru þau dæmd
hvort í sínu lagi, án þess að fjallað hafi
verið um sameiginlega aðild þeirra
í hvoru máli fyrir sig. Var Sandra
ákærð – og sakfelld – fyrir rán, sam-
ráð um að fremja rán, notkun skot-
vopns í glæpsamlegum tilgangi og
skotvopnaeign í ólöglegum tilgangi –
þó svo að hún hefði hvergi notast við
skotvopn eða verið með það á sér.
Dæmt var síðar í máli Goodson, sem
játaði á sig alla ákæruliðina, og hlaut
hann styttri dóm en Sandra.
Söndru var skipaður lögfræðingur
sem að sögn Möggu hafði lítinn
áhuga á málinu og taldi það aug-
ljóslega tapað frá upphafi. „Hann
sagði henni að játa allt umsvifalaust
og ekki koma með neinar mótbárur;
þá myndi hún fá eins stuttan dóm
og mögulegt væri. Ef hún myndi
neita eða þræta fyrir eitthvað myndi
hún reita dómarann til reiði og fá
mun þyngri dóm. Þar að auki myndi
enginn trúa frásögn hennar. Þetta var
auðvitað bara haugalygi. Hún fékk
aldrei tækifæri til þess að segja sína
hlið, hún fékk aldrei neina almenni-
lega vörn,“ segir Magga og bætir við
að þar af leiðandi hafi aldrei verið
tekið til greina að Sandra hafi verið
þvinguð til verknaðarins.
„Það kemur fram í dómskjölunum
að hún sagði við lögmanninn sinn að
hún hefði verið logandi hrædd um
líf sitt á þessum tímapunkti, enda
vissi hún að maðurinn væri hættu-
legur og til alls vís,“ segir hún jafn-
framt, þess má geta að Goodson bíð-
ur dóms fyrir morð sem framið var
árið 2007.
Þar sem um var að ræða tvö rán
hvort í sinni sýslunni kom ekki ann-
að til greina en að Sandra fengi tvo
dóma, einn fyrir ránið í Norfolk og
annan fyrir ránið í Chesapeake. Fyr-
ir ránið í Norfolk var hún dæmd í
18,7 ára fangelsi. Dómarinn í Chesa-
peake neitaði að leyfa Söndru sitja
báða dómana af sér á sama tíma og
gaf henni því önnur 18,7 ár, samtals
37 ár. Sá dómari hefur nú verið leyst
frá störfum en að sögn Möggu er hún
þekkt fyrir gríðarlega og ósanngjarna
dómhörku og þótti ekki hæf í starfi.
Er það annað atriði sem þau vonast
til að muni hjálpa við endurupptöku
málsins.
Sandra situr nú inni í Fluvanna
Correctional Center for Women –
ríkisreknu kvennafangelsi í Troy, í
rúmlega 90 kílómetra fjarlægð frá
höfuðborginni Richmond. Þar er líf-
ið erfitt og snýst um það eitt að lifa
af; sjálfsögð réttindi fanga eru ítrek-
að hunsuð og aðstæður bágbornar.
Sandra er engu að síður vel liðin af
starfsmönnum fangelsisins að sögn
Möggu; hún hefur stundað nám í
rafmagnsfræðum og liðsinnt ungri
konu í hjólastól við daglegar athafn-
ir. Þá vonast hún til að verða innan
tíðar flutt í þá álmu fangelsisins sem
hýsir „góða“ fanga, sem ekki hafa
sýnt af sér hættulega eða ógnandi
hegðun.
„Þau skilja ekki hvað hún er að
gera þarna, og finnst ótrúlegt að hún
sitji inni fyrir vopnað rán. Hún er svo
frábrugðin öllum hinum föngunum,
þeim finnst hún svo róleg og þægi-
leg.“
Óska eftir hjálp
Fjölskyldan hefur sett nú sett sig í
samband við lögfræðing sem kann-
að hefur möguleika þess að sækja
um svokallaða náðun, eða „clem-
ency“, hjá ríkisstjóra Virginíufylkis.
Sá er vongóður að sögn Möggu, og
telur allar líkur á að hægt sé að fá
dóminn styttan til muna. Magga seg-
ir ekkert annað koma til greina en að
berjast fyrir réttlæti í málinu.
Í Bandaríkjunum hafa almennir
þegnar ekki alltaf efni á réttlæti. Fjöl-
skyldan hefur þegar varið nokkrum
hundruðum þúsunda í undirbún-
ingsvinnu lögfræðingsins en þarf nú
að reiða fram rúmlega tvær milljónir
íslenskra króna í lögfræðikostnað
svo hægt sé að halda vinnunni áfram
og taka málið alla leið. Til þess þurfa
þau hjálp og hafa því komið á lagg-
irnar söfnun undir nafninu Réttlæti
fyrir Söndru. n
Hægt er að leggja Söndru og fjöl-
skyldu hennar lið með því að leggja
inn á söfnunarreikning 0565-26-
130260, kt. 081062-5879.
PLUSMINUS OPTIC
Smáralind
www.plusminus. is
Sumar
kaupauki
Sólgler
með öllum gleraugum
Index 1,5*
Sjóngler
2/1
Tveir fyrir einn
MARGSKIPT SJÓNGLER
Tilboð: tveir fyrir einn
www.plusminus.is
Ætla að ná fram réttlæti
Margrét Fenton, móðir Söndru, vonast til að dómurinn yfir dóttur sinni verði styttur
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is
„Hún er svo frá-
brugðin öllum
hinum föngunum, þeim
finnst hún svo róleg og
þægileg.
Mæðgur Margrét
og Sandra þegar
lífið var betra.