Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2016, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2016, Page 24
Vikublað 1.–3. nóvember 201620 Sport Í fremstu röð sjö árum eftir stofnun n RB Leipzig enn taplaust við topp deildarinnar í Þýskalandi n Klúbburinn var stofnaður 2009 Á ður en tímabilið hófst í þýsku Bundesligunni í knattspyrnu bjuggust flestir við að nýliðar RB Leipzig yrðu í basli í neðri hluta deildarinnar. Einhverjir áttu þó von á að liðið gæti komið á óvart og blandað sér í baráttuna um sæti í Evrópudeildinni, en jafnvel þeir allra bjartsýnustu áttu ekki von á því að í nóvember yrði liðið enn taplaust og í harðri baráttu við FC Bayern á toppi deildarinnar. Eftir níu umferðir eru nýliðarnir í 2. sæti, tveimur stig- um frá Bayern. Stofnað 2009 Öskubuskuævintýri RB Leipzig hefur verið lyginni líkast enda var félagið stofnað fyrir sjö árum, árið 2009. Ár- angurinn þarf þó ekki að koma á óvart sé litið til fjárhagslegra bak- hjarla félagsins. RB Leipzig, sem heit- ir fullu nafni RasenBallsport Leipzig, var stofnað að frumkvæði Red Bull GmbH, fyrirtækis sem er líklega best þekkt fyrir samnefnda orkudrykki. Red Bull sterkur bakhjarl Á undanförnum árum hefur Red Bull gert sig gildandi í íþróttum og á fyr- irtækið nokkur knattspyrnu félög. Má þar nefna Red Bull Salzburg í Austurríki og New York Red Bulls í Bandaríkjunum. Þá á fyrirtækið lið í Formúlu 1, Red Bull Racing, sem heimsmeistarinn Sebastian Vettel ók fyrir í mörg ár. Fyrirtækið veltir milljörðum á milljarða ofan á hverju ári og frá stofnun hafa djúpir vasar eigendanna komið félaginu að gagni. Þó að pen- ingar séu til staðar hefur félagið ekki varið mörgum milljörðum í nýja leik- menn á hverju sumri og því hefur ár- angurinn í haust komið á óvart. Tve- ir dýrustu leikmennirnir sem félagið hefur keypt eru Skotinn Oliver Burke og Gíneumaðurinn Naby Keita sem hvor um sig kostaði fimmtán milljón- ir evra í sumar. Naby kom frá Red Bull Salzburg sem, eins og áður greinir, er einnig í eigu Red Bull. Annar leik- maður sem kom í sumar, brasilíski bakvörðurinn Bernardo, var einnig í eigu Red Bull Salzburg. Stóru klúbbarnir eyða meira Í sumar keypti félagið leikmenn fyrir 50 milljónir evra, í fyrrasumar fyrir 26 milljónir evra og sumarið 2014 voru keyptir leikmenn fyrir 23,3 milljónir evra. Síðastliðin þrjú ár hefur félagið því eytt tæpum 100 milljónum evra í nýja leikmenn. Til samanburðar hef- ur stórlið FC Bayern keypt leikmenn fyrir 211 milljónir evra, Dortmund 194 milljónir evra, Wolfsburg 159 milljónir evra og Bayer Lever kusen Örugg hýsing gagna Traustur rekstur tölvukerfa Sérhannaðar hugbúnaðarlausnir Hádegismóum 4 · 110 Reykjavík · 547 0000 · premis.is Við erum alltaf með lausnir Við sérhæfum okkur í uppsetningu og þjónustu við fyrirtæki sem vilja nýta sér kosti Office 365. Við erum svo sannarlega á heimavelli þar enda höfum við aðstoðað á annað hundrað fyrirtæki og sveitarfélög í vegferð þeirra í Office 365. SharePoint OneDrive CRM Office 2016 Yammer Exchange Skype for businessDelve Power BI ÞETTA ER OKKAR HEIMAVÖLLUR Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Marki fagnað Leikmenn RB Leipzig fagna hér marki í sigurleik gegn Werder Bremen á dögunum. Markið skoraði Naby Keita sem er annar af dýrustu leikmönnum félagsins frá upphafi. Staðan í Þýsku deildinni L U J T Mörk Mun. Stig 1 Bayern 9 7 2 0 23 - 5 +18 23 2 RB Leipzig 9 6 3 0 17 - 6 +11 21 3 Hoffenheim 9 5 4 0 17 - 10 +7 19 4 Cologne 9 5 3 1 16 - 6 +10 18 5 Hertha 9 5 2 2 14 - 10 +4 17 6 Dortmund 9 4 3 2 20 - 10 +10 15 7 Eintracht Frankfurt 9 4 3 2 13 - 8 +5 15 8 Freiburg 9 5 0 4 13 - 13 0 15 9 Mainz 9 4 2 3 16 - 15 +1 14 10 Bayer 9 4 1 4 13 - 13 0 13 11 Borussia M. 9 3 3 3 10 - 12 -2 12 12 Schalke 04 9 2 2 5 10 - 11 -1 8 13 Augsburg 9 2 2 5 8 - 14 -6 8 14 Darmstadt 9 2 2 5 8 - 17 -9 8 15 Werder 9 2 1 6 11 - 24 -13 7 16 Wolfsburg 9 1 3 5 6 - 13 -7 6 17 Ingolstadt 9 0 2 7 7 - 19 -12 2 18 Hamburger 9 0 2 7 2 - 18 -16 2

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.