Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2016, Qupperneq 30
Vikublað 1.–3. nóvember 201626 Menning
Við tökum upp söngvara,
hljóðfæraleikara, hljómsveitir,
hljóðbækur, og margt fleira
Stúdíó
NORN
Síðumúla 17, 108 Reykjavík • Sími 561 7200 • studionorn.is • facebook.com/studionorn
Íslensk samtímaorðræða
í biblíuskotnum stíl
Ólafur Guðsteinn tekst á við hvunndags-Frankenstein
F
jöldinn allur af
áhugaverðum sjálf-
útgefnum ritverk-
um kemur út fyrir
jólin en flýgur lágt und-
ir radarinn hjá fjölmiðl-
um og á bóksölulistum.
Eitt þeirra er Bréf, áeggj-
anir og hugleiðingar um
lífsbrandarann, önnur
bók Ólafs Guðsteins
Kristjánssonar, sem er
meðal annars þekktur
sem söngvari pönksveit-
arinnar Örkuml og til-
raunarokksveitarinnar Skátar.
Ólafur Guðsteinn segir að bók-
in sé í raun nokkuð rökrétt fram-
hald af tónlistarsköpuninni, þar sem
áherslan hafi verið á að gera einfald-
lega það sem menn vildu og líkaði
burtséð frá því hvað öðrum fannst.
„Ég vil meina að heilmikið pönk og
heilmikið helvíti sé í henni að finna,
þannig að maður notist við þennan
þekkta Húsavíkur-frasa, allavega í
fyrri hlutanum, en verkið skiptist í
tvo hluta á ótölusettum síðum,“ segir
hann.
Bókin er samansafn dagsettra
tækifærisræða, auglýsinga, bréfa
og ýmiss konar áeggjana sem virð-
ast endurspegla íslenska samtíma-
orðræðu en í ólíkt uppskrúfaðri og
biblíu skotnari stíl en gengur og ger-
ist í heitum pottum og í kommenta-
kerfum landsmanna.
„Samnefnari fyrir ræðumann,
ef við notumst við það heiti, er svo
að segja hvunndags-Jói eða ef til
vill minn hvunndags-Franken-
stein, enda eru persónurnar ótta-
leg skrímsli, kannski marghöfða
skrímsli,“ útskýrir Ólafur.
„Útgangspunkturinn var sá að
ég fylgist, eins og gengur og gerist,
með samfélagsumræðunni og þar er
sannarlega ekki allt sem látið er frá
sér fara löðrandi í vitsmunum og því
síður sýnir fólk færni á ritvellinum,
Níu listamenn sem DV mælir með á Iceland Airwaves 2016
H
in árlega tónlistarveisla
Iceland Airwaves hefst á
miðvikudag og stendur í
fimm daga víðs vegar um
Reykjavík. Yfir tvö hundruð
listamenn munu koma fram á
fimmtán tónleikastöðum sem hluti
af opinberri dagskrá hátíðarinnar. Þá
munu fjölmargir aðrir koma fram á
off-venue tónleikum sem fara fram í
nánast hverri einastu kytru og knæpu
miðbæjarins í hátíðarvikunni. Það er
því hægara sagt en gert að ákveða
hvað skal sjá og heyra, og því auð-
veldar DV lesendum valið með því
að kynna feyrir þeim níu áhugaverða
listamenn sem koma fram á hátíð-
inni. Hægt er að heyra lög með lista-
mönnunum á dv.is. n
Frankie Cosmos
Föstudagur 23.30, Gamla Bíó.
Frankie Cosmos er listamannsnafn hinnar 22 ára gömlu Gretu
Kline (dóttur leikaranna Kevins Kline og Phoebe Cates) sem
spilar lágstemmt, glaðlegt indípopp þar sem misbrestir og
tæknilegur ófullkomleiki í tækni og færni er notaður tónlistinni
til framdráttar. Eðal krúttpopptónlist fyrir velmegunarkrakka
sem kunna ekki að meta glansfagurfræði kapítalismans.
Dizzee Rascal
Miðvikudagur kl. 00.10, Harpa Silfurberg.
og Kano
Laugardagur kl. 01.00, Valshöllin.
Tveir af frumkvöðlum bresku grime-tónlistarinnar mæta
á Iceland Airwaves – en hvor í sínu lagi þó – Dizzee Rascal
og Kano. Grime er hljóðheimur, rappstíll og fagurfræði
sem þróaðist á sjóræningjaútvarpsstöðum í innhverfum
og fjölmenningarlegum félagsíbúðum Lundúna í upphafi
árþúsundarins. Taktarnir eru harðir, rappið hratt, og
uppfullt af agressjón og breskum húmor. Dizzee Rascal var
ekki orðinn tvítugur þegar hann sló í gegn með plötunni
Boy in da Corner árið 2003, og varð þar með fyrsta stjarna
grime-sins og fyrsti breski rapparinn til að ná alheimshylli.
Kano hefur einnig verið viðloðandi senuna frá aldamótum
og notið nokkurra vinsælda í Bretlandi en er fyrst núna að
fá almennilega athygli utan heimalandsins. Hann hlaut
meðal annars tilnefningu til Mercury-verðlaunanna fyrir
nýjustu plötuna sína.
Julia Holter
Fimmtudagur kl. 21.00,
Hafnarhúsið.
Tónlist Juliu Holter er einstak-
lega hlý og alúðleg, það
hefur verið nostrað við hvert
smáatriði til að skapa leiðslu-
kennda indípopptónlist þar
sem einkennandi viðmótsþýð
rödd Holter og grípandi
melódíur eru í aðalhlutverki.
Þetta er „feel-good“ tónlist
fyrir myrk haustkvöld.
Amnesia
Scanner
Fimmtudagur kl. 00.20,
Harpa Kaldalón.
Tilraunakennd raftónlist úr
myrkustu húsasundum Berlínar-
borgar verður á boðstólum í
Kaldalóni eftir að ljóðakvöldi
hátíðarinnar, Airwords, lýkur. Hér
er tónlist uppfull af ónotakennd,
framtíðarsýnum og dansvænum
töktum frá mönnum sem hafa
unnið með Holly Herndon og Mykki
Blanco. Þetta er „must-hear“ fyrir
framsækna frændann.
Kate Tempest
Laugardagur kl. 23.30, Gamla Bíó.
Kate Tempest er bresk skáldkona, leikskáld og rappari sem hefur
vakið athygli fyrir ljóð sín sem hún hefur ýmist flutt með eða án
tónlistar. Smám saman færði hún sig úr ljóðaslammsenunni og
yfir í rappheiminn. Nýjasta platan hennar er 48 mínútna ljóðverk
í rappstíl um örvilnaða og arðrænda íbúa fátækrar götu í Suður-
London. Tónlistin er hrá bassadrifin raftónlist sem fer vel við
tilfinningaþrunginn flutninginn.
Kano
Dizzee
RascalRapparar, skáldkonur og
þroskahamlaðir pönkarar