Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2016, Blaðsíða 24
Vikublað 29. nóvember–1. desember 201624 Fólk Viðtal
É
g er fæddur í Reykjavík, en er
uppalinn á Flateyri og er Vest-
firðingur í húð og hár. Föður-
ætt mín er að vestan og hafði
sterkar rætur í samfélaginu.
Langalangafi minn keypti jörðina
Eyri um miðja nítjándu öld og hóf
þar þilskipaútgerð. Síðan þá hefur
fjölskylda mín búið þar með einum
eða öðrum hætti. Ég lít því á mig sem
Vestfirðing og landsbyggðarmann.
Þótt ég hafi seinni ár verið búsettur á
höfuðborgarsvæðinu, fyrst í mennta-
skólanámi, svo háskóla og við önnur
störf, þá nýtti ég alltaf öll tækifæri til
að fara vestur. Á sumrin fór ég á sjó
GlerborG
Mörkinni 4, reykjavík | SíMi 565 0000 | www.GlerborG.iS
Þess eru nokkuð mörg dæmi að börn þingmanna hafi tekið við kefli foreldra
sinna og sest á þing. Þannig er með Teit Björn Einarsson, nýkjörinn þingmann
Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Teitur er sonur Einars Odds Kristjáns-
sonar heitins, þingmanns Sjálfstæðisflokksins í sama kjördæmi. Teitur segist
samt ekki markvisst feta í fótspor föður síns en er þó stoltur af því sem þeir eiga
sameiginlegt. Hjarta hans slær fyrir vestan, á Flateyri, og hann er tilbúinn til að
leggja sitt af mörkum fyrir framgang æskuslóðanna.
Rennur
blóðið til
skyldunnar
fyrir Flateyri
Freyr Rögnvaldsson
freyr@dv.is