Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2016, Blaðsíða 30
Vikublað 29. nóvember–1. desember 20166 Farðu norður - Kynningarblað
D
j Grill er heimilislegur,
vinalegur og þægilegur
hamborgarastaður í mið
bæ Akureyrar. Staðurinn
stendur fyllilega undir
þessum þremur lýsingarorðum því
þú getur komið með fjölskyldunni
og sest niður í róleg
heitum og feng
ið þér hamborgara,
samloku eða aðra
smárétti. Þú getur
líka skotist í hádegis
pásunni og fengið þér
einn snöggan borgara
og ef áhugi er fyrir
hendi er lítið mál að
koma og horfa á bolt
ann á Dj Grilli. Þar
eru sýndir flestir leikir
sem eru á dagskránni
í enska boltanum og í
meistaradeildinni.
Núverandi eigend
ur tóku við staðnum
fyrir að verða átta árum, þrátt fyrir
að vera á þeim tíma í tveimur öðr
um störfum, að byggja sér húsnæði
og með búskap til hliðar!
„Þetta byrjaði allt í
hálfgerðu gríni“
„Það vantaði rekstraraðila fyrir
staðinn og Elva Sigurðardóttir og
maðurinn hennar, Snæbjörn Sig
urðsson, ákváðu að slá til og prófa.
Þau tóku við rétt fyrir verslunar
mannahelgina og vissu ekkert út í
hvað þau voru að fara, og varðandi
tilsögn um reksturinn treystu hjón
in á starfsfólkið og eiganda.
Þetta gekk mun betur en nokkur
hafði þorað að vona og nokkrum
mánuðum síðar urðu eigenda
skipti. Stuttu eftir það hætti Elva í
sinni vinnu og hefur síðan einung
is komið að Dj Grilli. Snæbjörn
er smiður og búskapurinn er enn
á sínum stað, sumir virðast
bara hafa fleiri tíma í sólar
hringnum en aðrir.
Staðurinn hefur tekið miklum
breytingum síðan árið 2008, bæði
útlitslega og varðandi matseðill
inn. Fjölskyldan er nánast öll með
annan fótinn á svæðinu, en starfs
mannahópurinn stækkar ört eftir
því sem líður á. Einn starfsmaður
hélt áfram eftir eigendaskiptin og
stendur enn vaktina við grillið og
er hann löngu orðinn einn af fjöl
skyldunni.“
Zurgbassi langvinsælastur
„Staðurinn á orðið stóran
fastakúnnahóp en sem betur fer
sjáum við líka mörg ný andlit,“
segja Elva og Snæbjörn. „Það gleð
ur okkur líka alltaf jafn mikið þegar
utanbæjarfólk kemur aftur og aftur
til okkar þegar það á erindi til Akur
eyrar. Þrátt fyrir að ostborgarinn sé
alltaf klassískur hefur hamborgari
sem við köllum Zurgbassa slegið í
gegn og er sá allra, allra vinsælasti á
seðlinum hjá okkur en hann er með
piparosti og fleira góðgæti. Flestir
hamborgararnir hjá okkur hafa
stafina Dj fyrir framan; Dj Maggi,
Dj Hulda og svo framvegis, en þess
má geta að þegar við tókum við
staðnum voru þetta helstu nöfnin
sem voru að spila á Akureyri á þeim
tíma. Zurgbassi er t.a.m. sviðsnafn
sem Ingi Þór, sonur okkar, og vinur
hans notuðu þegar þeir spiluðu.“ n
Dj Grill Strandgata 11,
600 Akureyri Sími: 462–1800,
www.facebook.com/Dj-Grill
Dj Grill:
Frábær hamborgarastaður
í miðbæ Akureyrar