Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2016, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2016, Blaðsíða 38
Vikublað 29. nóvember–1. desember 201630 Skrýtið Sakamál S HELGASON - Steinsmiðja síðan 1953 Opnunartími Mán - fim 9:00 -18:00 Föstudaga 9:00 - 17:00 Laugardaga 10:00 -14:00 Sími: 557 6677 Netfang: shelgason@shelgason.is www.shelgason.is R ick og Suzanna Wamsley voru ströng við börn sín, Söruh og Andrew. En þau höfðu einnig gætt þess að sinna þeim af kostgæfni. Rick hafði unnið víða fyrir olíufyrir- tæki; meðal annars í Houston, Salt Lake City og Dallas og hvar sem fjölskyldan hafði búið hafði tilvera foreldranna snúist um börnin og heimilið. Máltækið segir; sjaldan launar kálfurinn ofeldið og sú varð einmitt raunin í Wamsley-fjölskyldunni og dró til tíðinda að kvöldi 11. desem- ber, 2003, á heimili hennar í Mans- field í Texas. Vinir kallaðir til Eitthvað virðist Andrew, þá 29 ára og bjó enn í foreldrahúsum, hafa verið uppsigað við foreldra sína. Hann vildi þá feiga en í stað þess að ganga sjálfur í málið leitaði hann liðsinnis vina sinna. Fyrrnefnt kvöld voru Wamsley- hjónin stungin og skotin til bana heima hjá sér. Þar var að verki vin- kona Andrews, Susana Toledano, en ódæðið var skipulagt af Andrew, kærustu hans, Chelsea Richardson, og Susönu. Markmiðið með morðunum var að komast yfir eignir foreldra Andrews sem metnar voru á 1,65 milljónir Bandaríkjadala. Höfðu þremenn- ingarnir ráðgert að myrða Söruh, systur Andrews, líka, en hún var ekki heima umrætt kvöld. Ósætti vegna Chelsea Kastast hafði í kekki með Andrew og foreldrum hans þegar hann hóf samband með Chelsea, í janú- ar 2003. Chelsea ólst upp í verka- mannahverfi í Tarrant-sýslu í Texas og hver veit nema uppruni hennar hafi valdið því að foreldrar Andrews lögðu ekki blessun sína yfir sambandið og settu son út af sakramentinu. Andrew og Chelsea höfðu byrj- að að leggja á ráðin í október og Susana, sem var herbergisfélagi Chelsea í Joe C. Bean-miðskólan- um, tekið þátt í ráðabrugginu. Þvinguð til verknaðarins Að sögn var Susana neydd til að taka ódæðið að sér, með hvaða hætti fylgir þó ekki sögunni. Henni hafði að auki, mánuði fyrr, 9. nóvember, verið gert að skjóta að bensín tanki jeppabifreiðar Wamsley-hjónanna. Eins og ljóst má vera mistókst sú morðtilraun. Þremenningarnir áttu sér vit- orðsmann. Sá var Hilario Cardenas, framkvæmdastjóri IHOP-veitinga- staðar (International House of Pancakes) í Arlington í Texas. Hann hafði gefið ráð varðandi með hvaða hætti best væri að koma hjónunum fyrir kattarnef. Einnig útvegaði hann byssuna sem notuð var við morðin. Málalyktir Susönu var ljóst að samninga var þörf svo hún héldi líftórunni. Í jan- úar 2005 játaði hún sig seka um morðin á Wamsley-hjónunum. Hún samdi við ákæruvaldið um að vitna gegn Andrew og Chelsea og tókst þannig að næla sér í lífstíðar- fangelsi í stað dauðadóms. Réttarhöld yfir Chelsea hófust í maí 2005. Hún var talin „ógn við samfélagið“ og lagði kviðdómur framburð Susönu og samfanga Chelsea til grundvallar þegar örlög hennar voru ákveðin. Eftir rétt rúmlega tveggja tíma íhugun varð niðurstaðan dauðadómur. Réttað var yfir Andrew árið 2006. Einhverra hluta vegna var hann ekki talinn „ógn við samfélag- ið“. Hann fékk lífstíðardóm og get- ur sótt um reynslulausn árið 2044. Hilario Cardenas játaði sína aðild að málinu og fékk fyrir vikið 50 ára dóm. n Ósætti og auður n Foreldrar Andrews voru efnaðir n Hann ásældist eignir þeirra Andrew Wamsley Var upp á kant við foreldra sína. Vinkonur og herbergisfélagar Susana (t.v.) og Chelsea lögðu á ráðin með syni Wamsley-hjónanna. Fórnarlömbin Rick og Suzana voru skotin og stungin til bana á heimili sínu. „Höfðu þremenn- ingarnir ráðgert að myrða Söruh, systur Andrews, líka, en hún var ekki heima umrætt kvöld.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.