Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2016, Blaðsíða 8
Vikublað 29. nóvember–1. desember 20168 Fréttir
Þ
etta er úti um allt land eigin
lega. Það er ómögulegt að
segja hvað kærurnar verða
að lokum margar. Flestar
stúlkurnar sem hafa lagt
fram kæru eru fæddar á bilinu 1999
til 2002,“ segir Sveinbjörn Halldórs
son, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni
á Suðurnesjum í samtali við DV.
Tugir kæra hafa komið inn á
borð lögreglunnar á Suðurnesjum
frá því að Adam Pilecki var
fyrst handtekinn þann 17.
nóvember síðastliðinn. Lög
reglan lítur málið grafalvar
legum augum. Adam er grun
aður um að hafa birt myndir
af minnst 88 íslenskum ung
lingsstúlkum, undir lögaldri,
á vefsíðu sinni. Þar var villt
um fyrir um notendum sem
töldu þjónustu stúlknanna
vera til sölu.
Þá er Adam grunaður um að
hafa áreitt unglinga undir lög
aldri sem og vörslu barnakláms og
blygðunarbrot. Fleiri mál er tengj
ast Adam eru til rannsóknar hjá lög
reglunni á Suðurnesjum.
„Málið er mjög umfangsmikið
og rannsókn er í fullum gangi,“ segir
lögreglufulltrúi sem er yfir rann
sókn málsins.
Fór í loftið í október
Adam sem er fæddur árið 1973 er
pólskur en hefur verið búsettur
á Íslandi undanfarin ár. Í byrj
un október síðastliðinn auglýsti
Adam, sem er búsettur á Ásbrú, á
persónulegri Facebooksíðu sinni
að von væri á vefsíðu með „íslensk
um fegurðardísum.“ Síðan fór í loft
ið skömmu síðar en hefur nú verið
lokað.
Þar voru myndir af 88 íslenskum
stúlkum og gefið í skyn að þær byðu
upp á fylgdarþjónustu. Þegar smellt
var á myndirnar færðist notandinn
hins vegar yfir á svæsnar erlendar
klámsíður. Stúlkurnar sem hafa lagt
fram kæru eru flestar á aldrinum
14–16 ára gamlar en Pilecki tók
myndir af stúlkunum af Facebook
síðum þeirra.
Engar klámfengnar myndir voru
birtar af stúlkunum sjálfum en sam
hengið sem myndirnar voru sett
ar í varðar við lög. Þá er Pilecki
grunaður um að hafa kynferðislega
áreitt nokkur fórnarlömb sín.
Tilvist síðunnar barst lög
reglu fyrst til eyrna eftir að árvök
ull meðlimur Facebooksamfé
lagsins Beauty Tips vakti athygli á
henni. Miklar umræður spunnust um síðuna sem
varð að lokum
til þess að for
eldrar og for
ráðamenn fjöl
margra stúlkna,
sem voru mynd
birtar á síðunni,
mættu ásamt
dætrum sínum
og lögðu fram
kæru.
Enn í gæsluvarðhaldi
Adam Pilecki var handtekinn þann
17. nóvember síðastliðinn. Hann
var úrskurðaður í gæsluvarðhald í
vikutíma en það var síðan framlengt
um aðra viku, til föstudagsins 2. des
ember. Þess var krafist á grundvelli
rannsóknarhagsmuna og hættu á
áframhaldandi brotum. Adam er
grunaður um ærumeiðingar og
blygðunarbrot gagnvart stúlkunum.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun
um hvort lögregla krefjist áfram
haldandi gæsluvarðhalds yfir Adam.
Sveinbjörn Halldórsson staðfesti
í samtali við DV að enn væru stúlkur
að stíga fram vegna málsins.
„Það er verið að leggja fram kæru
í þessum orðum töluðum,“ sagði
Sveinbjörn og bætti við að jafn
framt hefðu kærur verið lagðar fram
á Akureyri sem og annars staðar á
landinu.
Sveinbjörn segir lögregluna hafa
tekið málið föstum tökum. „Hann er
enn í gæsluvarðhaldi og þrír af fjórum
rannsóknarlögreglumönnum hjá
okkur á Suðurnesjum eru eingöngu
að vinna í málinu. Það endurspeglar
alvarleika málsins.“
Enginn annar er grunaður í málinu
en Sveinbjörn telur að flestar stúlk
urnar, sem birtust á vefsíðu Adams,
hafi verið valdar af handahófi.
Neitar sök í málinu
„Samkvæmt þeim gögnum sem ég
hef fengið eru myndirnar af stúlk
unum ekki grófar.“ Þetta segir Daníel
Reynisson, verjandi mannsins.
Inntur eftir svörum um hvort
Adam sé grunaður um önnur brot
segir Daníel. „Nei, ég get ekki sagt
það. Það er aðallega þetta.“
Þá segir Daníel að þar sem hann
hafi enn ekki fengið aðgang að öll
um rannsóknargögnum lögreglu í
málinu telji hann ekki forsvaran
legt að hann tjái sig opinberlega um
málið að svo stöddu.
Eftir að DV óskaði eftir viðtali
við Adam vegna málsins bárust þau
svör að hann legðist gegn því að fjöl
miðlar fjalli um málið á þessu stigi.
Ef sú ósk yrði ekki virt vildi hann
þó koma því á framfæri að hann
neiti sök í málinu. Adam kveðst að
auki halda úti nokkrum vefsíðum í
markaðslegum tilgangi.
„Það er líka annað mál á bak við
þetta. Það eru fleiri mál í gangi sem
tengjast honum. Ég get því miður
ekki sagt meira að sinni. Málið er
mjög umfangsmikið og rannsókn
er í fullum gangi,“ segir Sveinbjörn
Halldórsson. n
Dalvegur 6-8 • 201 Kópavogur • Sími 535 3500
Draupnisgata 6 • 603 Akureyri • Sími 535 3526
www.kraftvelar.is • kraftvelar@kraftvelar.is
BT rafma
gnstjakk
ar
- auðveld
a verkin
!
• 1300 kg. lyftigeta
• 24V viðhaldsfrír rafgeymir
• Innbyggt hleðslutæki (beint í 220V)
• Aðeins 250 kg. að þyngd
Fleiri stúlkur stíga fram
Fleiri mál sem tengjast Adam eru til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurnesjum
Kristín Clausen
kristin@dv.is
Valdar af handahófi Lögregla
segir að svo virðist vera sem
stúlkurnar hafi verið valdar af
handahófi.
Adam Pilecki
Tugir kæra Fjölmargar
kærur liggja nú á
borði lögreglunnar á
Suðurnesjum. Adam situr
í gæsluvarðhaldi vegna
málsins.