Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2016, Blaðsíða 33
Vikublað 29. nóvember–1. desember 2016 Fólk Viðtal 25
og vann við fiskvinnslu fyrir vestan.
Vegna vinnunnar er ég nú allt að því
með annan fótinn fyrir vestan, mér til
mikillar ánægju. Römm er sú taug er
rekka dregur föðurtúna til.“
Snjóflóðið markaði alla
Árið 1995 settist faðir Teits, Einar Odd-
ur Kristjánsson, á þing sem þingmað-
ur Vestfjarða og hélt því fjölskyldan
annað heimili í Reykjavík að vetrum.
„Ég tók tíunda bekk í Hagaskóla og
það blasti nokkuð við að feta slóðina
í Menntaskólann í Reykjavík, enda
fannst mér hann heillandi og hann
hafði orð á sér fyrir að vera góð-
ur skóli, sem hann var. Félagsmálin
heilluðu auk þess sem námslega var
skólinn auðvitað sterkur. Þetta var
góður tími, ég kynntist góðu fólki sem
er vinir mínir enn í dag.“
Þann 26. október árið 1995 féll
stórt snjóflóð á byggðina á Flateyri.
Tuttugu manns týndu lífi í flóðinu og
olli það einnig gríðarlegu eignatjóni.
Flóðið hafði mikil áhrif á Teit og hans
fjölskyldu, líkt og Flateyringa alla.
„Snjóflóðið, þessi hræðilegi atburður,
markaði alla Flateyringa fyrir lífs-
tíð meira og minna. Það skildi eftir
sig gríðarlega stórt sár í samfélaginu
og auðvitað einkum hjá þeim sem
misstu nána ástvini og fjölskyldu.
Þetta hefur mótað mína kynslóð og
minn vinahóp frá Flateyri mikið.
Við áttuðum okkur ekkert á því þá
kannski, við upplifðum vissulega öll
mikla erfið leika, en það hefur síð-
an komið í ljós hvað þessi vinahóp-
ur, þessir árgangar, hafa haldið mikið
saman. Það er mikil samstaða og kær-
leikur milli allra og það hefur haldist
allt til þessa dags. Ég held að það hafi
bæst ofan á þá nánd sem lítil samfélög
eins og Flateyri skapa. Þessi atburður
var svo hræðilegur að það er erfitt að
lýsa því hvað þetta fékk mikið á alla.
Það er kannski fyrst núna sem sumir
eru að byrja að opna sig og ræða at-
burðina. Það er ekkert sem undirbýr
mann fyrir svona hörmungar. Ég held
að Flateyringar hafi staðið sig vel sem
hópur, sem samfélag, við að vinna úr
þessu.“
Minning um þögn
Teitur segir að hann hafi verið
staddur heima við í Reykjavík þegar
að flóðið féll. „Það var enginn í minni
nánustu fjölskyldu sem lenti í flóð-
inu eða hlaut af því beinan skaða.
Við vorum lánsöm hvað það varðar.
Ég upplifði þetta samt mjög sterkt. Ég
man eftir símtali, það var náinn sam-
starfsmaður föður míns sem hringdi
um nóttina og ég svaraði í símann.
Ég heyrði þegar hann spurði eftir föð-
ur mínum, á rödd hans, að eitthvað
mjög alvarlegt hafði gerst. Ég man
eftir að hafa vakið föður minn, hann
fór í símann og sagði halló. Svo sagði
hann ekki neitt annað heldur hlustaði
bara. Þetta er fyrsta minning mín um
að þetta hafi gerst, þetta samtal þeirra
tveggja sem fól í sér þögnina eina á
öðrum enda línunnar. Ég veit að þetta
fékk gríðarlega á foreldra mína og alla
í kringum mig. Þau, sem og allir aðr-
ir, gerðu sitt besta til að hefja upp-
byggingu, hlúa að þeim sem höfðu
misst ástvini sína og eignir. Ég fullyrði
að Flateyringar vita að það var margt
og mikið vel gert og eru þeir mjög
þakklátir öllum sem að komu; þeim
sem tóku þátt í björgunaraðgerðum,
þeim sem hér fyrir sunnan tóku á
móti fólki sem þurfti að hefja líf sitt að
nýju, fyrir söfnunina sem fór af stað
og alla þá aðstoð sem var veitt. Fyrir
þetta eru Flateyringar mjög þakklátir.“
Pólitíkin genatísk veila
Teitur gerðist snemma áhugasamur
um félagsmál og pólitík. „Ég hef
alltaf haft þörf fyrir að taka þátt í fé-
lagsmálum. Bæði er það gefandi og
skemmtilegt og auk þess hittir maður
skemmtilegt og gott fólk. Þessi áhugi
minn virðist mér hafa verið í blóð
borinn en auðvitað hefur uppeldið
að einhverju leyti haft áhrif. Móðir
mín var stöðugt að ýta á eftir mér að
taka þátt í félagsmálum, íþróttum,
tónlist, leiklist, og ég bý að því. Ég hef
sagt í gamansömum tón að pólitískur
áhugi sé að einhverju leyti genatísk
veila sem maður verður að lifa með.“
Spurður hvort hann hafi ein-
hvern tímann tekið þátt í pólitísku
starfi annarra flokka en Sjálfstæðis-
flokksins svarar Teitur neitandi. „Ég
hef verið viðloðandi þátttöku í starfi
Sjálfstæðisflokksins meira og minna
alveg frá því að ég tók þátt í prófkjöri
sem faðir minn fór í 1994. Ég komst
fljótt að því að það sem Sjálfstæðis-
flokkurinn stóð fyrir væri það sem
stæði næst mínum skoðunum. Eft-
ir því sem árin hafa liðið hefur sú
skoðun mín styrkst. Þess vegna ákvað
ég svo að gefa kost á mér í framlínu
flokksins, gefa kost á mér í prófkjöri
fyrir alþingiskosningar. Árangurinn
var mjög ánægjulegur, hann var góð-
ur fyrir Sjálfstæðisflokkinn í heild og
mjög góður í Norðvesturkjördæmi.
Við frambjóðendur skynjuðum
Styrkja þarf byggð-
irnar Teitur segir kominn
tíma til að viðurkenna að
taka þurfi tillit til byggða-
sjónarmiða þegar hlutast
er til um sjávarútveginn.
Mynd Sigtryggur Ari
Stoltur Teitur fetar
stoltur í fótspor föður síns
en segir það ekki mark-
visst gert. Mynd Sigtryggur Ari
Borgartún 23, Reykjavík / Sími: 561 1300 / Opið: mán. - fös. 10-18, lau. 11-18 & sun. 12-16
Þú getur líka pantað á netinu www.reykjavikurblom.is
Blóm og gjafavara
við öll tækifæri
Góð og
persónuleg
þjónusta
Skírn - Fermingar - Brúðkaup - Samúð - Útfarir
Fiskur er okkar fag - Staður með alvöru útsýni
Óskum öllum okkar
viðskiptavinum
gleðilegra jóla og
farsæls nýs árs
Kvöldmatseðill á jólum og fram til nýárs!
Sennilega vinsælasti matsölustaður á Suðurnesjum
Opið alla hátíðisdaga frá kl. 18 - 22
Restaurant
Duusgata 10 • 230 Keflavík • Telephone 421 7080 • duus@duus.is
-við smábátahöfnina í Keflavík
i r r r f - t r l r t i
sku öllu okkar
viðskiptavinu
gleðilegra jóla og
fars ls nýs árs
il i s l sti ts l st r r sj
i ll tí is fr l. -
est r t
t 1 • fl í • l 1 • .i
-við s ábátahöfnina í eflavík