Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2016, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2016, Blaðsíða 26
Vikublað 29. nóvember–1. desember 20162 Farðu norður - Kynningarblað Flutningar á Akureyri og um allt land KG Sendibílar K G Sendibílar er lítið flutninga­ fyrirtæki sem þó sinnir fjöl­ breyttum og umfangsmiklum flutningum. Fyrirtækið er staðsett á Akureyri og sinnir jöfnum höndum búslóðaflutning­ um fyrir bæjarbúa og verkefnum fyrir fyrirtæki. KG Sendibílar annast flutninga fyrir fólk og fyrirtæki hvert á land sem er, ef á þarf að halda, og mörg dæmi eru um að fyrirtækið flytji til dæmis búslóðir milli Reykjavíkur og Akureyrar. KG Sendibílar er í eigu feðganna Kristjáns Gunnþórssonar og Gunnþórs Kristjánssonar og hefur verið starfandi í áratugi: „Pabbi er búinn að vera í þessu síðan 1968. Þetta er að smella í hálfa öld og hann er enn að, karlinn, orðinn 71 árs,“ segir Gunnþór Krist­ jánsson en hann og faðir hans sjá um allan akstur fyrirtækisins, en bæta við afleysingarbílstjórum ef þeir fara í frí: „Við erum aldrei í fríi á sama tíma,“ segir Gunnþór en þeir feðgar vinna á öllum tímum, bara eftir þörf­ um hverju sinni: „Við erum á vakt­ inni allan sólarhringinn og það er ekkert heilagt í þeim efnum.“ KG Sendibílar hefur til um­ ráða einn stóran vöruflutningabíl, kassabíl af gerðinni Mercedes Benz, með vörulyftu, og síðan sendibíl. Vegna vaxandi umsvifa stefna þeir á að kaupa þriðja bílinn og ráða bíl­ stjóra. Sem fyrr segir sinnir KG Sendi­ bílar margvíslegri þjónustu fyrir fyrirtæki auk búslóðaflutninga og annarrar flutningaþjónustu fyrir heimili og einstaklinga: „Við dreifum til dæmis græn­ meti fyrir Mata í alla skóla og leik­ skóla á Akureyri og á veitingastaði í bænum. Í grænmetisflutningana notum við sendibílinn. Síðan not­ um við kassabílinn og vörulyftuna í þjónustu við Eimskip á Akureyri sem við dreifum vörum fyrir. Enn fremur dreifum við öllu fyrir Svefn og heilsu Akureyri, Húsgagnahöllina á Akur­ eyri og Rúmfatalagerinn Akureyri,“ segir Gunnþór. KG Sendibílar sinnir öllum beiðnum um flutninga þrátt fyrir annir og þeir sem hafa áhuga á að nýta sér þjónustu fyrirtækisins, hvort sem það eru einstaklingar eða fyrir­ tæki, geta haft samband í síma 892­ 3033 eða sent fyrirspurn á netfangið kgsendibilar@internet.is. n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.