Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2016, Síða 26
Vikublað 29. nóvember–1. desember 20162 Farðu norður - Kynningarblað
Flutningar á Akureyri
og um allt land
KG Sendibílar
K
G Sendibílar er lítið flutninga
fyrirtæki sem þó sinnir fjöl
breyttum og umfangsmiklum
flutningum. Fyrirtækið er
staðsett á Akureyri og sinnir
jöfnum höndum búslóðaflutning
um fyrir bæjarbúa og verkefnum
fyrir fyrirtæki. KG Sendibílar annast
flutninga fyrir fólk og fyrirtæki hvert
á land sem er, ef á þarf að halda, og
mörg dæmi eru um að fyrirtækið flytji
til dæmis búslóðir milli Reykjavíkur
og Akureyrar. KG Sendibílar er í eigu
feðganna Kristjáns Gunnþórssonar
og Gunnþórs Kristjánssonar og hefur
verið starfandi í áratugi:
„Pabbi er búinn að vera í þessu
síðan 1968. Þetta er að smella í hálfa
öld og hann er enn að, karlinn,
orðinn 71 árs,“ segir Gunnþór Krist
jánsson en hann og faðir hans sjá um
allan akstur fyrirtækisins, en bæta við
afleysingarbílstjórum ef þeir fara í frí:
„Við erum aldrei í fríi á sama
tíma,“ segir Gunnþór en þeir feðgar
vinna á öllum tímum, bara eftir þörf
um hverju sinni: „Við erum á vakt
inni allan sólarhringinn og það er
ekkert heilagt í þeim efnum.“
KG Sendibílar hefur til um
ráða einn stóran vöruflutningabíl,
kassabíl af gerðinni Mercedes Benz,
með vörulyftu, og síðan sendibíl.
Vegna vaxandi umsvifa stefna þeir
á að kaupa þriðja bílinn og ráða bíl
stjóra.
Sem fyrr segir sinnir KG Sendi
bílar margvíslegri þjónustu fyrir
fyrirtæki auk búslóðaflutninga og
annarrar flutningaþjónustu fyrir
heimili og einstaklinga:
„Við dreifum til dæmis græn
meti fyrir Mata í alla skóla og leik
skóla á Akureyri og á veitingastaði
í bænum. Í grænmetisflutningana
notum við sendibílinn. Síðan not
um við kassabílinn og vörulyftuna í
þjónustu við Eimskip á Akureyri sem
við dreifum vörum fyrir. Enn fremur
dreifum við öllu fyrir Svefn og heilsu
Akureyri, Húsgagnahöllina á Akur
eyri og Rúmfatalagerinn Akureyri,“
segir Gunnþór.
KG Sendibílar sinnir öllum
beiðnum um flutninga þrátt fyrir
annir og þeir sem hafa áhuga á að
nýta sér þjónustu fyrirtækisins, hvort
sem það eru einstaklingar eða fyrir
tæki, geta haft samband í síma 892
3033 eða sent fyrirspurn á netfangið
kgsendibilar@internet.is. n