Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2016, Síða 38
Vikublað 29. nóvember–1. desember 201630 Skrýtið Sakamál
S HELGASON
- Steinsmiðja síðan 1953
Opnunartími
Mán - fim 9:00 -18:00
Föstudaga 9:00 - 17:00
Laugardaga 10:00 -14:00
Sími: 557 6677
Netfang: shelgason@shelgason.is
www.shelgason.is
R
ick og Suzanna Wamsley
voru ströng við börn sín,
Söruh og Andrew. En þau
höfðu einnig gætt þess að
sinna þeim af kostgæfni.
Rick hafði unnið víða fyrir olíufyrir-
tæki; meðal annars í Houston, Salt
Lake City og Dallas og hvar sem
fjölskyldan hafði búið hafði tilvera
foreldranna snúist um börnin og
heimilið.
Máltækið segir; sjaldan launar
kálfurinn ofeldið og sú varð einmitt
raunin í Wamsley-fjölskyldunni og
dró til tíðinda að kvöldi 11. desem-
ber, 2003, á heimili hennar í Mans-
field í Texas.
Vinir kallaðir til
Eitthvað virðist Andrew, þá 29 ára
og bjó enn í foreldrahúsum, hafa
verið uppsigað við foreldra sína.
Hann vildi þá feiga en í stað þess að
ganga sjálfur í málið leitaði hann
liðsinnis vina sinna.
Fyrrnefnt kvöld voru Wamsley-
hjónin stungin og skotin til bana
heima hjá sér. Þar var að verki vin-
kona Andrews, Susana Toledano,
en ódæðið var skipulagt af
Andrew, kærustu hans, Chelsea
Richardson, og Susönu. Markmiðið
með morðunum var að komast
yfir eignir foreldra Andrews sem
metnar voru á 1,65 milljónir
Bandaríkjadala. Höfðu þremenn-
ingarnir ráðgert að myrða Söruh,
systur Andrews, líka, en hún var
ekki heima umrætt kvöld.
Ósætti vegna Chelsea
Kastast hafði í kekki með Andrew
og foreldrum hans þegar hann
hóf samband með Chelsea, í janú-
ar 2003. Chelsea ólst upp í verka-
mannahverfi í Tarrant-sýslu í
Texas og hver veit nema uppruni
hennar hafi valdið því að foreldrar
Andrews lögðu ekki blessun sína
yfir sambandið og settu son út af
sakramentinu.
Andrew og Chelsea höfðu byrj-
að að leggja á ráðin í október og
Susana, sem var herbergisfélagi
Chelsea í Joe C. Bean-miðskólan-
um, tekið þátt í ráðabrugginu.
Þvinguð til verknaðarins
Að sögn var Susana neydd til að taka
ódæðið að sér, með hvaða hætti
fylgir þó ekki sögunni. Henni hafði
að auki, mánuði fyrr, 9. nóvember,
verið gert að skjóta að bensín tanki
jeppabifreiðar Wamsley-hjónanna.
Eins og ljóst má vera mistókst sú
morðtilraun.
Þremenningarnir áttu sér vit-
orðsmann. Sá var Hilario Cardenas,
framkvæmdastjóri IHOP-veitinga-
staðar (International House of
Pancakes) í Arlington í Texas. Hann
hafði gefið ráð varðandi með hvaða
hætti best væri að koma hjónunum
fyrir kattarnef. Einnig útvegaði hann
byssuna sem notuð var við morðin.
Málalyktir
Susönu var ljóst að samninga var
þörf svo hún héldi líftórunni. Í jan-
úar 2005 játaði hún sig seka um
morðin á Wamsley-hjónunum.
Hún samdi við ákæruvaldið um að
vitna gegn Andrew og Chelsea og
tókst þannig að næla sér í lífstíðar-
fangelsi í stað dauðadóms.
Réttarhöld yfir Chelsea hófust
í maí 2005. Hún var talin „ógn við
samfélagið“ og lagði kviðdómur
framburð Susönu og samfanga
Chelsea til grundvallar þegar örlög
hennar voru ákveðin. Eftir rétt
rúmlega tveggja tíma íhugun varð
niðurstaðan dauðadómur.
Réttað var yfir Andrew árið
2006. Einhverra hluta vegna var
hann ekki talinn „ógn við samfélag-
ið“. Hann fékk lífstíðardóm og get-
ur sótt um reynslulausn árið 2044.
Hilario Cardenas játaði sína aðild
að málinu og fékk fyrir vikið 50 ára
dóm. n
Ósætti og auður
n Foreldrar Andrews voru efnaðir n Hann ásældist eignir þeirra
Andrew Wamsley Var upp á kant við foreldra sína.
Vinkonur og herbergisfélagar Susana (t.v.) og Chelsea lögðu á ráðin með syni
Wamsley-hjónanna.
Fórnarlömbin Rick og Suzana voru skotin og stungin til bana á heimili sínu.
„Höfðu þremenn-
ingarnir ráðgert
að myrða Söruh, systur
Andrews, líka, en hún var
ekki heima umrætt kvöld.