Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2016, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2016, Side 30
Vikublað 29. nóvember–1. desember 20166 Farðu norður - Kynningarblað D j Grill er heimilislegur, vinalegur og þægilegur hamborgarastaður í mið­ bæ Akureyrar. Staðurinn stendur fyllilega undir þessum þremur lýsingarorðum því þú getur komið með fjölskyldunni og sest niður í róleg­ heitum og feng­ ið þér hamborgara, samloku eða aðra smárétti. Þú getur líka skotist í hádegis­ pásunni og fengið þér einn snöggan borgara og ef áhugi er fyrir hendi er lítið mál að koma og horfa á bolt­ ann á Dj Grilli. Þar eru sýndir flestir leikir sem eru á dagskránni í enska boltanum og í meistaradeildinni. Núverandi eigend­ ur tóku við staðnum fyrir að verða átta árum, þrátt fyrir að vera á þeim tíma í tveimur öðr­ um störfum, að byggja sér húsnæði og með búskap til hliðar! „Þetta byrjaði allt í hálfgerðu gríni“ „Það vantaði rekstraraðila fyrir staðinn og Elva Sigurðardóttir og maðurinn hennar, Snæbjörn Sig­ urðsson, ákváðu að slá til og prófa. Þau tóku við rétt fyrir verslunar­ mannahelgina og vissu ekkert út í hvað þau voru að fara, og varðandi tilsögn um reksturinn treystu hjón­ in á starfsfólkið og eiganda. Þetta gekk mun betur en nokkur hafði þorað að vona og nokkrum mánuðum síðar urðu eigenda­ skipti. Stuttu eftir það hætti Elva í sinni vinnu og hefur síðan einung­ is komið að Dj Grilli. Snæbjörn er smiður og búskapurinn er enn á sínum stað, sumir virðast bara hafa fleiri tíma í sólar­ hringnum en aðrir. Staðurinn hefur tekið miklum breytingum síðan árið 2008, bæði útlitslega og varðandi matseðill­ inn. Fjölskyldan er nánast öll með annan fótinn á svæðinu, en starfs­ mannahópurinn stækkar ört eftir því sem líður á. Einn starfsmaður hélt áfram eftir eigendaskiptin og stendur enn vaktina við grillið og er hann löngu orðinn einn af fjöl­ skyldunni.“ Zurgbassi langvinsælastur „Staðurinn á orðið stóran fastakúnnahóp en sem betur fer sjáum við líka mörg ný andlit,“ segja Elva og Snæbjörn. „Það gleð­ ur okkur líka alltaf jafn mikið þegar utanbæjarfólk kemur aftur og aftur til okkar þegar það á erindi til Akur­ eyrar. Þrátt fyrir að ostborgarinn sé alltaf klassískur hefur hamborgari sem við köllum Zurgbassa slegið í gegn og er sá allra, allra vinsælasti á seðlinum hjá okkur en hann er með piparosti og fleira góðgæti. Flestir hamborgararnir hjá okkur hafa stafina Dj fyrir framan; Dj Maggi, Dj Hulda og svo framvegis, en þess má geta að þegar við tókum við staðnum voru þetta helstu nöfnin sem voru að spila á Akureyri á þeim tíma. Zurgbassi er t.a.m. sviðsnafn sem Ingi Þór, sonur okkar, og vinur hans notuðu þegar þeir spiluðu.“ n Dj Grill Strandgata 11, 600 Akureyri Sími: 462–1800, www.facebook.com/Dj-Grill Dj Grill: Frábær hamborgarastaður í miðbæ Akureyrar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.