Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2016, Page 18
Vikublað 13.–15. desember 2016
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7000
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
18 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson
Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Benedikt fjórði
Benedikt Jóhannesson, formaður
Viðreisnar, hefur nú í fjórgang
tekið þátt í stjórnarmyndunar
viðræðum. Allar hafa þær mis
tekist. Innan Viðreisnar eru ýms
ir þeirrar skoðunar að Benedikt
hafi gert flest rangt eftir kosn
ingar. Þannig hafi hann verið of
kokhraustur strax að loknum
kosningum og hafi skaðað víg
stöðu flokksins, meðal annars
með því að hafa útilokað sam
starf við Sjálfstæðisflokk og
Framsóknarflokk. Þótt lítil sem
engin stemning sé innan Við
reisnar fyrir slíku samstarfi telja
margir að það hafi verið afleikur
að afsegja slíkt samstarf með af
dráttarlausum hætti. Bæði eigi
það við nú þegar ljóst er að ekk
ert verður af fimm flokka ríkis
stjórn en einnig að það hafi veikt
samningsstöðu flokksins í um
ræddum viðræðum. Sagt er að
Viðreisnarþingmenn óttist fátt
jafn mikið og að lenda í stjórnar
andstöðu, það vilji þeir síst af
öllu. Hins vegar sé staðan nú sú
að slíkt gæti verið að raungerast
og er Benedikt kennt um þá
stöðu. Með réttu eða röngu.
Þvílík
vonbrigði
Hallgrímur Helgason rithöfundur um viðræðuslit á vinstri vængnum. – Facebook
Þetta er hótun
undir rós
Nafnlaus einstaklingur hótaði Frosta Logasyni útvarpsmanni í bréfi. – dv.is
Rétt að ein hver ann ar
fái að taka þetta kefli
Birgitta Jónsdóttir Pírati telur að fimm flokka stjórn sé ekki fullreynd. – mbl.is
E
kki kemur á óvart að fimm
flokka óformlegum viðræðum
um ríkisstjórnarsamstarf hafi
verið slitið. Einu flokkarnir
sem virtust ganga glaðir í bragði til
þessara viðræðna voru Píratar og
Samfylkingin. Píratar fengu glampa
í augun um leið og þeir sáu fram á
að vera leiðandi afl í stjórnarmynd
unarviðræðum og virtust um leið
missa hluta af raunveruleikaskyninu
því þeir voru furðu fljótir að blása í
lúðra og boða þann „fögnuð“ að yfir
gnæfandi líkur væru á að flokkarnir
næðu saman og færu
í formlegar stjórnar
myndunarviðræður.
„Aðeins herslumuninn
vantar upp á að takist
að mynda nýja ríkis
stjórn fimm flokka,“
sagði Birgitta Jónsdóttir
í sjónvarpsviðtali.
Það hefði sannar
lega verið saga til næsta
bæjar ef Birgittu og fé
lögum hefði tekist það
sem Katrínu Jakobs
dóttur mistókst. Katrín,
sem er merkilegur og
öflugur stjórnmála
maður, hefur legið und
ir ámæli fyrir að hafa
ekki nennt að standa
í viðræðum um fimm
flokka stjórn þegar hún
hafði stjórnarmyndunarumboðið.
Katrín hefur bein í nefinu og hefur
sennilega mjög fljótlega áttað sig á
að ekki væri grundvöllur fyrir mynd
un slíkrar stjórnar. Píratar virðast ekki
hafa haft sama stöðumat og óskhyggja
kom í stað raunsæs mats með tilheyr
andi innistæðulausum yfirlýsingum.
Samfylkingin tók þá afstöðu strax
eftir kjördag að elta Pírata og átti
kannski enga aðra kosti. Flokkur í
dauðateygjum gerir hvað sem er til
að tóra ögn lengur. En er það ekki
móðgun við kjósendur að flokk
ur sem nánast þurrkaðist út af hinu
pólitíska korti skuli telja sig eiga
erindi í ríkisstjórn? Þjóðin hafnaði
Samfylkingunni. Er ekki kominn tími
til að Samfylkingin, eða það sem eftir
er af henni, átti sig á því!
Það er líka erfitt að sjá hvaða er
indi Viðreisn ætti að eiga í stjórn
undir forsæti Pírata. Kjósendur Við
reisnar eru ekki líklegir til að vilja sjá
flokkinn í slíku kompaníi. Kjósendur
Bjartrar framtíðar eru af nokkru öðru
tagi enda sá flokkur miðjuflokkur sem
hefur hvað mest svigrúm til að valsa
til hægri og vinstri eftir eigin geðþótta.
Ætli það megi ekki flokka hug
myndina um fimm flokka ríkis
stjórn sem dagdrauma. Slík stjórn
afar ólíkra flokka hefði aldrei orðið
langlíf. Óróleiki og vantraust milli
manna hefði fylgt henni svo að segja
frá fyrsta degi. Það er því fremur
ástæða til að fagna þessari niður
stöðu en harma hana. Þjóðin þarf
sterka og samhenta ríkisstjórn en
ekki stjórn þar sem hver höndin er
upp á móti annarri, eins og hefði
örugglega orðið hefðu þessir flokkar
náð samkomulagi.
Þær raddir heyrast að best væri
að boða til kosninga á ný. Engin
þörf er á því. Það er greinilega mikið
vandaverk að mynda sterka ríkis
stjórn en alls ekki ómögulegt. Það
hljóta að finnast stjórnmálaflokkar í
þessu landi sem eiga samleið. Borg
arar þessa lands eiga skýlausa kröfu
um að stjórnmálamenn sýni ábyrgð
og víki til hliðar persónulegum vær
ingum og smávægilegum skoðana
mun. Klárið málið fyrir jól! n
Dagdraumar um fimm flokka stjórn
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Myndin Skammdegi Sól í hádegisstað gefur milda birtu þegar best lætur þessa dagana. Samt er hlýtt í veðri og þegar veðurkortin eru skoðuð er ekkert sem bendir til þess
að snjó muni festa í bráð. mynd Sigtryggur Ari
„Það er greinilega
mikið vandaverk
að mynda sterka ríkis-
stjórn en alls ekki
ómögulegt.