Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2016, Síða 21
Vikublað 13.–15. desember 2016 Kynningarblað - Kíktu í Múlann 3
„Mætum fólki á þeim
stað þar sem það er“
Ú
tfararstofa Svaf-
ars og Her-
manns, sem
einnig gengur
undir nafninu
Kvedja.is, byggir á 20 ára
reynslu og mikilli þekk-
ingu á útfararþjónustu.
Stofan veitir þjónustu
sem er í senn heildstæð
og mjög persónuleg.
„Þetta er lítil útfarar-
stofa og við komum að
ferlinu frá upphafi til
enda, erum með fólkinu
allan tímann því þessi
persónulegu samskipti
eru mjög mikilvæg,“ seg-
ir Hermann Jónasson,
annar eigenda stofunnar, en hinn
eigandinn er Svafar Magnússon.
Báðir hafa starfað afar lengi í
faginu. Þriðji starfsmaðurinn er
Ingibjörg Halldórsdóttir.
Á heimasíðu stofunnar, kvedja.
is, er að finna mjög gagnlegar upp-
lýsingar, meðal annars gátlista fyr-
ir útför sem bæði er hægt að skoða
á síðunni og prenta út. Útfararstofa
Svafars og Hermanns getur séð um
alla þætti útfararinnar. „Það er svo
misjafnt hvernig fólk er statt gagn-
vart þessu. Sumir eru búnir að
ákveða alla hluti og hafa kannski
gert þetta áður. En suma þarf að
leiða vel áfram og þá upplýsum
við fólkið um allt sem er í boði og
mögulegt er,“ segir Hermann sem
leggur áherslu á að laga þjón-
ustuna að þörfum hvers og eins.
„Það hefur færst í vöxt að fólk
sé ekki í kirkjunni og ekki eru
lengur allir með presta. Það ríkir
sá misskilningur að allt sé niður
njörvað varðandi hvað má og hvað
má ekki við útför. En í rauninni
ræður hver og einn hvað hann gerir
og hvernig hann hefur þetta,“ segir
Hermann sem leggur áherslu á að
þjóna öllum trúarhópum og líka
hinum trúlausu.
„Við leggjum áherslu á að hver
útför sé einstök. Hún er ekki eins
og hver önnur. Við mætum fólki á
þeim stað þar sem það er og upp-
fyllum óskir þess. Við förum heim
til fólks ef það vill það en það get-
ur líka komið til okkar því við erum
með góða aðstöðu að Síðumúla
28,“ segir Hermann en stofan býður
upp á alla þjónustu sem til þarf og
kemur meðal annars á sambandi
við tónlistarfólk þegar þess ger-
ist þörf. „Fyrir suma sjáum við um
allt, tölum við prestinn og aðra sem
koma að útförinni, en síðan eru
aðrir svo sjálfstæðir að þeir vilja
gera þetta sjálfir og þá er það bara
í góðu lagi. Þetta er nokkuð mis-
jafnt en við þjónum öllum og leggj-
um alltaf mikið upp úr persónu-
legri nálgun,“ segir Hermann að
lokum. n
Nánari upplýsingar eru á
heimasíðunni kvedja.is. Símanúm-
er stofunnar er 571-8222.