Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2016, Síða 24
Vikublað 13.–15. desember 201620 Lífsstíll
H
jónin Helga Lind og Tómas
Davíð hafa á örfáum
mánuðum gert bragarbót
á lífsgæðum sínum en þau
ákváðu að stíga skrefið
saman til bættrar heilsu. Á aðeins
fimm mánuðum hafa þessi skemmti-
legu hjón losað sig við 43 kíló í sam-
vinnu við grenningarráðgjafann
Sverri Þráinsson. Þau ákváðu að
segja sögu sína og deila góðum ráð-
um með þjóðinni.
Tómas og Davíð eru jafngömul,
33 ára, og eiga saman tvo drengi, 2 og
6 ára. Tómas starfar sem framhalds-
skólakennari en Helga er félagsráð-
gjafi.
Hvers vegna ákváðuð þið að
breyta um lífsstíl?
„Aðdragandinn er mjög langur,“
segir Helga. „Við upphaf sambúðar
okkar þyngdumst við bæði vegna
„huggukvölda“ eins og oft gerist, þar
byrjaði boltinn að rúlla í öfuga átt hjá
okkur báðum.
Í kjölfar barneigna bættum við
enn frekar á okkur. Við hættum þá
að stíga á vigt og lokuðum augunum
fyrir vandamálinu.
Í júlí 2016 vorum við bæði kom-
inn á þann stað að við gátum ekki
lokað augunum fyrir því, líkamlegt-
og andlegt form var orðið slæmt
og það hafði neikvæð áhrif á lífið í
heild.“
Hjónin komust í kynni við Sverri
og segja ráðgjöf hans hafa heillað
þau.
„Við vorum tilbúin að leggja
vinnu í að koma lífi okkar og heilsu í
betri farveg,“ segir Helga.
Hvert var fyrsta skrefið?
„Fyrsta skrefið fyrir mig var að
sannfæra Tómas,“ segir Helga og
hlær. „En það þurfti ekki mikið til.
Við sendum Sverri póst á Facebook
og fengum svör samdægurs og hann
kippti okkur strax inn í prógrammið.“
„Var ákvörðunin og byrjunin erfið?“
„Ákvörðunin sjálf var ekki erf-
ið. Fyrstu dagarnir voru hins vegar
erfiðir. Hugurinn var þrjóskur í byrj-
un en svo birti snögglega til,“ segir
Tómas.
Hver var svo rútínan í þessu ferli?
„Ferlið og rútínan er í sjálfu sér
þægileg og auðveld,“ segir Helga.
„Á hverju kvöldi skrifuðum við mat-
ardagbók, hreyfingu dagsins, svo
hvernig okkur leið og hvernig dagur-
inn gekk. Þetta sendum við til Sverris
daglega og fengum svör daginn eftir.“
Hvernig gekk að viðhalda hvatn-
ingu til að halda áfram?
„Um leið og við tókum eftir ár-
angri þá varð það að hvatningu til að
halda áfram. Þótt dagar séu misjafn-
ir þá er það í góðu lagi, við lærðum
að sjá þetta í réttu ljósi, hvernig hægt
væri að lifa eðlilegu lífi en ná samt
árangri með breyttum áherslum og
hugarleikfimi,“ segir Tómas.
Hvað hafið þið lært sem þið vissuð
ekki áður?
„Þessi hugsun um debet og
kredit, brenna meiru en þú borðar,
var í upphafi fjarstæð,“ segir Helga.
„Þetta voru bara orð sem maður vissi
að voru sönn en án frekari vitneskju.
Með stuðningi tók það enga stund að
skilja við hvað var átt.
Við förum í veislur eins og aðrir og
þá borðum við það sem er í boði, enda
er ekkert bannað, en við vitum að við
þurfum að eiga fyrir því. Það verður að
koma hreyfing á móti. Þar sem þetta
er ekki átak þá er maður ekki að falla á
neinu en maður heldur áfram og lærir.“
Er mikilvægt að taka andlega
hlutann jafnalvarlega og samhliða
þeim líkamlega?
„Það er bein tenging milli líkam-
legrar og andlegrar líðunar,“ svarar
Helga. „Að læra að hlusta á tilfinn-
ingarnar og þessa innri líðan er
nauðsynlegt. Það hefur verið stór
hluti af þessari vegferð að setjast nið-
ur og skoða daginn sinn, hvað gekk
vel, hvað miður og hvers vegna.“
Er betra að gera þetta í samein-
ingu en hvort í sínu lagi?
„Klárlega,“ segir Helga og bætir
við að ef annar aðilinn fer í átak en
hinn heldur áfram uppteknum hætti
sé hættara við að gamlar venjur leiði
til falls þess sem er að reyna breyta
til.
„Við höfum verið mjög samstillt í
þessari vegferð. Það er skoðun okkar
að þetta hefði aldrei gengið upp
nema af því við vorum 100% prósent
samstíga. Þessi lífsstílsbreyting hefur
gert okkur nánari og næmari ef eitt-
hvað er.“
Hver er munurinn á líðan ykkar
núna og fyrir ári?
„Það er erfitt að lýsa því með orð-
um. Saman höfum við misst 43 kíló
á þessum fimm mánuðum en þessi
vegferð hefur snúist um meira en að
sjá lægri tölur á vigtinni. Hún hefur
snúist um að komast út úr afneitun
og taka fulla stjórn á lífi okkar,“ seg-
ir Helga.
„Við fórum í myndatöku til ljós-
myndarans Jóns Páls Vilhelmssonar
og í fyrsta sinn í langan tíma erum
við himinlifandi með myndir af okk-
ur.“
Viskuráð til almennings?
„Það sem við höfum lært í þessu
samstarfi með Sverri er að allt snýst
þetta um að taka ákvarðanir og halda
jafnvægi á milli hreyfingar, neyslu og
andlegrar líðunar,“ segir Helga og
bætir við: „Mikilvægt er að láta ekki
stjórnast af þröngsýnum staðalí-
myndum samfélagsins heldur fylgja
sinni sýn, ná sínum markmiðum og
lifa samkvæmt sínum tilgangi.“ n
Helga og Tómas léttu sig
um 43 kíló á 5 mánuðum
n Fyrstu dagarnir voru erfiðir n Skrifuðu matardagbók
„Þessi lífsstíls-
breyting hefur gert
okkur nánari og næmari
ef eitthvað er.
ljúffengur morgunmatur
alla daga
Kaffivagninn / Grandagarði 10, 101 Rvk.
Sími: 551 5932 / www.kaffivagninn.is
Opið virka daga frá 07:30–18:00
og um helgar frá 09:30–18:00
gamla
höfnin