Fréttablaðið - 03.03.2017, Síða 6
við Fellsmúla | 108 Reykjavík | Fylgdu okkur á Facebook
VERKFÆRI
LAMPAR
LJÓSAPERUR
LJÓS
Komdu í Rafvörumarkaðinn
og gerðu betri kaup!
OPIÐ ALL
A DAGA
Mán. til fö
s. kl. 9–18
Laugard. k
l. 10–16
Sunnud. k
l. 12–16
Kosið á Norður-Írlandi
Íbúi í Brookeborough á Norður-Írlandi gengur inn í grunnskóla bæjarins til þess að greiða atkvæði í þing-
kosningunum í gær. Úrslit kosninganna lágu ekki fyrir þegar Fréttablaðið fór í prentun. Nordicphotos/AFp
Umhverfismál Heilbrigðiseftir-
litin á höfuðborgarsvæðinu fara
þess eindregið á leit við fólk að aka
ekki um vatnsverndarsvæðið í Heið-
mörk í erfiðum vetrarskilyrðum eins
og mynduðust eftir snjóaveðrið á
sunnudag. Vegirnir eru mjög vara-
samir enda engin vetrarþjónusta.
Ítrekuð óhöpp hafa orðið á þessu
viðkvæma svæði en olíu- og efna-
mengun frá bílum er talin ein aðal-
ógnin við öryggi vatnsbóla.
Á miðvikudag bárust fjölmiðlum
tilmæli frá framkvæmdastjórum
heilbrigðiseftirlitssvæða á höfuð-
borgarsvæðinu sem mynda sam-
eiginlega framkvæmdastjórn en þau
eru Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur,
Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og
Kópavogssvæðis og Heilbrigðiseftir-
lit Kjósarsvæðis. Þar segir að af gefnu
tilefni þurfi að beina því til fólks að
fara ekki akandi inn á vatnsverndar-
svæðið í Heiðmörk í því erfiða færi
sem ríkir um þessar mundir. Þar
segir að þar sem engin vetrarþjón-
usta sé á vegum í Heiðmörk sé þar
ófært. Svæðið sé útivistarsvæði fyrir
gangandi vegfarendur og við núver-
andi aðstæður fyrir fólk á göngu-
skíðum.
„Hvers konar akstur innan svæðis-
ins getur ógnað öryggi vatnsverndar.
Jarðlög í Heiðmörk eru gljúp vegna
hrauns, stutt er niður á grunnvatn og
því er svæðið viðkvæmt með tilliti til
þess að mengun berist í grunnvatnið
og spilli neysluvatninu. Því er mikil
vægt að allir umgangist svæðið af
virðingu og fylgi þeim reglum sem
um það gilda,“ segir þar.
Þegar spurt var um tilefni fréttatil-
kynningarinnar varð Svava S. Stein-
arsdóttir, heilbrigðisfulltrúi hjá Heil-
brigðiseftirliti Reykjavíkur, til svara.
„Í gær [þriðjudag] varð bílvelta
inni á vatnsverndarsvæðinu, á svæði
Reykjavíkur. Jeppi lenti utan vegar og
lenti á þakinu ofan í læk. Olía lak af
vélinni niður í lækinn og barst út í
Elliðavatn. Svona óhöpp hafa ítrekað
gerst á vatnsverndarsvæðinu að vetri
til þar sem fólk á vanbúnum bílum
fer inn á svæðið eða aðilar eru jafnvel
í einhverjum ofsaakstri,“ segir Svava.
Heiðmörk er mikilvægur hluti
vatnsverndarsvæðis höfuðborgar-
svæðisins en þar eru Gvendar-
brunnar og önnur vatnstökusvæði
Orkuveitu Reykjavíkur. Og það er
ekkert smáræði sem er í húfi.
„Það sem er í húfi er neysluvatn
allra borgarbúa sem ekki má spilla.
Það hefði ansi víðtækar afleiðingar
ef vatnsbólin okkar eyðileggjast en
í dag þarf neysluvatnið okkar enga
meðhöndlun, það er svo hreint,“
segir Svava.
svavar@frettabladid.is
Ítrekuð óhöpp sem
geta ógnað vatnsvernd
Óhöpp á vatnsverndarsvæðinu í Heiðmörk eru tíð þegar mikill snjór og hálka
er á svæðinu. Vanbúnir bílar og ofsaakstur eru meðal ástæðna. Hagsmunirnir
sem eru undir eru gríðarlegir. Eftirlitsmaður Veitna taldi ummerki eftir 15 bíla.
Utanvegaakstur á
vatnsverndarsvæði
l Orkuveita Reykjavíkur hefur
undanfarin ár haft verulegar
áhyggjur af vaxandi umferð vél
knúinna ökutækja í Heiðmörk
en einnig af vaxandi útsýnisflugi
yfir svæðinu.
l Starfsmaður hjá Veitum, dóttur
fyrirtæki OR, sér um eftirlit með
vatnsverndarsvæði höfuð
borgarsvæðisins. Í gærmorgun
fór hann í eftirlitsferð upp í
Heiðmörk og kom að þar sem
verið var að hreinsa upp olíu
sem lekið hafði af bíl sem fór út
af. Búið var að fjarlægja bílinn.
l Í kjölfarið taldi hann 14 staði
þar sem bílar höfðu farið út fyrir
veginn, lent í festu eða öðrum
vandræðum.
NýsköpUN Mint Solutions og sam-
starfsaðilar íslensk-hollenska
hátæknifyrirtækisins í Evrópu hafa
náð samkomulagi um að veita lið-
lega þrjár milljónir evra, um 340
milljónir íslenskra króna, í innleið-
ingu lyfjaöryggiskerfisins MedEye á
sjúkrahúsum í Bretlandi og hjúkr-
unar- og dvalarheimilum í Belgíu.
Samkvæmt tilkynningu fyrirtæk-
isins er verkefnið styrkt af nýsköp-
unarsjóðnum EU Horizon 2020 Fast
Track to Innovation og felst meðal
annars í ítarlegum rannsóknum á
áhrifum MedEye á lyfjaöryggi. Kerf-
ið gerir hjúkrunarfræðingum kleift
að skanna öll lyf, hvort sem um er
að ræða töflur, sprautur, samsett lyf
eða umpökkuð lyf, rétt áður en þau
eru gefin sjúklingum og eykur þann-
ig öryggi sjúklinga til muna. – hg
MedEye inn á sjúkrahús
Svona óhöpp hafa
ítrekað gerst á
vatnsverndarsvæðinu að
vetri til þar sem fólk á
vanbúnum bílum fer inn á
svæðið eða aðilar eru jafnvel
í einhverjum ofsaakstri.
Svava S. Steinars
dóttir, heilbrigðis
fulltrúi hjá
Heilbrigðiseftirliti
Reykjavíkur
340
milljónum er varið í inn-
leiðingu lyfjaöryggiskerfisins
í Bretlandi og í Belgíu.
3 . m a r s 2 0 1 7 f ö s T U D a G U r6 f r é T T i r ∙ f r é T T a B l a ð i ð
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
3
-F
D
7
4
1
D
1
3
-F
C
3
8
1
D
1
3
-F
A
F
C
1
D
1
3
-F
9
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
2
3
2
0
1
7
C
M
Y
K