Fréttablaðið - 17.06.2017, Blaðsíða 2
Veður
Suðvestanátt og væta í flestum
landshlutum í dag, en þurrt á
Austfjörðum. Milt í veðri og hlýjast
austanlands, allt að 17 stiga hiti.
sjá síðu 42
Showmennska
samfélag „Þetta er mjög skemmti-
legt og sjálfri finnst mér þetta mjög
spennandi. Þetta er auðvitað fyrst
og fremst mikill heiður,“ segir Eva
Ágústa Aradóttir sem verður fjall-
kona Hafnarfjarðar í dag.
Eva mun lesa ljóð eftir Bryndísi
Björgvinsdóttur. Eva er transkona
og er, eftir því sem Fréttablaðið
kemst næst, fyrsta transkonan sem
fer í búning fjallkonunnar.
Eva er Hafnfirðingur í húð og
hár og segir hún að það sé mikil
upphefð að fá að vera fjallkona í
bænum. „Bærinn vildi fá transkonu
í þetta hlutverk í ár og haft var sam-
band við mig. Fjallkonan er ímynd
íslensku konunnar og það er því frá-
bært að fá að vera þessi ímynd.“
Dagskrá 17. júní í Hafnarfirði
hefst klukkan átta að morgni er
fánar verða dregnir að húni. Eva
stígur á svið á Thorsplani þar
sem Guðlaug Kristjánsdóttir, for-
seti bæjarstjórnar, setur hátíðina,
Karlakórinn Þrestir mun syngja og
nýstúdentinn Kristinn Snær Guð-
mundsson flytja ávarp.
Síðan skemmta Skoppa
og Skrítla, Alan Jones,
Fitness æðið, Ara-
besque dans, sýndur
verður víkingabar-
dagi sem víkinga-
f é l a g i ð R i m m u -
gýgur stendur fyrir
og Emmsjé Gauti
kemur fram. Kynnar
verða þeir Gunnar
Helgason og Felix
Bergsson.
Eva Ágústa segir að hún hafi
hikað örlítið þegar Hafnarfjarðar-
bær hafði samband enda ekki vön
því að koma fram opinberlega. En
skrekkurinn hvarf fljótt og það
er alltaf betra að stökkva en
hrökkva.
„Ég vissi af því að bærinn
hafði áhuga á að gera þetta
og ég hugsaði mig alveg um.
Þegar svo var hringt í mig
ákvað ég að segja já enda
einstakt tækifæri og ekki á
hverjum degi sem ég fæ að
vera fjallkona. Það er upp-
hefð að fá að vera í þessum
búningi,“ segir Eva Ágústa
Aradóttir , f jallkona
Hafnfirðinga í ár.
benediktboas@365.is
Transkonan Eva verður
fjallkonan í Hafnarfirði
Eva Ágústa Aradóttir verður fjallkona Hafnarfjarðarbæjar á þjóðhátíðardaginn.
Óformleg athugun leiðir í ljós að Eva Ágústa er fyrsta transkonan sem gegnir
hlutverki fjallkonu við opinber hátíðarhöld. Hún segir heiðurinn vera mikinn.
Það verður mikið fjör í Hafnarfirði í dag sem aðra daga. Fréttablaðið/SteFán
eva ágústa
aradóttir
Fjallkonan
Fjallkonan er tákn eða kven-
gervingur Íslands. Kona kom
fyrst fram sem kvengervingur
landsins í kvæði Eggerts Ólafs-
sonar, Ofsjónir 1752, en fjall-
konan var fyrst nefnd í kvæði
Bjarna Thorarensen, Eldgamla
Ísafold, og hefur verið algengt
tákn í íslenskum skáldskap síðan.
Kona í gervi fjallkonunnar kom
fyrst fram á Íslendingadeginum í
Winnipeg í Kanada 1924 og eftir
lýðveldisstofnun á Íslandi 1944
hefur kona í skautbúningi jafnan
flutt fjallkonuljóð við hátíðahöld
17. júní.
Þýskaland Helmut Kohl, fyrrver-
andi kanslari Þýskalands, er látinn.
Hann var 87 ára gamall.
Kohl lést á heimili sínu í Ludwigs-
hafen í Rínarlandi í Þýskalandi í gær
að sögn dagblaðsins Bild.
Helmut Kohl fæddist 3. apríl árið
1930 í Ludwigshafen. Hann var
kanslari Þýskalands í 16 ár, frá 1982
til 1998, og átti stóran þátt í samein-
ingu Austur- og Vestur-Þýskalands
eftir fall Berlínarmúrsins árið 1990.
Þá innleiddi Kohl einnig evruna
inn í evrópskt viðskiptalíf ásamt
þáverandi forseta Frakklands,
Francois Mitterrand.
Kohl var leiðtogi Kristilegra demó-
krata og sat lengst allra þýskra kansl-
ara í embætti á 20. öldinni. Árið 2008
datt hann illa og hafði síðan komist
ferða sinna í hjólastól.
Það sama ár giftist Kohl eiginkonu
sinni, Maike Kohl-Richter, en sam-
band þeirra vakti mikla athygli þar
sem hún var 34 árum yngri en hann.
– kó
Kohl er látinn
BORgaRmál Borgarráð samþykkti
á fimmtudag tillögu Dags B. Egg-
ertssonar borgarstjóra um að veita
íþróttafélaginu Víkingi sextíu millj-
óna króna styrk til að gera við kjall-
ara í húsnæði félagsins í Fossvogi
eftir verulegt vatnstjón sem varð
þar vor.
Í greinargerð sem fylgir tillögu
borgarstjóra kemur fram að tjónið,
sem varð þegar yfirborðsvatn flæddi
inn í kjallara hússins, sé þess eðlis
að ekki sé hægt að kaupa tryggingar
fyrir því. Ljóst sé að félagið hafi ekki
fjárhagslega burði til að standa undir
endurbótum á húsinu.
Auk þess var samþykkt að fela
skrifstofu eigna og atvinnuþróunar
Reykjavíkurborgar að endurskoða
fjárfestingaáætlun borgarinnar
vegna starfsemi Víkings.
Samkvæmt áætluninni skal fimm-
tíu milljónum króna varið í endur-
bætur á grasæfingasvæði félagsins
í ár, en samkomulag hefur náðst á
milli borgarinnar og félagsins um að
endurskoða þau áform. Í stað þess
að stækka grasæfingasvæði félags-
ins verða tennisvellirnir í Víkinni
lagaðir. – kij
Sextíu milljóna
króna styrkur
vegna vatnsleka
Víkingar urðu fyrir miklu tjóni í vor.
Fréttablaðið/ernir
Ekki mun vera unnt að
kaupa tryggingar við tjóni
eins og því sem varð er vatn
flæddi inn hjá Víkingum.
Stuðmenn léku á als oddi um borð í ferjunni MS Akranesi sem fór í jómfrúarferð sína í gærkvöldi. Hljómsveitin var á leið upp á Skaga til hljóm-
leikahalds og nýtti sjóferðina til að minnast þess að 35 ár eru frá útgáfu Með allt á hreinu og lék verkið frá upphafi til enda á siglingu yfir flóann.
Með í för var söngkonan Bryndís, dóttir Stuðmannanna Ragnhildar Gísladóttur og Jakobs Frímanns Magnússonar. Fréttablaðið/JóHann K.
1 7 . j ú n í 2 0 1 7 l a u g a R d a g u R2 f R é t t i R ∙ f R é t t a B l a ð i ð
1
7
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
D
-4
D
0
8
1
D
1
D
-4
B
C
C
1
D
1
D
-4
A
9
0
1
D
1
D
-4
9
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
9
6
s
_
1
6
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K