Fréttablaðið - 17.06.2017, Blaðsíða 96
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
Í ENGIHJALLA,
VESTURBERGI
OG ARNARBAKKA
365.is Sími 1817
333 krá dag*
*9.990.- á mánuði.
Sirrýjar
Hallgrímsdóttur
BAKÞANKAR
Reykjavíkurborg hefur verið illa stjórnað á undanförnum árum. Fjármál borgarinnar í
lamasessi, áherslur í húsnæðismál-
um hafa valdið efnahagslegu tjóni
á landsvísu, holur og umferðartafir
einkenna samgöngustefnuna og
leik- og grunnskólar hafa mátt þola
niðurskurð. Læt ég síðan liggja á
milli hluta ýmis minni mál eins
og slátt á grasi, þrif og annað sem
snertir umgengni hér í borginni. Og
þetta er ekki bara skoðun mín.
Þar til fyrir skemmstu tók Reykja-
víkurborg þátt í þjónustukönnun
Gallup. Þegar borin voru saman
svör íbúa nítján stærstu sveitarfélag-
anna kom í ljós að íbúar Reykja-
víkur voru óánægðastir allra. Dagur
og félagar ákváðu að við svo búið
mætti ekki standa og bættu þjón …
nei, náði ykkur. Þeir bættu ekki
þjónustuna heldur drógu Reykjavík
bara út úr könnuninni með þeim
orðum Dags að „Reykjavíkingar
væru kröfuharðari en íbúar annarra
sveitafélaga“. Sem sagt vanþakklátt
lið sem ekki kann gott að meta.
Halldór Halldórsson sagði um
daginn að íbúar Reykjavíkur vissu
sennilega ekki alveg hverjir væru í
borgarstjórn. Það er meira í þessu
hjá Halldóri en virðist við fyrstu
sýn. Nú er komið í ljós, skv. frétt
RÚV, að lögregluyfirvöld höfðu
samband við formann borgarráðs
og tilkynntu um aukinn viðbúnað
lögreglu. Formaðurinn virðist ekki
hafa vitað hver væri forseti borgar-
stjórnar og því kom hann ekki skila-
boðunum áleiðis, en borgarstjórn-
arforsetinn hafði uppi stóryrði um
að enginn hefði látið borgaryfirvöld
vita. Framvegis verða þær stofnanir
ríkisins sem hyggjast hafa samband
við borgina því að senda póst á
allir@hvereríborgarstjórn.is og taka
tillit til þessa allsherjar athyglis-
brests sem einkennir stjórnsýslu
borgarinnar þessa dagana.
Vanþakklátir
Reykvíkingar
1
7
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
D
-4
8
1
8
1
D
1
D
-4
6
D
C
1
D
1
D
-4
5
A
0
1
D
1
D
-4
4
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
9
6
s
_
1
6
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K