Fréttablaðið - 17.06.2017, Blaðsíða 42
Félagsmálastjóri
Laust er til umsóknar starf félagsmálastjóra Hvalfjarðarsveitar.
Um er að ræða 50% starf innan stjórnsýslu sveitarfélagsins.
Leitað er að metnaðarfullum aðila til að stýra fjölbreyttum
verkefnum félagsþjónustu sveitarfélagsins. Æskilegt er að
viðkomandi geti hafið störf í ágústmánuði nk.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
• Barnavernd
• Félagsleg heimaþjónusta
• Félagsleg ráðgjöf
• Fjárhagsaðstoð
• Málefni aldraðra
• Málefni fatlaðra
• Önnur verkefni á málefnasviði fjölskyldunefndar og fræðslu-
og skólanefndar.
Félagsmálastjóri ber ábyrgð á meðferð og varðveislu gagna,
úrvinnslu og upplýsingagjöf, stefnumótun, þróun verklags og
þjónustugæða. Félagsmálastjóri sinnir teymisvinnu og starfar
með mismunandi fagstéttum á þjónustusvæði sveitarfélagsins.
Þá er félagsmálastjóri starfsmaður fjölskyldunefndar og
fræðslu- og skólanefndar.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
• Reynsla og framhaldsmenntun í stjórnun er æskileg.
• Reynsla af starfi við félagsþjónustu, málefni fatlaðra eða
sambærileg störf er mikilvæg.
• Reynsla af stjórnunarstörfum á vettvangi félagsþjónustu
sveitarfélaga er æskileg.
• Færni í mannlegum samskiptum auk forystu- og skipulags-
hæfileika.
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
Kjör:
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi
stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur um starf félagsmálastjóra Hvalfjarðarsveitar
er til og með 30. júní nk.
Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf
þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur
fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsókn skal senda á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3,
301 Akranes eða á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.
is Öllum umsóknum verður svarað.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Skúli Þórðarson, sveitar-
stjóri í síma 433-8500 og á netfanginu skuli@hvalfjardarsveit.is
Ef þú ert með rétta starfið
— erum við með réttu manneskjuna
www.capacent.is
Ráðgjafar okkar búa
yfir víðtækri þekkingu
á atvinnulífinu
og veita trausta og
persónu lega ráðgjöf.
Fjársýslan er þjónustu-
og þekkingarstofnun
á sviði opinberra
fjármála. Stofnunin veitir
fjármálatengda þjónustu til
ríkissjóðs og ríkisaðila og
annast umsýslu fjármuna.
Þá hefur hún yfirumsjón
með bókhaldi og uppgjörum
ríkissjóðs og tryggir
tímanlegar og áreiðanlegar
upplýsingar um fjármál
ríkisins.
Fjársýslan leggur áherslu
á liðsheild, starfsánægju,
gagnkvæma virðingu og gott
starfsumhverfi með öflugum
hópi starfsmanna.
Góður starfsandi,
fjölskylduvænt
vinnuumhverfi og að
starfsfólk hafi tækifæri
til að þróast í starfi er í
fyrirrúmi hjá Fjársýslunni.
Nánari upplýsingar um
stofnunina er að finna á
www.fjs.is
Fjársýsla ríkisins auglýsir tvær lausar stöður sérfræðinga á uppgjörssviði. Um framtíðarstarf er
að ræða í fjölbreyttu og krefjandi umhverfi. Störfin fela í sér þátttöku í innleiðingu alþjóðlegra
reikningsskilastaðla hjá ríkissjóði auk annarra verkefna sviðsins. Kjörið tækifæri fyrir einstaklinga
sem vilja takast á við faglegar áskoranir og spennandi framtíðarstarf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þátttaka í innleiðingu alþjóðlegra reikningsskilastaðla (IPSAS)
Aðstoð við ríkisaðila um bókhald, reikningsskil og afstemmingar
Samræming reikningsskila og bókhalds ríkisaðila
Mánaðar- og ársuppgjör ríkisaðila
Vinna við gerð ríkisreiknings og önnur verkefni í samráði við forstöðumann
Hæfnikröfur
Viðskiptafræðimenntun
Framhaldsmenntun í reikningsskilum er kostur
Reynsla af uppgjörum og afstemmingum
Góð þekking á Excel og upplýsingatækni
Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
Góð kunnátta í íslensku og ensku
Góð samskiptahæfni
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi, sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag
háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins (FHSS) hafa gert
Umsóknarfrestur er til og með 03.07.2017
Sótt er um starfið rafrænt á www.starfatorg.is
Viðkomandi þurfa að geta hafið störf sem fyrst. Starfshlutfall er 100%
Nánari upplýsingar veita
Þórir Hvanndal Ólafsson - thorir.olafsson@fjs.is - 545-7500
Pétur Ólafur Einarsson - petur.einarsson@fjs.is - 545-7500
Fjársýsla ríkisins óskar eftir
sérfræðingum á uppgjörssvið
Auglýsingastofa \ Guðrúnartúni 8 \ 105 Reykjavík \ pipar-tbwa.is \ 510 9000
Umsókn og fyrirspurnir skal senda á umsokn@pipar-tbwa.is fyrir 20. júní.
\ PIPAR\TBWA er á höttunum eftir persónu sem hefur gaman af því að
gefa fólki að borða. Starfið felst í undirbúningi máltíða og framreiðslu á mat fyrir
starfsfólk í húsinu, léttri matargerð og auðvitað frágangi og tiltekt í eldhúsi.
\ Maturinn kemur oftast fulleldaður að utan en stundum þarf að hita hann upp.
\ Mikilvægt er að viðkomandi hafi reynslu af eldhússtörfum og geti hafið störf sem fyrst.
\ Vinnutíminn er þriðjudaga til fimmtudaga kl. 10:30–14:00, þannig að ef þú
ert fyrir langar helgar oft í mánuði þá er þetta starfið fyrir þig.
VIÐ ERUM
SVÖNG!
1
7
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
D
-A
5
E
8
1
D
1
D
-A
4
A
C
1
D
1
D
-A
3
7
0
1
D
1
D
-A
2
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
9
6
s
_
1
6
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K