Fréttablaðið - 17.06.2017, Blaðsíða 6
Við erum að uppýsa
um öll atriði sem
gerast þarna upp frá en
auðvitað er hluti af því sem
við eigum að rannsaka, hver
ástæða þess er að farið var af
stað.
Grímur Grímsson,
yfirmaður
miðlægrar
deildar
lögreglunnar
www. bjarmaland.is
bjarmaland@bjarmaland.is
sími 770 50 60
GEORGIA OG AZERBÆDSJAN
9. - 19. september I 10 nætur
Kákasusfjöll
Allt innifalið
379 000
kr.
SILKILEIÐIN MIKLA í Mið-Asíu
7. - 19. október I 12 nætur
Allt innifalið
488 000
kr.
Úzbekistan og Túrkmenistan
Snemma á ferð
Hálendisvegir hafa margir verið opnaðir fyrr en tíðkast í sumar eftir snjóléttan vetur og hagstæða tíð í vor.
Jeppi ekur yfir brúna yfir Geitá á leið með ferðamenn í manngerðu ísgöngin í Langjökli. Fréttablaðið/Vilhelm
LögregLumáL Vitni að árásinni í
Mosfellsdal, sem leiddi til andláts
Arnars Jónssonar Aspar, hafa sum
hver fengið aðstoð lögreglu við að
gæta öryggis síns. Þetta staðfestir
Grímur Grímsson, yfirmaður mið-
lægrar deildar lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu.
„Við höfum brugðist við því ef fólk
hefur talið sig þurfa á því að halda.
Það hefur þurft að bregðast við slíku
með einhverjum hætti já, það hefur
komið til,“ segir Grímur aðspurður
hvort vitni hafi fengið lögregluvernd
í málinu.
Fréttablaðið hefur heimildir fyrir
því að skuggalegir menn hafi heim-
sótt að minnsta kosti eitt vitni í mál-
inu.
Fjórum sakborningum af sex
var sleppt úr haldi lögreglunnar á
fimmtudag. Eins og Fréttablaðið
hefur greint frá voru þeir sakborn-
ingar líkast til ekki viðstaddir þegar
mestu átökin fóru fram en vitni
hafa lýst því að hafa séð Svein Gest
Tryggvason stökkva á bak Arnars og
taka hann hálstaki. Jón Trausti Lúth-
ersson var einnig á svæðinu þegar
mestur hiti var í árásinni.
Aðrir sakborningar voru hand-
teknir á flótta frá heimili Arnars,
þrír karlmenn á Vesturlandsvegi
gegnt Korputorgi og ein kona við
afleggjarann að heimreið Arnars.
„Þau voru ekki ofan í atvikinu
þegar mestu átökin verða. Við erum
að reyna að fá almennilegan fram-
burð um allan þennan feril,“ segir
Grímur um sakborningana fjóra sem
var sleppt úr haldi.
Hvorki er komin lokaniðurstaða
hjá réttarmeinafræðingi varðandi
dánarorsök Arnars né hefur lögregla
komist fyllilega til botns í því hvað
varð til þess að sexmenningarnir fóru
heim til Arnars og veittust að honum.
„Við erum að uppýsa um öll atriði
sem gerast þarna upp frá en auðvitað
er hluti af því sem við eigum að rann-
saka, hver ástæða þess er að farið var
af stað. Hver ásetningurinn var, af
hverju fólkið var þarna.“ Grímur veit
ekki hvenær lokaniðurstaða réttar-
meinafræðings liggur fyrir.
Arnar Jónsson Aspar var jarðsung-
inn frá Grafarvogskirkju í gær. Hann
var 39 ára gamall og lætur eftir sig
unnustu og tvær dætur, fjórtán ára
og þriggja vikna gamlar. Í minningar-
greinum um Arnar í Morgunblaðinu
í gær er honum lýst sem barngóðum
fjölskyldumanni og traustum vini
sem var bæði ljúfur og kærleiksríkur.
ritstjorn@frettabladid.is
Vitni í manndrápsmáli
fengið vernd lögreglu
Arnar Jónsson Aspar var jarðsunginn í gær. Fjórum sakborningum af sex hefur
verið sleppt úr haldi og eru þeir ekki grunaðir um beina aðkomu að láti Arnars.
Ekki liggur fyrir lokaniðurstaða hjá réttarmeinafræðingi um banamein hans.
DómsmáL Guðni Th. Jóhannesson,
forseti Íslands, segist miður sín vegna
máls Roberts Downey, áður Róberts
Árna Hreiðarssonar, sem hefur feng-
ið lögmannsréttindi sín á ný.
Forseti veitti Róberti uppreist æru
samkvæmt tillögu frá Ólöfu Nor-
dal, þáverandi innanríkisráðherra,
í september síðastliðnum. Guðni
undirstrikar að ákvörðunin sé ekki
tekin af honum sjálfum – heldur í
ráðuneytinu. Hann biður ekki um
vorkunn en óskar þess að fólk sýni
sanngirni, þá að teknu tilliti til máls-
meðferðarinnar.
Robert Downey var dæmdur í
þriggja ára fangelsi árið 2008 fyrir
að brjóta gegn fjórum stúlkum,
einni fjórtán ára og þremur fimm-
tán ára. Hann komst í samband
við stúlkurnar með blekkingum og
þóttist Robert til að mynda vera 17
ára gamall táningspiltur að nafni
Rikki í samskiptum við eina þeirra í
gegnum netið. Greiddi hann tveimur
stúlknanna fyrir kynmök.
Vísir greindi frá því á fimmtudag
að ein stúlknanna sem Robert braut
gegn þyki sem forsetinn hafi brugðist
sér. Guðni Th. Jóhannesson segir að
ákvörðun um uppreist sé ekki tekin
hjá embætti forseta Íslands.
„Það gilda ákveðin lög um upp-
reist æru, almenn hegningarlög og
þeir sem sækja um uppreist æru
gera það hjá innanríkisráðuneytinu,
dómsmálaráðuneytinu eins og það
heitir núna. Þar er ákvörðunin tekin,
stjórnarathöfnin tekin. Þar vinnur
fólk með sérþekkingu á lögum og
leiðir sig að niðurstöðu út frá því.“
Forsetinn segir málið ömurlegt.
„Samúð mín er auðvitað öll hjá
þeim sem þessi brotamaður braut
á. Að þurfa að þola þessa upp-
rifjun núna. Ég er bara eins og aðrir
Íslendingar, held ég, að þegar kyn-
ferðisafbrot eru annars vegar þá vill
maður helst að brotamaðurinn sé
læstur inni og lyklinum hent. En við
búum líka í réttarríki og leyfðu mér
að ítreka þetta – ákvörðunin er ekki
tekin hérna.“
Vilji fólk fá rökstuðning fyrir þess-
ari ákvörðun þá verði það að beina
þeirri beiðni til ráðuneytis. – ngy
Forseti kveðst miður sín
Guðni th. Jóhannesson, forseti Íslands, í viðtali á Stöð 2 í gær. mynd/Stöð 2
Samúð mín er
auðvitað öll hjá
þeim sem þessi brotamaður
braut á. Að þurfa að þola
þessa upprifjun núna.
Guðni Th. Jóhannesson,
forseti Íslands
1 7 . j ú n í 2 0 1 7 L A u g A r D A g u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t A B L A ð i ð
1
7
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
D
-7
4
8
8
1
D
1
D
-7
3
4
C
1
D
1
D
-7
2
1
0
1
D
1
D
-7
0
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
9
6
s
_
1
6
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K