Fréttablaðið - 17.06.2017, Page 96

Fréttablaðið - 17.06.2017, Page 96
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN Í ENGIHJALLA, VESTURBERGI OG ARNARBAKKA 365.is Sími 1817 333 krá dag* *9.990.- á mánuði. Sirrýjar Hallgrímsdóttur BAKÞANKAR Reykjavíkurborg hefur verið illa stjórnað á undanförnum árum. Fjármál borgarinnar í lamasessi, áherslur í húsnæðismál- um hafa valdið efnahagslegu tjóni á landsvísu, holur og umferðartafir einkenna samgöngustefnuna og leik- og grunnskólar hafa mátt þola niðurskurð. Læt ég síðan liggja á milli hluta ýmis minni mál eins og slátt á grasi, þrif og annað sem snertir umgengni hér í borginni. Og þetta er ekki bara skoðun mín. Þar til fyrir skemmstu tók Reykja- víkurborg þátt í þjónustukönnun Gallup. Þegar borin voru saman svör íbúa nítján stærstu sveitarfélag- anna kom í ljós að íbúar Reykja- víkur voru óánægðastir allra. Dagur og félagar ákváðu að við svo búið mætti ekki standa og bættu þjón … nei, náði ykkur. Þeir bættu ekki þjónustuna heldur drógu Reykjavík bara út úr könnuninni með þeim orðum Dags að „Reykjavíkingar væru kröfuharðari en íbúar annarra sveitafélaga“. Sem sagt vanþakklátt lið sem ekki kann gott að meta. Halldór Halldórsson sagði um daginn að íbúar Reykjavíkur vissu sennilega ekki alveg hverjir væru í borgarstjórn. Það er meira í þessu hjá Halldóri en virðist við fyrstu sýn. Nú er komið í ljós, skv. frétt RÚV, að lögregluyfirvöld höfðu samband við formann borgarráðs og tilkynntu um aukinn viðbúnað lögreglu. Formaðurinn virðist ekki hafa vitað hver væri forseti borgar- stjórnar og því kom hann ekki skila- boðunum áleiðis, en borgarstjórn- arforsetinn hafði uppi stóryrði um að enginn hefði látið borgaryfirvöld vita. Framvegis verða þær stofnanir ríkisins sem hyggjast hafa samband við borgina því að senda póst á allir@hvereríborgarstjórn.is og taka tillit til þessa allsherjar athyglis- brests sem einkennir stjórnsýslu borgarinnar þessa dagana. Vanþakklátir Reykvíkingar 1 7 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 0 9 6 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 1 D -4 8 1 8 1 D 1 D -4 6 D C 1 D 1 D -4 5 A 0 1 D 1 D -4 4 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 9 6 s _ 1 6 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.