Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.06.2017, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 17.06.2017, Qupperneq 30
Stéttarfélagið Efling gerir tveggja milljóna króna launakröfu á sjálfboðaliða-samtökin Seeds á Íslandi vegna starfa Tiago Quint-anihla, doktorsnema frá Portúgal, fyrir samtökin á síðasta ári. Tiago leitaði aðstoðar hjá Vinnu- málastofnun, lögreglu og lögfræðing- um stéttarfélaga vegna óásættanlegs vinnuálags og ótryggra aðstæðna við akstur fyrir samtökin. Stéttarfélög landsins hafa ítrekað að sjálfboðaliðastörf geti ekki verið við efnahagslega starfsemi sem er í sam- keppni við fyrirtæki í sömu atvinnu- starfsemi. Það feli í sér óásættanleg undirboð á íslenskum vinnumarkaði og standist hvorki kjarasamninga né lög. Afstaða Eflingar er skýr hvað þetta varðar. Störf Tiago feli í sér undirboð á vinnumarkaði. Að auki geti sjálf- boðavinna ekki falið í sér akstur, hvort sem um er að ræða fólksflutninga eða akstur á vörum á milli staða. „Nú er verið að vinna stefnugerð- ina og málið fer í innheimtu hjá lög- mönnum félagsins,“ segir Sigurður Bessason, formaður Eflingar, og stað- festir að upphæðin sé tvær milljónir króna. Samtökin hafi boðið Tiago tvö hundruð þúsund krónur eftir að málið kom á borð Eflingar. Því boði hafi hann hafnað. Tiago starfaði við akstur. „Hann greindi frá því að hann hefði gegnt starfi sendibílstjóra og hópferðabíl- stjóra í sjálfboðavinnu. Hann hafi verið sendur með vörur og flutti fólk á milli landshluta,“ segir Ingólfur Björgvin Jónsson sem tók við máli hans hjá Eflingu og tekur fram að laun og önnur starfskjör slíkra starfa skuli ávallt vera samkvæmt lágmarks- kjörum viðkomandi starfsgreinar. Störf sjálfboðaliða megi ekki fela í sér undirboð á vinnumarkaði. Launakrafa upp á tvær milljónir Doktorsnemi frá Portúgal leitaði til lögreglu vegna starfa sinna fyrir íslensk sjálfboðaliðasamtök og greindi frá vinnuálagi og ótryggum aðstæðum. Stéttarfélagið Efling gerir tveggja milljóna króna launakröfu á samtökin. Fréttaskýring Tiago í íslenskri náttúru á síðasta ári. Hann starfaði við akstur fyrir sjálfboðaliðasamtökin Seeds og kvartaði undan álagi og ótryggum aðstæðum. Stéttarfélögin hafa áhyggjur af störfum sjálfboðaliða á landinu. „Stéttarfélögin hafa stöðugar áhyggjur af þessu og það er einmitt þess vegna sem við höfum undirritað samninga bæði við SA og Bændasamtökin um hvað felst í sjálfboðavinnu og þá helst hvað má ekki vinna í sjálfboðastörf- um. Það eru alltaf einhver mál í gangi,“ segir Drífa Snædal, framkvæmda- stjóri SGS, og ítrekar að það þurfi að gera skýran greinarmun á sjálfboða- liðastörfum í efnahagslegri starfsemi annars vegar og sjálfboðaliðum í sam- félagslegri vinnu hins vegar. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Saga Tiago Quintanihla Niðurbrotinn eftir sjálfboðaliðastörf á Íslandi Tiago er staddur í Portúgal og glímir enn við eftirköst dvalarinnar á Íslandi. „Ég hafði komið áður til Íslands og lét mig dreyma um að flytja hingað eftir doktorsnámið. Ég ákvað að freista gæfunnar og starfa sem sjálfboðaliði hér á landi og ljúka doktorsritgerð minni á meðan. Ég valdi sjálfboðaliðasamtökin Seeds. Í umsóknarferlinu var mér sagt að ég myndi í mesta lagi vinna átta tíma á dag í miklum önnum. Mér var líka sagt að reglum samkvæmt myndi ég hafa frítíma og ég gæti unnið að ritgerðinni. Dvölin hér varð hins vegar að al- gjörri martröð. Ég er enn í töluverðu uppnámi og vil reyna að gleyma þessu öllu saman. Ég ákvað samt að standa á mínu og sækja rétt minn. Ég starfaði í fjóra mánuði fyrir Seeds á Íslandi og vann oft tíu til tólf tíma á dag. Einn daginn vann ég átján tíma vinnudag. Ég keyrði á milli húsa samtakanna með mat og tók líka við rusli og fór með í Sorpu. Þá fólst starf mitt töluvert í fólksflutningum á milli landshluta. Í einni slíkri ferð keyrði ég á milli landshluta í tólf tíma án nægilegrar hvíldar. Launin eru samkvæmt samningi sam- takanna. Ég fékk 70 evrur á mánuði, deildi herbergi í húsi þar sem bjuggu sextán manns og deildu tveimur baðherbergjum, aðeins annað þeirra var með sturtu. En vinnuálagið var langt umfram það sem samningur- inn tiltók. Ég vann nokkrum sinnum ellefu daga í röð. Og þurfti þá að vinna á svokölluðum frídögum mínum fyrir formann samtakanna. Ég var gjörsamlega úrvinda. Ég keyrði sjálfboðaliða á milli staða daglega og fannst bílarnir í slæmu standi. Ótryggir. Í eitt skiptið var ég að keyra niður bratta brekku á Suður- landi með fullan bíl af fólki. Ég var ekki viss um að bremsan virkaði almennilega og fylltist ofsahræðslu. Þetta var oft skelfilegt. Í einni vinnulotunni starfaði ég meira en 50 klukkustundir á fjórum dögum. Ég keyrði fólk á milli staða án þess að vera með réttindi til þess eða þjálfun,“ segir hann. Tiago segist hafa kvartað nokkrum sinnum yfir óboðlegum og ótryggum aðstæðum. „Ég held það hafi verið þrisvar sem ég kvartaði. Í öll skiptin var mér sagt að þá gæti ég bara farið. En það er ekki svo einfalt, ég var ótryggður og í vondri stöðu. Á endanum var ég rekinn og því borið við að ég væri ómögulegur í sam- skiptum. Erfiður. Ég endaði á því að borga flugfarið mitt sjálfur frá Íslandi en áður en ég fór þá sagði ég sögu mína lögreglu, starfsfólki á Vinnu- málastofnun og lögfræðingum. Á fundum mínum með lögreglunni var mér sagt að vera hugrakkur, samningurinn við samtökin væri ólöglegur. Ég gaf þeim GPS-hnit um þá staði þar sem sjálfboðaliðar vinna fyrir samtökin og nákvæma skýrslu um störf mín, vinnutíma og samskipti við stjórnendur,“ segir Tiago sem segir lögregluna að endingu hafa ákveðið að kæra ekki samtökin heldur vísað málinu áfram til stéttarfélagsins. „Það mál er verið að leiða til lykta núna. Ég var óviðbúinn því að svona gæti gerst á Íslandi. Landi sem stendur framarlega hvað varðar mannréttindi fólks og samfélags- ábyrgð. Ég trúði því líka að ég væri kominn til starfa fyrir gott málefni, góð samtök sem ég gæti verið stoltur af að vinna fyrir. Ég hélt ég kæmi aftur til Portúgal víðsýnni og einu ævintýrinu ríkari. Það er ekki reyndin. Mér hefur liðið ömurlega. Ég skammast mín fyrir að hafa lent í þessum aðstæðum og hef verið kvíðinn og þunglyndur.“ Haft var samband við formann Seeds á Íslandi, Oscar Uscategui. Hann vill ekki tjá sig um málið á meðan það er í vinnslu og segist enn fremur ekki vilja skaða samskipti á milli samtakanna og Eflingar. Ég held það hafi verið þrisvar sem Ég kvart aði. Í öll skiptin var mÉr sagt að þá gæti Ég bara farið. Sjálfboðaliðasamtökin Seeds hafa unnið fjölmörg samfélagsleg verkefni sem hafa vakið eftirtekt og verið til gagns. SEEDS Íslensk sjálfboðaliðasamtök, óháð stjórnvöldum og rekin án hagnaðarsjónarmiðs. Þau bjóða ungu fólki frá hinum ýmsu Evrópulöndum að koma og vinna á Íslandi gegn því að fá fæði og húsnæði. Með þessum hætti leitast Seeds við að stuðla að mismunandi menningu, sam- eiginlegum skilningi og verndun umhverfisins. Sjálfboðaliða- samtökin hafa unnið að fjölda verkefna sem snúa að umhverfis- vernd á Íslandi. 1 7 . j ú n í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R30 H e L G i n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 1 7 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 0 9 6 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 1 D -6 5 B 8 1 D 1 D -6 4 7 C 1 D 1 D -6 3 4 0 1 D 1 D -6 2 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 9 6 s _ 1 6 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.