Fréttablaðið - 17.06.2017, Blaðsíða 73
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Bára Gunnbjörnsdóttir
Dynsölum 10, Kópavogi,
andaðist á Landspítalanum við
Hringbraut 2. júní sl. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey. Innilegar þakkir
fyrir samúðarkveðjur og vinarhug.
Rebekka Sif Kaaber Guðjón Vilhjálmsson
Fríða Rakel Kaaber Ryan Patrekur Kevinsson
Bára Margrét og Eva Sóley Guðjónsdætur
Björn Kaaber
Ástkær faðir okkar, sonur og bróðir,
Símon Páll Jónsson
Seljabraut 50,
lést miðvikudaginn 14. júní á
gjörgæsludeild Landspítalans.
Aron Páll Símonarson, Elvar Máni
Símonarson, Jón Símon Gunnarsson,
Eygló Magnúsdóttir og systkini hins látna.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
Halldór Árnason
Dóri skó
Akureyri,
lést að öldrunarheimilinu Hlíð á
Akureyri, fimmtudaginn 15. júní 2017.
Jarðarförin auglýst síðar.
Anna Gréta Halldórsdóttir Aðalsteinn Sigurgeirsson
Ása Björk Þorsteinsdóttir
Oddur Helgi Halldórsson Margrét Harpa Þorsteinsd.
Freydís Ágústa Halldórsdóttir Jóhann Skírnisson
Elma Dóra Halldórsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ragnar Hilmar Þorsteinsson
múrarameistari,
Jötunsölum 2, Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju
miðvikudaginn 21. júní kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Hjartaheill.
Kristín Hrefna Kristjánsdóttir
Guðlaug Ragnarsdóttir Birgir Bjarnason
Kristján Hjálmar Ragnarsson Kristjana Una Gunnarsd.
Sigríður Ragnarsdóttir Trausti Gylfason
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát
eiginmanns míns, föður, stjúpföður,
tengdaföður, afa og langafa,
Halldórs V. Vilhjálmssonar
(Mansa)
sem lést 31. maí 2017.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigríður Þorsteinsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Þórarinn Grímsson
(Doddi Gríms)
þúsundþjalasmiður,
Knarrarbergi 8, Þorlákshöfn,
lést á hjartadeild Landspítalans þann
14. júní sl. Útförin verður auglýst síðar.
Valgerður Jóhannesdóttir
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Kærar þakkir fyrir samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar
Ingveldar Guðmundsdóttur
Sérstakar þakkir fær starfsfólk
Hrafnistu, Reykjavík, fyrir umönnun,
vinskap og hlýju.
Kristján Ólafsson Áslaug Friðriksdóttir
Guðrún Þ. Ólafsdóttir Ólafur V. Skúlason
Sigurður Ingi Ólafsson
Kristjana L. Rasmussen Ove L. Rasmussen
Hjördís Ólafsdóttir Halldór Ingvason
Unnur Ólafsdóttir Stefnir Helgason
barnabörn og langömmubörn.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Friðrik J. Jónsson
frá Kópaskeri, til heimilis að
Lindasíðu 4, Akureyri,
lést á Hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð
þann 12. júní. Útför hans fer fram frá
Glerárkirkju á Akureyri, fimmtudaginn 22. júní kl. 13.30.
Árni V. Friðriksson Gerður Jónsdóttir
Ólafur Friðriksson Freyja Tryggvadóttir
Kristín Helga Friðriksdóttir Bjarki Hrafn Ólafsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir og afi,
Helge Sørensen
9. okt. 1937 – 9. júní 2017
verður jarðsettur frá Østervangskirken í Glostrup,
þriðjudaginn 20. júní.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Neistann,
styrktarfélag hjartveikra barna.
Hjördís Ingunn, Ulla Björk og Stina Stella.
Elskulegur faðir, tengdafaðir og bróðir,
Bjarni Hákonarson
lést á líknardeild Landspítalans 7. júní.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 21. júní kl. 13.
Birgir Páll Bjarnason Amanda Da Silva Cortes
Ragnheiður Mekkín Bjarnad. Kristján Oddsson
Hulda Hákonardóttir
Eggert Finnbogason
Rósa Finnbogadóttir Sigurður Rúnar Sigurðsson
Auður Finnbogadóttir Enrique Llorens
Ólafur Finnbogason
Sigríður Finnbogadóttir
Leifur Hákonarson
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Rutar Sigurðardóttur
Hrafnistu, Reykjavík,
(áður Árskógum 8).
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Hrafnistu fyrir
alúð og umhyggju. Guðmundi Rúnarssyni lækni þökkum
við einstaka umönnun undanfarin ár.
Birna Ágústsdóttir Júlíus Sigmundsson
Guðlaugur Ágústsson Sigríður Ósk Pálmadóttir
Ævar Ágústsson Ragnheiður Júníusdóttir
Ína Björg Ágústsdóttir Haraldur Hansson
Magnús Ágústsson Reynee Rose Agustsson
Berglind Ágústsdóttir Hjálmar Hjálmarsson
Linda Sjöfn Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
t í m a m ó t ∙ F R É t t a B L a ð i ðT T T T 37L a U G a R D a G U R 1 7 . j ú n í 2 0 1 7
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Ég er kominn úr útlegð í bili en fer svo aftur í framhaldsnám,“ segir Bjarni Örn Kristinsson, 24 ára, sem útskrifaðist nýlega með B.Sc. gráðu í flugvéla-og
geimverkfræði frá MIT (Massachusetts
Institute of Technology) sem sam-
kvæmt QS University Ranking hefur
verið besti háskóli heims síðustu ár.
Bjarni Örn er sonur Örnu Sifjar
Kærne sted tölvunarfræðings og Krist-
ins Ragnars Árnasonar fjármálastjóra.
Hvers vegna varð flugvéla- og geim-
verkfræði fyrir valinu hjá honum? „Í
menntaskóla fór ég í skiptinám til Jap-
ans í eina önn. Þá opnaðist heimurinn
og ég áttaði mig á hvað það er gaman að
kynnast fólki frá öllum heimshornum
og mér fannst lítið mál að búa erlend-
is. Stefnan var því fljótt sett á nám í
útlöndum. Á endanum stóð MIT upp
úr. Það var ekki aðeins námið, heldur
menningin og fólkið í skólanum sem
togaði. Þar að auki ábyrgist MIT að
veita nemendum fjárhagsaðstoð, óháð
einkunnum og hvers lenskir þeir eru.“
En hafa Íslendingar þörf fyrir geim-
verkfræðinga? „Að minnsta kosti flug-
vélaverkfræðinga. Ég skoðaði að fara í
tölvunarfræði sem annar hver nemandi
er í, líka kjarnorku- og samrunaverk-
fræði sem væri erfiðara að fá vinnu við
á Íslandi, en áfangar um þotuhreyfla og
eldflaugar, já, takk! Stærsta hindrunin
við að fá vinnu í þessu fagi í Banda-
ríkjunum er að fá öryggisheimild sem
krefst ríkisborgararéttar í nánast öllum
tilfellum. Án hennar fengi ég ekki að
skúra gólfið í hönnunardeild Lockheed
Martin.“
Hann reiknar þó með nokkurra ára
veru í Bandaríkjunum. „Ég byrja á
meistaranáminu í haust en til að kom-
ast í doktorsnámið þarf ég að standast
röð stöðuprófa. Ég held áfram á meðan
ég hef gaman af náminu og rannsóknar-
verkefnunum.“
Nú ætlar hann að njóta íslenska
sumarsins og vinna í markaðsáhættu
í Landsbankanum. „Verkfræðin er
tól sem maður getur notað í allt milli
himins og jarðar,“ segir hann. „Það er
mikilvægt að byggja upp reynslu og
þekkingu á mörgum sviðum.“
gun@frettabladid.is
Þotuhreyflar, já, takk!
Bjarni Örn Kristinsson er nýkominn heim með B.Sc. gráðu í flugvéla- og geimverkfræði
frá MIT, einum besta háskóla heims. Þar komast um 2,2% útlendinga inn í grunnnám.
„Verkfræðin er tól sem maður getur notað í allt milli himins og jarðar,“ segir Bjarni Örn.
Mynd/Sif KjærneSted
1
7
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
D
-9
2
2
8
1
D
1
D
-9
0
E
C
1
D
1
D
-8
F
B
0
1
D
1
D
-8
E
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
9
6
s
_
1
6
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K