Fréttablaðið - 17.06.2017, Page 92

Fréttablaðið - 17.06.2017, Page 92
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Lífið í vikunni 11.06.15- 17.06.15 Syngur um áStar­ Sambönd Söngkonan Karó sagði frá nýju lagi sem hún var að senda frá sér. Lagið, sem heitir Overnight, fjallar um togstreitu innan ástarsam- banda. „Lagið fjallar í grunninn um þessa togstreitu sem getur skapast í ástarsambönd- um, þessi on/off, haltu mér/ slepptu mér spennu,“ sagði Karó í viðtali við Lífið. Kóp boi á magann Rapparinn Herra Hnetusmjör lét flúra á magann á sér orðin Kóp Boi í sama stíl og Thug Life húðflúrið sem Tupac skartaði. „Ég og Joe Frazier vorum í galsa fyrir svona tveimur vikum og mér datt þetta svona í hug í djóki – út af því að Tu- pac var með Thug Life á maganum. Og svo einhvern veginn varð þetta bara að veruleika á mjög stuttum tíma,“ sagði rapparinn. áhugaverðir hópar Facebook-hópar eru eins misjafnir og þeir eru margir og Lífið gerði samantek yfir nokkra áhugaverða hópa. Þeir sem komust á lista voru meðal annars þessir: Íslenskar samsæriskenningar Súrdeigið Verst lagði bíllinn Ég ann chili Hamstrar guðni er fitt forSeti Guðni Th. Jó- hannesson, forseti Íslands, komst á topp Hvannadals- hnúks, hæsta tinds landsins, á mánudaginn í góðra vina hópi. Tómas Guðbjartsson, hjartaskurðlæknir á Landspítal- anum, var í hópnum. „Ég held að Íslendingar geti verið mjög stoltir af því að eiga svona fitt forseta. Það eru ekkert allir forsetar sem færu þetta,“ sagði Tómas. Afgreiðslutími Rvk Mánudaga til föstudaga kl. 10–18 Laugardaga kl. 11–17 Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi) www.dorma.is Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Eftir áralanga þróun og prófanir höfum við náð markmiði okkar. Við höfum búið til eina þróuðustu dýnu heims Simba tvinndýnan er gerð úr einstakri samsetningu 2500 keilulaga gorma og móttækilegs minnissvamps. Fáðu betri svefn – sama hvert svefnmynstur þitt er. 90 x 200 cm 74.990 kr. 120 x 200 cm 89.990 kr. 140 x 200 cm 99.900 kr. 160 x 200 cm 114.990 kr. 180 x 200 cm 129.900 kr. Simba dýnurnar eru fáan­ legar í eftirtöldum stærðum Komdu og kynntu þér Simba í næstu Dormaverslun eða á www.simbasleep.is DORMA KYNNIR EINA ÞRÓUÐUSTU HEILSUDÝNU HEIMS Við fylgjumst með tveimur vinateym-um taka hvort sína íbúðina á Ásbrú í Reykjanesbæ í gegn. Markmiðið er að sýna hvernig er hægt að eignast sitt eigið heimili án þess að borga mörg hundruð þúsund krónur fyrir fer- metrann,“ segir Sindri Sindrason um nýjan þátt, Blokk 925, sem hann stýrir. Teymin tvö sem gera íbúðirnar upp hafa það að markmiði að finna ódýrar og sniðugar lausnir. „Þetta eru 80 fermetra t-laga íbúðir með glugg- um á einni hlið. Teymin fá svo ákveð- ið „budget“ og vinna í samstarfi við Ikea og Múrbúðina,“ útskýrir Sindri sem segir íbúðirnar vera krefjandi rými til að taka í gegn. „En það er arkitekt með þeim í þessu verkefni sem leiðbeinir þeim. Og svo eru auðvitað margir iðnaðar- menn á svæðinu líka til að aðstoða.“ Spurður nánar út í teymin tvö segir Sindri: „Þetta eru annars vegar tveir strákar og hins vegar tvær stelpur. Strákarnir eru nýbúnir að klára BA í arkitektúr en önnur stelpnanna er í húsgagnasmíði og innanhússhönnun en hin er áhuga- maður. Og þau eru ekkert endilega alltaf sammála hvert öðru, það er svolítið gaman að fylgjast með þeim takast á.“ Umdeilt svæði Sindri er viss um að þættirnir munu gefa áhorfendum góðar hugmyndir. „Ég held að hönnun teymanna tveggja muni veita fólki innblástur og ég held líka að ásýnd manna á þetta svæði muni breytast. Þáttur- inn snýst um teymin tvö að taka íbúðirnar í gegn en ekki síður um að sýna fólki að það er hægt að kaupa fasteign án þess að borga 800 þúsund eða milljón fyrir fermetrann.“ Sindri segir margt fólk hafa ákveðna fordóma gagnvart Ásbrú. „Þess vegna er svo gaman að takast á við þetta verkefni á þessu svæði sem hefur verið svolítið umdeilt. Eins og flestir muna var í þessu hverfi her- stöð frá árunum 1951 til 2006. Og frá árinu 2006 fór íbúafjöldinn bara niður í núll. En þetta hverfi hefur verið að byggjast upp og í dag búa þarna um 2.100 manns. Íbúum fer fjölgandi því þarna er hægt að fá nýtt húsnæði sem verið er að gera upp fyrir mun minni peninga heldur en gengur og gerist miðsvæðis.“ Undanfarið hefur umræða um hátt fasteignaverð verið áberandi en Sindri vonar að þættirnir muni veita fólki sem dreymir um að komast inn á fasteignamarkaðinn innblástur. „Það er svo sem fínt að hafa plan, en ef þú átt ekki mikla peninga þá þarf maður kannski bara að leita á þau mið þar sem hlutirnir kosta minna. Svo er auðvitað hinn mesti misskiln- ingur að allir vilji búa í 101. Það er ekkert skrýtið að ungt fólk sæki í að flytja t.d. í Hveragerði, Reykjanesbæ eða eitthvert annað, því þetta eru allt fínir bæir og fasteignaverðið þar er mun viðráðanlegra en það er á höfuðborgarsvæðinu. Sambærilegt örugglega þrefalt dýrara í miðbænum Að sögn Sindra lofar hönnun teym- anna tveggja góðu. „Þetta verður flott en íbúðirnar tvær verða alveg brjál- æðislega ólíkar. Þær fara svo á sölu og við fáum fasteignasala með okkur í lið í þáttunum sem metur þær. Fólk mun geta gert mjög góð kaup í þeim, því þær verða virkilega flottar. Sambærileg íbúð í miðbænum væri örugglega þrefalt dýrari.“ Sindri er sjálfur mikill fagurkeri og hefur notið þess í botn að stýra þáttaröðinni. „Þetta hefur verið rosa- lega gaman og ég hef alveg leyft mér að segja mínar skoðanir við teymin, svo er bara allur gangur á því hvort þau taka mark á mér eða ekki. En í ljósi þess að ég kann hvorki á hamar né sög þá nær hroki minn mjög skammt,“ segir Sindri og hlær. Þess má geta að Blokk 925 verður á dagskrá á sunnudagskvöldum í sumar og fyrsti þátturinn er sýndur þann 25. júní. gudnyhronn@365.is fermetrar þurfa ekki að vera fokdýrir Sindri Sindrason vonast til að nýjasti þátturinn sem hann stýrir, Blokk 925, muni veita fólki innblástur og minna á að það er hægt að kaupa fasteign án þess að borga hátt í milljón fyrir fermetrann. Sindri verður á skjánum í sumar með þáttinn Blokk 925. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Það er Svo Sem fínt að hafa pLan, en ef Þú átt eKKi miKLa peninga Þá Þarf maður KannSKi bara að Leita á Þau mið Þar Sem hLutirnir KoSta minna. 1 7 . j ú n í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R56 L í f i ð ∙ f R É T T A B L A ð i ð 1 7 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 0 9 6 s _ P 0 9 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 1 D -6 F 9 8 1 D 1 D -6 E 5 C 1 D 1 D -6 D 2 0 1 D 1 D -6 B E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 9 6 s _ 1 6 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.