Fréttablaðið - 13.07.2017, Blaðsíða 17
Fyrir aldarfjórðungi geisuðu harðar deilur í Svíþjóð um efnahagsmál. Stjórnarstefna
jafnaðarmanna sem höfðu verið
lengi við völd – samfleytt frá 1932 til
1976, lengst af í minnihlutastjórn,
og síðan aftur 1982-1991, 1994-2006
og frá 2014 – sætti margvíslegri
gagnrýni. Sumir töldu stjórnvöld
ganga of langt í viðleitni sinni
til að jafna lífskjör almennings á
kostnað gróandi atvinnulífs. Aðrir
sögðu skattbyrði fólks og fyrirtækja
of þunga. Enn aðrir sögðu verk-
lýðsfélög fá að ráða of miklu um
landsstjórnina. Opinberar hagtölur
sýndu að Svíþjóð hafði dregizt aftur
úr nokkrum öðrum iðnríkjum mælt
í þjóðartekjum á mann.
Svíþjóð og Argentína
Engum gat þó dulizt Grettistakið
sem ríkisstjórn jafnaðarmanna
og forsætisráðherrarnir Per Albin
Hansson (1932-1946) og Tage
Erlander (1946-1969) höfðu náð
að lyfta. Svíþjóð var bláfátæk um
aldamótin 1900 og missti um
fjórðung landsmanna vestur um
haf 1870-1920 á flótta undan fátækt
og stöðnun, röska milljón manns
af fimm, hærra hlutfall en Ísland
missti, um fimmtung, gróft reiknað.
Svíþjóð stóð jafnfætis Argentínu
um aldamótin 1900. Þjóðartekjur
á mann voru þá hinar sömu í lönd-
unum tveim og hélzt það jafnvægi
fram til 1930. Þá skildi leiðir því
Argentína varð illa úti í heimskrepp-
unni 1929-1939, en Svíþjóð ekki því
Svíum tókst með tímabundnum
ríkishallarekstri að bægja kreppunni
að mestu frá landinu.
Stjórnarfarið batnaði smám
saman í Svíþjóð. Lýðræði skaut
rótum og hefur nú staðið óskorað
frá 1917 þegar sænskar konur fengu
kosningarrétt. Argentína bjó að lýð-
ræði framan af 20. öldinni en landið
varð einræði að bráð í kreppunni
sem skall á 1929 og sneri ekki aftur
til lýðræðis fyrr en 1983. Hagstjórn
undir einræði í Argentínu varð
afturhaldssöm og innhverf. Landeig-
endur sölsuðu undir sig auð og völd.
Hagstjórn undir merkjum lýðræðis
í Svíþjóð hafði annan svip. Svíar áttu
viðskipti við umheiminn og lögðu
rækt við jöfnun lífskjara. Svíum tókst
að þoka sér fram í fremstu röð ríkra
landa. Lífskjaramunurinn á Svíþjóð
og Argentínu sem hafði enginn verið
1930 var orðinn þrefaldur 1960 og
sexfaldur í fyrra, 2016.
Viðsnúningur
Árin eftir 1990 sýndu opinberar
hagtölur samt að Svíþjóð hafði dreg-
izt aftur úr Danmörku og öðrum
iðnríkjum. Fjármálakreppan sem
reið yfir Finnland, Noreg og Svíþjóð
1989-1994 en ekki Danmörku átti
talsverðan þátt í þessari þróun. Og
viti menn: stjórnvöld tóku gagn-
rýnina alvarlega. Ríkisútgjöld voru
skorin niður úr 64% af landsfram-
leiðslu 1995 í 50% 2015. Þessum
umskiptum fylgdi léttari skattbyrði
fólks og fyrirtækja og einnig léttari
skuldabyrði ríkissjóðs.
Gini-stuðullinn sem er algengur
mælikvarði á jöfnuð í tekjuskipt-
ingu þokaðist á sama tíma upp á við
hvort sem miðað er við vinnutekjur
eingöngu eða fjármagnstekjur eru
taldar með. Hærri Gini-stuðlar vitna
um minni jöfnuð, en Svíþjóð hélzt
þó áfram í hópi þeirra landa þar sem
tekjuskiptingin telst vera jöfnust.
Þá var dregið úr veldi verklýðs-
félaga með því m.a. að leggja niður
umdeilda launþegasjóði sem komið
Svíum vegnar vel, en …
hafði verið á með lögum 1983 að
frumkvæði alþýðusambandsins og
borgarastjórnin afnam síðan 1991
(og jafnaðarmenn reyndu ekki að
endurreisa þegar þeir komust aftur
til valda 1994). Launþegasjóðunum
var ætlað að veita fulltrúum laun-
þega beina aðild að fjárfestingum
atvinnulífsins og mynda mót-
vægi við fjármagnseigendur til
að efla atvinnulýðræði. Harðar
deilur risu um hvort vægi þyngra,
valddreifingin sem aðild fulltrúa
launþega að fjárfestingum sjóðanna
var ætlað að tryggja eða hið nýja lög-
boðna vald verklýðsfélaganna sem
margir óttuðust að myndi draga úr
hagkvæmni fjárfestingar og bitna
á lífskjörum til lengdar. Tilraunin
stóð stutt, 1983-1991, og þykir eftir á
að hyggja ekki hafa skilað tilætl-
uðum árangri. Enda hefði fjármagn
ella flúið land eftir að fjármagns-
flutningar milli landa urðu frjálsir
um líkt leyti frekar en að lúta valdi
verklýðsfélaga.
Með pálmann í höndunum, en …
Sænsk stjórnvöld brugðust vel
við ábendingum hagfræðinga og
annarra m.a. um hætturnar sem
fylgja miklum ríkisafskiptum,
stórtækri endurskiptingu tekna
og miklu veldi verklýðsfélaga.
Skattkerfið var endurbætt, kjara-
samningagerð var endurskipu-
lögð til að girða fyrir kollsteypur
með gamla laginu, og ríkiseinok-
un vék fyrir samkeppni á ýmsum
sviðum í skjóli inngöngu Svía í
ESB 1994. Efnahagslífið tók kipp.
Margt er þó enn ógert, m.a. í hús-
næðis- og innflytjendamálum.
Svíar hafa tekið við tiltölulega
fleiri innflytjendum en aðrar Evr-
ópuþjóðir án þess að ráða við að
laga þá vel að sænsku samfélagi
eða veita þeim tímanlega vinnu.
Svíþjóðardemókratar eru nú
þriðji stærsti flokkurinn í sænska
þinginu, en enginn hinna flokk-
anna virðir þá viðlits. Horfurnar
eru því óvissar.
Þorvaldur
Gylfason
Í dag
Þvottavél sem sannarlega
stendur vel í stykkinu.
Við bjóðum hina eftirsóttu Bosch-þvottavél,
WAT 284B9SN, nú á einstöku tilboðsverði.
WAT 284B9SN er búin öllum þeim kostum og eiginleikum sem menn
þurfa á að halda í dagsins önn. Tekur 9 kg og hefur íslenskt stjórnborð.
1400 sn./mín. Orkuflokkur A+++. Kolalaus, hljóðlátur og sparneytinn
mótor með 10 ára ábyrgð. Dropalaga tromla („VarioDrum“) sem fer
einstaklega vel með þvottinn. 15 mín. hraðþvottakerfi. Skyrtukerfi.
Tromluhreinsun. Mjög stöðug og hljóðlát.
Tilboðsverð:
74.900 kr.
Fullt verð: 109.900 kr.
WAT 284B9SN
Við leggjum áherslu á hágæða vörur
og fyrsta flokks þjónustu á góðu verði.
Gildir til og með 24. júlí eða meðan birgðir endast. Takmarkað magn.
9
kg
A
Ariel fljótandi
þvottaefni fylgir
öllum þvottavélum.
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 17F i M M T u d a g u R 1 3 . j ú L Í 2 0 1 7
1
3
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:1
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
4
F
-2
D
6
8
1
D
4
F
-2
C
2
C
1
D
4
F
-2
A
F
0
1
D
4
F
-2
9
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
1
2
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K