Fréttablaðið - 13.07.2017, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 13.07.2017, Blaðsíða 44
KviKmyndir War for the Planet of the Apes HHHHH Leikstjóri: Matt Reeves Handrit: Mark Bomback, Matt Reeves Kvikmyndataka: Michael Seresin Tónlist: Michael Giacchino Aðalhlutverk: Andy Serkis, Woody Harrelson, Amiah Miller Tæp fimmtíu ár eru liðin frá því að upprunalega Apaplánetu-myndin með Charlton Heston leit dagsins ljós. Það sem byrjaði í fyrstu sem sjálfstæð aðlögun á skáldsögu höf- undarins Pierre Boulle varð fljótt að vinsælum myndaflokki, sem hefur þróast merkilega síðan þá, rétt eins og tæknin og aðferðirnar sem hafa farið í það að gæða apana lífi. Upp úr aldamótunum reyndi leikstjórinn Tim Burton að koma seríunni í gang á ný, með miklu skrauti en slöppum árangri. Áratug seinna var svo gerð önnur tilraun til endurræsingar. Þá kom forsagan Rise of the Planet of the Apes þar sem stillt var upp breiðari sögu um háþróaða simpansann Caesar og hið óumflýjanlega stríð á milli manna og ofurapa, sem hann hefur reynt sitt besta til að koma í veg fyrir. Fyrsta myndin fjallaði um upp- vaxtarár Caesars og hvernig hann öðlaðist greind og sjálfstæði. Í Dawn of the Planet of the Apes er mann- fólkið komið í útrýmingarhættu vegna veirusýkingar og gerist Caesar formlegur leiðtogi á meðan tog- streita myndast úr öllum áttum. Sú þriðja segir frá þróun hans til þess að verða goðsögn á meðan hann tekst á við erfiðari djöfla en áður. Nýju Apaplánetumyndirnar nálgast árekstur ólíku hópanna á athyglisverðan máta og í þokkabót eru þær skýrt dæmi um það hvernig skal gera framhalds- eða forsögur. Hver tilheyrandi eining er hæfilega sjálfstæð en hver kafli dýpkar per- sónusköpunina og bætir náttúru- lega ofan á forvera sinn án þess að apa beint eftir honum. Útkoman hér er hiklaust átakan- legasta, metnaðarfyllsta og útlits- lega séð langflottasta eintakið í trí- lógíunni. War for the Planet of the Apes er vægast sagt tilkomumikil og góð áminning um það að rándýrar brellumyndir geta oft verið list- rænar og gerðar fyrir hugsandi fólk. Eins og titillinn gefur til kynna er atburðarásin allt annað en hressileg og myndin er langt frá því að vera hefðbundin sumarafþreying. Í staðinn kemur hæg, grimm og bítandi „and-stríðsmynd“ þar sem merkilega lítið af hasar er í boði. Til viðbótar eru orustusenur aldrei stíl- færðar eins og þær eigi að vera eitt- hvað sérstaklega „töff“ í ljósi þess að sagan sýnir af fullri hörku eðli stríðs og afleiðingar slíks. Vissulega er hasarinn mikilvægur og öflugur fylgihlutur í myndinni en algjört aukaatriði í samanburði við þemun og karakterana. Það er ekki annað hægt en að dást að þessari mynd. Öll umgjörð er óaðfinnanleg, frá listilegri kvik- myndatöku til tónlistar sem eflir andrúmsloftið afbragðsvel, og tölvuvinnan sem hér er til sýnis er helbert kraftaverk. Brellurnar eru fyrst og fremst nýttar til þess að þjóna sögunni og persónunum frekar en væntingum áhorfenda um sjónarspil. Það vantar heldur ekkert upp á að Andy Serkis komi með enn einn leiksigur- inn í þessu ógleymanlega aðalhlutverki. Þjáning Caes- ars og myrkt hugarástand skín í gegn um pixlana og magnast hvort tveggja með tilþrifum leikarans. Hnökralaus frammistaða Serkis skyggir þó ekki á aðra leikara f r e k a r e n áður. Flestir, ef ekki allir, standa fyrir sínu. Woody Harrelson er réttur maður á réttum stað og heldur ekki eins einhliða andstæðingur og hann virðist vera í fyrstu. Hin unga Amiah Miller er áhrifarík í hlutverki munaðarlausrar stúlku sem verður á vegi Caesars og Steve Zahn bætir við þörfum létt- leika í blönduna án þess að ganga of langt með það. Í röngum höndum hefði efnivið- urinn léttilega getað misheppnast eða orðið kjánalegur. Leikstjórinn Matt Reeves hefur aftur tekið að sér ýkta vísindaskáldssögu með æpandi ádeilu og neitað að búa til heilalaust bíó úr því. Hann sýður hér saman ýmsa tóna; stríðsmynd, flóttamynd og hljóðlátan vestra svo úr verður minnisstæð heild þar sem fasismi, dýrslegt eðli, ótti, fordómar, sam- kennd og þrautseigja eru skoðuð af mikilli einlægni. Það er með h r e i n u m ó l í k i n d u m hvað Reeves nær heppi- lega að forð- ast alla til- gerð og ná oft ansi langt með afar litlu, eins og með það hvernig hann spilar með þagnir, táknmál, ein- falt augnaráð e ð a ö n n u r s m á a t r i ð i , gjarnan í nær- myndum. Það kemur fyrir en örsjaldan að sumt er meira útskýrt heldur en þörf er á en á rúmum tveimur tímum er aldrei teygða eða tilgangslausa mínútu að finna í öllu flæðinu. En auðvitað er magnað að Holly- wood-framleiðendur hafi dælt svona miklum peningum í vandaða, kraft- mikla „poppkornsmynd“ þar sem áhorfandinn er fenginn til þess að styðja útrýmingarhættu manneskj- unnar og halda með öpunum. Heill sé þér, Caesar! Tómas Valgeirsson niðurstAðA: Hér er búið að dulbúa fallega, bitastæða og dökka „and- stríðsmynd“ sem sumarafþreyingu. En frásögnin er vönduð, tilfinningalega lifandi og brellurnar hreint ótrúlegar. Stórkostlegur endir á flottum þríleik Leikarahópurinn stendur sig vel í War for the Planet of the Apes. NORDICPHOTOS/AFP Bíó Skemmtanir Árshátíðir Grímuböll Dimmisjón ofl. & ofl. Ykkar skemmtun.... ....okkar fókus 1 3 -0 7 -2 0 1 7 0 4 :1 9 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 4 F -2 8 7 8 1 D 4 F -2 7 3 C 1 D 4 F -2 6 0 0 1 D 4 F -2 4 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s _ 1 2 _ 7 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.